Spá 9 prósenta hækkun fasteignaverðs í Noregi

Líkt og á Íslandi hefur fasteigna­verð hækkað hratt á síðustu mánuðum, að öllum líkindum vegna mikilla vaxta­lækkana og aukins sparnaðar. Hagstofa Noregs spáir áfram­haldandi hækkun fasteigna­verðs í ár, þrátt fyrir að vextir gætu hækkað aftur.

Ålesund í Noregi
Ålesund í Noregi Mynd: Pexels - Ela Yudhanira

Norska hagstofan (SSB) býst við að íbúðaverð í landinu muni hækka um 9 prósent í ár, þar sem stofnunin telur að vaxtastig muni haldast lágt í sögulegu samhengi. Þetta kemur fram í nýrri hagspá hagstofunnar sem kom út síðasta föstudag.

Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um hefur verið mikið líf á fasteigna­markaðnum í Noregi eftir að vextir lækkuðu þar í landi í kjölfar heims­faraldursins í fyrra. Þetta náði bæði til íbúðahúsa og sumarhúsa, en í nóvember síðastliðnum, seldust 85 prósent fleiri orlofshús í Noregi en á sama tíma árið á undan.

Samkvæmt norska miðlinum E24 hækkaði fasteigna­verð um 10,2 prósent í Osló, höfuðborg Noregs, í fyrra. Til saman­burðar hækkaði vísitala fasteigna­verðs á höfuð­borgar­svæðinu hér á landi um 7,2 prósent á sama tíma. Í báðum löndunum átti megnið af hækkuninni sér stað á milli maí- og desember­mánaðar.

Í hagspá SSB segir að þessar hröðu verð­hækkanir bendi til þess að miklar vaxta­lækkanir í Noregi hafi yfirgnæft hugsanleg áhrif hóflegrar tekju­aukningar og lítillar mann­fjölgunar á húsnæðis­markaðinn. Samkvæmt stofnuninni er líka líklegt að þvingaður sparnaður, tilkominn vegna þess að lokað var fyrir ýmsar tegundir neyslu vegna sótt­varnar­ráðstafana, hafi haft jákvæð áhrif á íbúðaverð.

SSB spáir lítils háttar hækkun vaxta á seinni hluta ársins, en býst þó við að þeir muni haldast lágir í sögulegu samhengi út árið. Samkvæmt spá þeirra mun lágt vaxtastig knýja áfram verð­hækkanir á markaðnum næstu mánuðina, samhliða aukinni skuld­setningu Norðmanna. Aukin íbúða­fjárfesting gæti vegið á móti þessum verð­hækkunum.

E24 hefur eftir Tomas von Brasch, sérfræðingi hjá SSB, að núverandi staða endur­spegli fórnar­skiptin sem seðla­banki Noregs stendur frammi fyrir. „Hann vill ná fjármála­stöðugleika og stöðug­leika á fasteigna­markaði. Það mikil­vægasta er að halda verð­bólgunni í skefjum og sjá til þess að framleiðslu­þættir séu full­nýttir. Þeir hafa mörg markmið og eitt mikilvægt tæki, vaxta­stigið,“ segir von Brasch.

„Það sem faraldurinn hefur sýnt sig er að það getur verið erfitt að ná mörgum markmiðum með einu tæki. Þetta verður jafnvægis­list,“ bætir hann við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár