Bandaríkin refsa Maduro fyrir valdagræðgi

Líklegt er að bandarísk stjórn­völd muni herða viðskipta­þvinganir við Venesúela, hætti Nicolás Maduro ekki við fyrir­huguð áform sín. Slíkt getur haft slæmar afleiðingar fyrir bæði löndin.

Nicolás Maduro, forseti Venesúela, fyrr í vikunni.
Nicolás Maduro, for­seti Venes­ú­ela, fyrr í vik­unni. Mynd: EPA

Svo virðist sem bandarísk stjórn­völd ætli sér að setja upp frekari viðskipta­þvinganir gegn Venesúela ef Nicolás Maduro, forseti landsins, reynir að breyta stjórnar­skrá landsins. Viðskipta­þvinganirnar gætu haft neikvæð áhrif, ekki einungis á lamaðan efnahag Venesúela, heldur einnig Banda­ríkin. Þetta kom fram í frétt á vef New York Times í gær.

Á miðvikudaginn var greint frá því að ríkis­stjórn Banda­ríkjanna hafi sett á viðskipta­bann hjá 13 núverandi og fyrr­verandi venesúelskum ríkis­stjórnar­meðlimum vegna fyrir­hugaðra einræðis­tilburða forsetans þar í landi, Nicolás Maduro. Maduro hyggst skipa í stjórnlagaráð næsta sunnudag, en Bandaríkja­stjórn telur ráðið muni koma stjórnar­skrár­breytingum í gegn sem gefa Maduro auknar vald­heimildir.

Ekki er talið að umrætt viðskipta­bann muni hafa efnahagsleg áhrif, en samkvæmt Mnuchin verða auknar viðskipta­þvinganir við Venesúela mögulega settar á hætti Maduro ekki við skipan ráðsins.

Mikið í húfi

Mikil verðmæti eru í húfi ef af þvingununum verður í báðum löndunum. Umfangs­mikil olíu­viðskipti eru milli landanna, en olía Venesúela er gróf og lítið unnin og Banda­ríkin er eitt fárra ríkja sem hefur nógu góðar olíu­hreinsi­stöðvar fyrir hana. Verði af viðskipta­banni milli landanna myndi því ríkis­rekni olíu­fram­leiðandi Venesúela, PDVSA, missa sinn stærsta viðskiptavin.

Sömuleiðis myndu þvinganir hafa neikvæð áhrif á utan­ríkis­viðskipti í Banda­ríkjunum, en venesúelsk olía nemur einum tíunda af heildar­innflutningi þar í landi.

Enn fremur, ef Bandaríkja­menn hætta að kaupa olíu frá Venesúela mætti búast við hækkandi heims­markaðs­verði á olíu. Hækkandi olíuverð myndi hafa jákvæð áhrif á olíu­framleiðslu­löndin Íran og Rússland og drægi þannig úr neikvæðum áhrifum viðskipta­þvingana Banda­ríkjanna við þau.

Samkvæmt frétt NYT myndu neikvæð efnahags­áhrif í Venesúela einnig smitast til Banda­ríkjanna að einhverju leyti, en David L. Goldwyn, sendi­herra orkumála í fyrri ríkis­stjórn Obama, sagði í samtali við NYT að harðar viðskipta­þvinganir gætu leitt til flóttamanna­bylgju til Banda­ríkjanna.

Ógnaröld í Venesúela

Ógnaröld ríkir í Venesúela núna, en tugir þúsundir íbúa landsins hafa flúið til nágranna­landa á meðan hagkerfi landsins eru rjúkandi rústir og ofbeldi og hungur færist í aukana. Kreppa hefur ríkt í landinu vegna lágs hrávöru­verðs undan­farinna ára, en stjórn­völd þar í landi hafa einnig sætt mikilli gagnrýni fyrir seðla­prentun og yfirtökur ríkisins á ýmsum fyrir­tækjum.

Útflutningur landsins hefur beðið hnekki vegna ástandsins á síðustu árum. Til að mynda hefur innflutningur á vörum frá Venesúela til Íslands snar­lækkað, en samtals hefur verið flutt inn að andvirði 400 milljóna króna í fyrra, miðað við rúma 6 milljarða árið 2015.

Líklegt er að Maduro muni skipa í stjórnlagaráð þvert á viðvaranir Bandaríkja­manna, ef marka má nýleg orð hans: „(Ef Trump) hefur vogað sér að segja nei við skipun stjórnlaga­ráðs, þá svörum við: „já, já, já – stjórnlaga­ráðið mun koma saman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár