Einkafyrirtækin fá 4.000 krónur fyrir hvert hraðpróf

Á fyrstu 20 dögum nóvember­mánaðar voru tekin ríflega 80 þúsund hraðpróf á landinu. Þrjú einka­fyrirtæki fá greitt frá Sjúkra­tryggingum fyrir að taka slík próf og höfðu þau fengið 240 milljónir króna í lok nóvember.

Þrjú einka­fyrirtæki uppfylla skilyrði reglu­gerðar heilbrigðis­ráðherra til greiðslna frá Sjúkra­tryggingum Íslands fyrir töku hraðprófa. Ekki er unnt að upplýsa um nákvæman kostnað vegna þessara prófa þar sem SÍ hafa ekki borist allir reikningar en í lok nóvember höfðu fyrir­tækin fengið greiddar tæplega 240 milljónir króna, segir í svari stofnunarinnar við fyrir­spurn Kjarnans um kostnað vegna hraðprófa. Að auki sér Heilsu­gæsla höfuð­borgar­svæðisins um töku hraðprófa og einnig eru þau tekin á stofnunum úti á lands­byggðinni.

Ný reglugerð um fjölda­takmarkanir tók gildi 12. nóvember og samkvæmt henni má halda viðburði fyrir allt að 500 manns gegn því að niður­stöðu úr hrað­prófum sé framvísað.

Fram kemur í reglugerð heilbrigðis­ráðherra um töku hraðprófa að Sjúkra­tryggingar Íslands endur­greiða einka­aðilum sem uppfylla skilyrði og hafa heimild til að annast hraðpróf (antigeng-próf) kostnað vegna þeirra samkvæmt gjaldskrá stofnunarinnar. Gjaldið nemur 4.000 krónum á hvert sýni og á að standa undir kostnaði við prófin og framkvæmd þeirra. Þeir aðilar sem um ræðir eru Öryggis­miðstöðin, Sameind og Arctic Therapeutics. Mikil aðsókn hefur verið í prófin undan­farið enda marg­víslegir viðburðir í boði.

Yfir 80 þúsund próf á þremur vikum

Heilbrigðis­ráðuneytið óskaði fyrir nokkru eftir upplýsingum um fjölda tekinna hraðprófa á höfuð­borgar­svæðinu og í heilbrigðis­umdæmum Heilbrigðis­stofnunar Suður­lands og Heilbrigðis­stofnunar Suðurnesja en þorri allra hraðprófa er tekinn á þessu svæði. Upplýsingarnar tóku til tíma­bilsins 1. til 20. nóvember. og voru þetta samtals 81.815 hraðpróf.

Aðgengi að hrað­prófum var aukið í byrjun desember með lengdum opnunar­tíma fyrir sýnatökur hjá Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins við Suður­landsbraut, með það að markmiði að koma betur til móts við menningar­tengda viðburði á aðventunni.

Það er faglegt mat sóttvarna­læknis og heilbrigðis­yfirvalda að notkun hraðprófa til að sporna við útbreiðslu veirunnar sé mikilvæg og hafi reynst árangursrík, segir í svari heilbrigðis­ráðuneytisins við spurningu Kjarnans um árangur af notkun hraðprófa sem tekin eru á vegum heilsu­gæslunnar og annarra aðila sem uppfylla skilyrði ráðuneytisins við töku þeirra samkvæmt reglugerð.

Ráðuneytið var einnig spurt hvort til greina kæmi að hvetja fólk til að taka COVID-próf heima hjá sér sem lið í barátt­unni við útbreiðslu faraldursins og benti ráðuneytið þá á að þau próf sem fólk getur tekið sjálft, oft í daglegu tali kölluð sjálfs­próf, veiti ekki undanþágu frá fjölda­takmörkunum, enda séu þau ekki talin mjög áreiðanleg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár