Flokkur fólksins lætur sér ekki duga að dotta

Þrátt fyrir að það hafi vakið athygli á fyrsta þingfundi vetrarins að einn nýrra þingmanna Flokks fólksins dottaði í þingsal hafa þingmenn flokksins hreint ekki setið auðum höndum í upphafi nýs þings, heldur lagt fram mörg þingmál, alls 50 talsins.

Inga Sæland er formaður Flokks fólksins, sem hefur dælt út þingmálum svo eftir er tekið á fyrstu dögum nýs þings.
Inga Sæland er for­maður Flokks fólks­ins, sem hefur dælt út þing­málum svo eftir er tekið á fyrstu dögum nýs þings. Mynd: Bára Huld Beck

Meirihluti málanna frá þing­mönnum Flokks fólksins eru endur­unnið efni úr ranni flokksins frá síðasta kjör­tímabili, en sum eru ný. Inga Sæland flokks­formaður er fyrsti flutnings­maður alls 30 mála, 22 fram­lagðra frumvarpa og átta þings­ályktunar­tillagna, en einungis eitt mál frá henni hefur ekki áður komið fyrir augu þingsins.

Ásthildur Lóa Þórs­dóttir er fyrsti flutnings­maður tíu frumvarpa, Guðmundur Ingi Kristinsson er með fjögur frumvörp í sínu nafni og hinir karlarnir í þing­flokknum, Eyjólfur Ármannsson, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson, eru fyrstu flutnings­menn samtals sex mála.

Baráttumál Hagsmunasamtaka heimilanna ofarlega á baugi

Ekki þarf að koma á óvart að mörg frumvörp líti dagsins ljós frá Ásthildi Lóu, sem verið hefur formaður Hagsmuna­samtaka heimil­anna undan­farin ár. Hún var búin að lýsa því yfir í kosninga­baráttunni að hún væri með allnokkrar tillögur að laga­breytingum tilbúnar.

Kennir ýmissa grasa í þeim málum sem hún leggur fram, en mörg snúast þau um stöðu neytenda á húsnæðis­markaði, mál sem Ásthildur Lóa hefur beitt sér fyrir að koma á dagskrá stjórn­málanna undan­farin ár á vettvangi Hagsmuna­samtaka heimil­anna.

Þannig lýtur eitt mál að því að hætta að miða stofn álagningar fasteigna­skatts við fasteignamat og að skatturinn verði fremur lagður á „sem tiltekin fjárhæð á hvern fermetra fasteigna“ svo fasteigna­skattar taki ekki stökk þegar íbúðaverð snar­hækkar. Í öðru máli Ástu Lóu er lagt til að sett verði inn bráðabirgða­ákvæði í lög um vexti og verð­tryggingu og húsa­leigulög sem tryggi að verð­tryggðar skuld­bindingar, húsnæðislán og húsaleiga, skuli ekki hækka á árinu 2022.

Enn annað mál snýr einnig að verð­tryggðum lánum, en þar eru lagðar til breytingar á lögum um neytenda- og fasteignalán sem fela í sér að neytendum verði veittur réttur til aðfá verð­tryggðum lánum sínum breytt yfir í óverðtryggð lán, án endurnýjunar lánshæfis- og greiðslu­mats, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Annað mál varðar greiðslu séreignar­sparnaðar beint inn á húsnæðislán, sem hefur staðið fyrstu kaupendum til boða. Ásta Lóa og meðflutningsmenn hennar í þing­flokknum leggja til að „rétturinn til skatt­frjálsrar nýtingar séreignar­sparnaðar til kaupa á fyrstu íbúð verði ekki einskorðaður við fyrstu kaup, heldur verði einstaklingum sem ekki hafa átt íbúð undan­gengin þrjú ár einnig heimilt að nýta sér þetta úrræði.“

Í greinar­gerð með frum­varpinu segir að þetta sé meðal annars miðað að þeim hópi fólks sem missti eigið húsnæði í kjölfar banka­hrunsins og hafi ekki náð að komast aftur inn á fasteigna­markað.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir hefur sett fram tíu frumvörp sem fyrsti flutningsmaður.
Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir hefur sett fram tíu frum­vörp sem fyrsti flutn­ings­maður.

Þrír þingmenn Pírata slást í lið með Ástu Lóu og öðrum í þing­flokki Flokks fólksins í máli sem fjallar um það að samtök neytenda fái aukinn rétt til þess að leita til þar til bærra stjórn­valda fyrir hönd neytenda um úrlausn ýmissa mála. Frum­varpinu er þannig ætlað að bregðast við ítrekuðum frávísunum stjórn­valda á slíkum málum á þeim grund­velli að samtök á sviði neytenda­verndar skorti lögvarða hagsmuni af úrlausn málanna.

Flest mála formannsins endurflutt

Nær öll þeirra mála sem Inga Sæland er fyrsti flutnings­maður á eru endur­flutt mál frá síðasta þingi. Þeirra á meðal er tillaga að styrkjum til kaupa á sérútbúnum bifreiðum fyrir hreyfi­hamlaða, auk frumvarpa um bann við rekstri spila­kassa á Íslandi, bann við okri á tímum hættu­ástands, bann við blóð­merahaldi (sem tveir þingmenn Vinstri grænna styðja nú), afnám allra skerðinga elli­lífeyris vegna atvinnu­tekna.

Að auki leggur Inga að nýju fram frumvörp um að allir íbúar í fjölbýlis­húsum megi eiga kött eða hund nema aukinn meirihluti í húsfélagi segi til um annað og um niður­greiðslu raforku til garðyrkju­bænda, svo eitthvað sé nefnt.

Þþfbsoemssoh verði Sjónstöð

Eitt nýtt mál er sett fram af hálfu Ingu Sæland. Það er frumvarp um að nafni stofnunar sem heitir í dag Þjónustu- og þekkingar­miðstöðvar fyrir blinda, sjón­skerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnar­skerðingu verði einfald­lega breytt í Sjónstöð Íslands.

„Við endur­skoðun laga í gegnum árin hefur heitið ítrekað tekið breytingum og stafa­fjöldinn aukist. Það tíðkast almennt ekki í heiti annarra stofnana að telja upp í heiti þeirra hvert og eitt einasta viðfangs­efni stofnunar. Því er engin ástæða til að beita þeirri formúlu einungis um heiti þessarar stofnunar,“ segir í greinar­gerð með frum­varpinu.

Vara­formaður flokksins Guðmundur Ingi Kristinsson leggur fram fjögur frumvörp, sem öll eru endur­flutt frá fyrri þingum.

„Fæði, klæði og húsnæði“ fyrir námsmenn

Tómas A. Tómasson, sem er nýr þingmaður og jafnframt sá elsti í þinginu, er fyrsti flutnings­maður frumvarps sem hefur það að markmiði að koma í veg fyrir skerðingar á fram­færslu námsmanna vegna launa­tekna. Samkvæmt frum­varpinu myndu launa­tekjur ekki hafa nein áhrif á fram­færslulán frá Mennta­sjóði námsmanna.

Tómas A. Tómasson vill að námsmenn fái að vinna eins mikið og þeim lystir með námi, án þess að það skerði framfærslulán frá Menntasjóði.
Tómas A. Tómasson vill að náms­menn fái að vinna eins mikið og þeim lystir með námi, án þess að það skerði fram­færslu­lán frá Mennta­sjóði.

„Ein helsta hindrunin í vegi námsmanna sem þurfa að treysta á fram­færslulán frá Mennta­sjóði eru reglur um skerðingar á fram­færslu vegna tekna námsmanna. Hafi námsmaður tekjur umfram frítekjumörk úthlutunar­reglna skerðist fram­færsla frá Mennta­sjóði verulega. Þetta er sérstak­lega íþyngjandi í ljósi þess að fram­færsla Mennta­sjóðs dugar almennt ekki ein og sér til að greiða fyrir fæði, klæði og húsnæði,“ segir í greinar­gerð með frum­varpinu.

Sundabraut fyrr, frjálsar handfæraveiðar og ný Breiðafjarðarferja

Eyjólfur Ármannsson, oddviti Flokks fólksins í Norðvestur­kjördæmi, er fyrsti flutnings­maður þings­ályktunar­tillagna um samgöngumál sem tengjast því kjördæmi. Í fyrsta lagi leggur hann til að ný Breiða­fjarðar­ferja verði keypt og að þar til ný ferja verði keypt skuli nota gamla Herjólf í reglu­legum ferju­siglingum um Breiða­fjörðinn. Auk þing­flokks Flokks fólksins eru þeir Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðis­flokks og Bjarni Jónsson þingmaður Vinstri grænna með á þessu máli.

Annað mál Eyjólfs snýst svo um að lagningu Sunda­brautar verði flýtt og þeim lokið fyrir árslok 2027, en ekki árið 2031 eins og stefnt er að í stjórnar­sáttmála. „Það tók ekki áratugi að færa Kára­hnjúka­virkjun frá hugmynd að veruleika þrátt fyrir að sú hugmynd hefði í alla staði verið mun flóknari og stærri framkvæmd en lagning Sunda­brautar. Sunda­braut er framkvæmd sem nánast allir eru sammála um að sé mikilvæg fyrir samfélagið og ekki er eftir neinu að bíða. Ef allir leggjast á eitt má hefja framkvæmdina á allra næstu árum,“ segir í greina­gerð með tillög­unni.

Eyjólfur Ármannsson var oddviti Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi.
Eyjólfur Ármanns­son var odd­viti Flokks fólks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Eyjólfur er svo einnig fyrsti flutnings­maður í máli sem varðar frjálsar hand­færaveiðar, en þar er leitað beint í smiðju Guðjóns Arnar Kristins­sonar, sem sat á þingi fyrir Frjáls­lynda flokkinn sáluga. Frumvarp hans um málið er sett fram efnislega óbreytt.

„Guðjón Arnar barðist fyrir því árum saman að almenningur fengi tækifæri til að stunda frjálsar hand­færaveiðar. Sú barátta stuðlaði m.a. að því að opnað var á strand­veiðar fyrir rúmum áratug síðan. Strand­veiðarnar hafa skilað sjávar­byggðum miklu, en strandveiði­kerfið er eigi að síður mörgum annmörkum háð. [...] Takmarkanir á atvinnu­frelsi þurfa að byggjast á sterkum rökum og ekki ganga lengra en nauðsyn krefur. Afla­hámark sem takmarkar fisk­veiðar á eingöngu að ná til þeirra veiða sem ógna fisk­stofnum, ekki til sjálf­bærra veiða. Hand­færaveiðar eru sjálf­bærar og ógna ekki fisk­stofnum landsins,“ segir m.a. í greinar­gerð með frum­varpinu.

Ívilnanir fyrir rafknúna báta og flugvélar og betra símasamband

Jakob Frímann Magnússon er fyrsti flutnings­maður tveggja frumvarpa. Annað þeirra snýst um ívilnanir vegna nýrra og nýlegra flugvéla og báta, sem einungis ganga fyrir rafmagni. Virðis­aukaskattur af slíkum tækjum myndi falla á brott, yrði frum­varpið að lögum. Hitt snýst um betra farsíma­samband á þjóðvegum landsins, en það felur í sér að Fjarskipta­stofu verði veitt heimild til þess að leggja kvaðir á fjarskipta­fyrirtæki um að koma upp og reka fjarskipta­virki á ákveðnum stöðum, til þess að gloppur verði ekki í kerfinu.

„Tæknin er til staðar til að stoppa upp í götin en fjarskipta­fyrirtæki virðast hafa lítinn áhuga á því mikilvæga verkefni. Ef fjarskipta­fyrirtæki sjá sér ekki hagnaðarvon í því að tryggja öryggi á vegum landsins þá verða stjórn­völd að grípa inn í og útrýma þeim markaðs­bresti,“ segir í greinar­gerð með frum­varpinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár