Vindorkukostir sem eru 10 MW eða meira heyri undir rammaáætlun

Lagt er til að land verði flokkað með tilliti til vind­orkuvera í tengslum við breytingar á frumvarpi um ramma­áætlun. „Telja verður að vind­orkuver geti haft í för með sér minna óafturkræft rask en hefð­bundnari orku­kostir,“ segir í greinar­gerð.

Verkefnisstjórn 4. áfanga rammaáætlunar fékk 34 vindorkukosti inn á sitt borð í fyrra.
Verk­efn­is­stjórn 4. áfanga ramma­á­ætl­unar fékk 34 vind­orku­kosti inn á sitt borð í fyrra. Mynd: Flickr

Umhverfis- og auðlinda­ráðuneytið hefur birt í samráðs­gátt stjórn­valda drög að breytingum á lögum um verndar- og orku­nýtingar­áætlun (ramma­áætlun) sem taka á meðferð vindorku­kosta innan hennar. Lagt er til að sérstak­lega verði kveðið á um vindorku í lögunum til að taka af allan vafa um að slíkir virkjunar­kostir, sem eru 10 MW eða meira að uppsettu afli, heyri undir lögin. Jafnframt er lagt til að vindorku­kostir sæti vegna séreðlis vind­orkunnar annarri máls­meðferð en virkjunar­kostir í vatnsafli og jarðvarma. Þannig er jafnframt lögð til flokkun virkjunar­kosta til vind­orku­nýtingar með tilliti til stað­setningar í landslagi og náttúru Íslands og sé fyrir­hugað vind­orkuver utan ákveðinna svæða sæti það ekki takmörkunum ramma­áætlunar.

Markmið laga­breytinganna eru að gera leyfis­veitingar­ferli vegna nýtingar vindorku skilvirkara og að forgangs­raða landsvæðum svo að ná megi fram jafnvægi milli mikil­vægra umhverfis-, samfélags- og efnahagslegra þátta.

Slíkt verði í megin­atriðum gert með skýrri opinberri stefnu­mörkun um nýtingu vindorku og stað­setningu vind­orkuvera með tilliti til flokkunar lands . Gert er ráð fyrir að sú stefnu­mörkun komi til umfjöllunar og samþykktar Alþingis samhliða frum­varpinu en í formi tillögu til þings­ályktunar. „Með aðlögun gildandi laga að vindorku sem orkukosts er reynt að stuðla að því að vind­orkuver byggist síður upp á viðkvæmustu svæðum landsins auk þess sem reynt hefur verið að koma til móts við hið sérstaka eðli vind­orkunnar með þeim hætti að aukin skilvirkni, einföldun og fyrirsjáanleiki verði í reglu­verki við undir­búning slíkra verkefna,“ segir í greinar­gerð frumvarps­draganna sem nú hafa verið lögð fram til kynningar.

Í stjórnar­sáttmála ríkis­stjórnarinnar er kveðið á um að „setja þurfi lög um vind­orkuver ásamt því að vinna með sveitar­félögum leið­beiningar um skipulags­ákvarðanir og leyfis­veitingar“. Í lok árs 2019 var skipaður starfs­hópur þriggja ráðuneyta til að vinna að tillögum um hvernig best væri að haga málefnum vindorku sem orkunýtingarkosts hér á landi og byggir frum­varpið á niður­stöðum hans auk sjónar­miða ýmissa hagaðila.

Í skýrslu starfs­hópsins er lagt til að lands­svæði verði flokkuð í þrjá flokka með tilliti til hagnýtingar vindorku:

Flokkur 1.

Mælt yrði fyrir um að ekki yrðu byggð vind­orkuver á lands­svæðum í þessum flokki og að stjórn­völdum væri óheimilt að veita leyfi fyrir slíkum virkjunar­kostum eða taka þá til meðferðar.

Flokkur 2.

Þar féllu undir svæði sem gætu í eðli sínu almennt verið viðkvæm fyrir uppbyggingu vind­orkuvera eða annarri mann­virkjagerð, en virkjunar­kostir í vindorku innan slíkra svæða gætu þó komið til greina að uppfylltum tilteknum skilyrðum, megin­reglum og viðmiðum og að undan­gengnu mati verkefnis­stjórnar ramma­áætlunar.

Flokkur 3.

Þar yrðu um að ræða landsvæði sem hvorki teldust falla í flokk 1 né í flokk 2. Ákvörðunar­vald um framhald virkjunar­kosta á svæði í flokki 3 yrði þá hjá sveitar­félagi og öðrum stjórn­völdum að uppfylltum almennum reglum og skipulags­gerð einstakra sveitar­félaga, lögbundnu umhverfis­mati o.s.frv.

Í greinar­gerð frumvarps­draganna kemur fram að nágranna­lönd okkar hafa farið ýmsar leiðir við meðhöndlun vindorku. Í megin­atriðum hefur verið um tvær leiðir að ræða; annars vegar hin svonefnda norska leið og hins vegar skoska leiðin.

Norska leiðin umdeild

Norska leiðin byggðist á greiningu og kort­lagningu á stærstum hluta Noregs með tilliti til vind­orku­nýtingar. Áhersla var í fyrstu lögð á að greina þau lands­svæði sem útilokuð voru frá vind­orkunýtingu. Síðan var unnið að því að greina þau lands­svæði sem hugsanlega gætu hentað fyrir slíka uppbyggingu. Þau landsvæði voru að lokum skoðuð enn frekar með tilliti til þess hvaða svæði innan þeirra gætu hentað vel fyrir uppbyggingu vind­orkuvera. Það vindorku­kort sem varð til eftir þessa vinnu var í fram­haldinu kynnt í Noregi og var ekki óumdeilt, sérstak­lega meðal sveitar­félaga. Hafa norsk stjórn­völd því hafið endur­skoðun á aðferðar­fræðinni.

Flokkun skosku leiðarinnar

Sú leið sem Skotar fóru byggðist á þeirri leið að flokka lands­svæði í þrjá flokka: 1) svæði þar sem vind­orkuver eru ekki talin ásættanleg, 2) svæði með verulega vernd eða sérstöðu þar sem skoða þarf einstök tilvik með ítarlegum hætti áður en vind­orkuver geta komið til álita og 3) svæði með möguleika á vind­orkuverum en þó alltaf háð mati með tilliti til skilgreindra viðmiða.

Í skýrslu starfs­hópsins er lagt til að við breytingar á lögum um ramma­áætlun verði í grundvallar­atriðum horft til skosku leiðarinnar og hún aðlöguð að íslenskum aðstæðum.

Lög um ramma­áætlun áttu upphaf­lega eingöngu að ná til virkjunar­kosta í vatnsafli og jarðhita en við meðferð frum­varpsins á Alþingi var heiti laganna, gildis­sviði og nokkrum greinum frum­varpsins breytt þannig að þau yrðu ekki einungis bundin við vatnsafl og jarðhita. Hins vegar hafa komið fram sjónarmið um að lögin gildi ekki um vindorku og að fjalla þyrfti með skýrari hætti um þennan virkjunar­kost í þeim.

Rammaáætlun föst í þinginu

Vind­orkunýting fellur að mati umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins undir ramma­áætlun. Verkefnis­stjórn ramma­áætlunar hefur á grund­velli laganna fjallað um tvo virkjana­kosti í vindorku í þriðja áfanga ramma­áætlunar; Búrfells­lund (200 MW) og Blöndu­lund (100 MW). Niður­staða verkefnis­stjórnar var á þá leið að Búrfells­lundur færi í biðflokk en Blöndu­lundur í orku­nýtingar­flokk. Þings­ályktunar­tillaga sem byggir á niður­stöðum verkefnis­stjórnar í 3. áfanga ramma­áætlunar hefur hins vegar enn sem komið er ekki hlotið endanlega umfjöllun Alþingis. Í 4. áfanga ramma­áætlunar, sem nú er í vinnslu, hafa um 34 virkjunar­kostir í vindorku komið til meðferðar hjá verkefnis­stjórn.

Óþrjótandi auðlind

Sérstaða vind­orkunnar sem virkjunarkosts er nokkur. Sem auðlind er hann nokkurn veginn óþrjótandi og að sama skapi ekki jafn stað­bundinn og aðrir og hefð­bundnari virkjana­kostir. Þá krefjast vind­orkuver almennt minni undir­búnings­tíma, mun fljótlegra er að reisa slík mannvirki, auk þess sem hægt er að reisa þau í skilgreindum áföngum í samræmi við eftir­spurn.

„Telja verður að vind­orkuver geti í mörgum tilvikum haft í för með sér minna óafturkræft rask en hefð­bundnari orku­kostir, ef rétt er að staðið, enda er auðveldara að fjarlægja slík mannvirki að stærstum hluta ásamt flestum öðrum ummerkjum af virkjunar­stað, sé tekin ákvörðun um að hætta starfsemi,“ segir í greinar­gerð frumvarps­draganna. „Segja má því að nýting vindorku á tilteknu lands­svæði bindi ekki hendur framtíðar­kynslóða með jafn afgerandi hætti og oft er þegar um er að ræða nýtingu á hinum hefð­bundnari orku­kostum.“

Ákjósanlegt að nýta á Íslandi

Hagkvæmni vindorku er að aukast hratt og áhugi á hagnýtingu hennar fer vaxandi. Rekstur einstakra vind­orkustöðva á Íslandi í tilrauna­skyni hefur verið umfram væntingar og land- og veður­fræðilegar aðstæður ákjósanlegar til nýtingar vindorku á Íslandi.

Þar sem virkjunar­kostir í vindorku eru ekki jafn bundnir við ákveðna stað­setningu eins og hinir hefð­bundnu virkjunar­kostir gefur það stjórn­völdum mikilvægt tækifæri til að móta opinbera stefnu um það hvar helst eigi að staðsetja slíka starfsemi og hvar ekki, til að reyna eins og kostur er að lágmarka neikvæð umhverfisleg áhrif af henni, segir í greinar­gerðinni.

Hlutverk verkefnisstjórnar

Verkefnis­stjórn ramma­áætlunar gerir tillögu að flokkun fram­kominna virkjunar­kosta hverju sinni í verndar­flokk, biðflokk og orku­nýtingar­flokk. Með laga­breytingunni yrði hlutverk verkefnis­stjórnar hvað vindorku­kosti varðar í fyrsta lagi að yfirfara alla slíka virkjunar­kosti eftir að Orku­stofnun hefur farið yfir þá og greina lands­svæði sem áhugi er að reisa þá á. Ef stað­setningin er innan svæða í flokki 1 þá vísar verkefnis­stjórn slíkum virkjunar­kostum frá. Sé stað­setningin hvorki á svæði í flokki 1 né í flokki 3, þá tekur verkefnis­stjórn slíka kosti til skoðunar og mats út frá megin­reglum og viðmiðum sem koma fram í þings­ályktun um stefnu stjórn­valda um nýtingu vindorku. Telji verkefnis­stjórn hins vegar eftir skoðun sína að virkjunar­kostur falli hvorki undir flokk 1 né flokk 2, þá tilkynnir hún ráðherra um þá niður­stöðu sína og gert er ráð fyrir að slíkir virkjunar­kostir sæti ekki frekari máls­meðferð samkvæmt lögum um ramma­áætlun og geti farið áfram í hefð­bundið leyfis­veitingar­ferli.

Eins og verið hefur mun hlut­aðeigandi virkjana­kostur þurfa að fara í gegnum hefð­bundna opinbera leyfis­veitingar­ferla og mæta þeim kröfum sem þar er að finna, t.d. í lögum um mat á umhverfis­áhrifum, raforku­lögum, skipulags­lögum og mannvirkja­lögum. Hlut­aðeigandi sveitar­félag þarf einnig að gera ráð fyrir slíkum virkjunar­kosti og tilheyrandi mann­virkjum í skipulagi sínu því frum­varpið gerir ekki ráð fyrir því að sveitar­félögum beri sjálfstæð skylda til að aðlaga skipulags­áætlanir sínar að virkjana­kostum í vindorku eins og gildir um hina hefð­bundnu orkukosti, vatnsafl og jarðhita, jafnvel þó slík verkefni hljóti framgang samkvæmt lögum um verndar- og orku­nýtingar­áætlun.

Frumvarps­drögin má nálgast hér og umsagnar­frestur er til 5. febrúar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár