Yfir tuttugu þingmenn vilja að Ísland verði leiðandi í rannsóknum á hugvíkkandi efnum

Stór hópur þingmanna úr öllum flokkum nema Vinstri­hreyfingunni – grænu framboði vill sjá heilbrigðis­ráðherra skapa löglegan farveg fyrir rann­sóknir á virka efninu í ofskynjunar­sveppum hér á landi, þannig að Ísland verði „leiðandi“ í rann­sóknum á efninu.

Vilhjálmur Árnason (t.v.) er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins er á meðal alls 22 meðflutningsmanna Vilhjálms.
Vil­hjálmur Árnason (t.v.) er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar. Bergþór Ólason þing­maður Mið­flokks­ins er á meðal alls 22 með­flutn­ings­manna Vil­hjálms. Mynd: Bára Huld Beck

Alls 23 þingmenn úr sjö af þeim átta flokkum sem eiga sæti á Alþingi standa saman að þings­ályktunar­tillögu sem lögð hefur verið fram á þingi um heimild til rannsókna og notkunar á efninu sílósíbíni, sem er virka efnið í ofskynjunar­sveppum, í geðlækninga­skyni. Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðis­flokks er fyrsti flutnings­maður tillög­unnar og að minnsta kosti einn þingmaður allra flokka nema Vinstri grænna setur nafn sitt við hana.

Tillagan felur í sér að Alþingi feli heilbrigðis­ráðherra, í samstarfi við aðra ráðherra sem málið snertir, að „undirbúa og leggja til nauðsynlegar breytingar, hvort sem er á lögum, reglu­gerðum eða með öðrum hætti, sem heimila rann­sóknir og tilraunir með hugvíkkandi efnið sílósíbín í geðlækninga­skyni og skapa skýra umgjörð fyrir sérhæfða meðferðar­aðila um notkun efnisins í þeim tilgangi“.

Þing­mennirnir vilja að tillögur ráðherra um þetta liggi fyrir eigi síðar en næsta vor.

Sílósíbin er sem áður segir virka efnið í ofskynjunar­sveppum, en á undan­förnum árum og áratugum hafa marg­vís­legar rann­sóknir farið fram á gildi þessa virka efnis til með­höndl­unar á ýmsum kvillum sem hrjá mann­kyn­ið, til dæmis geð­rænum vanda­málum á borð við kvíða og þung­lyndi og svo fíkni­sjúk­dóm­um.

Ísland verði leiðandi í rannsóknum á hugvíkkandi efnum

Markmið þing­mannanna með tillög­unni er, samkvæmt því sem segir í greinar­gerð, „að Ísland verði leiðandi í rann­sóknum á gagnsemi hugvíkkandi efna í geðlækninga­skyni“ og „að rann­sóknir og tilraunir með hugvíkkandi efni í geðlækninga­skyni verði alfarið í höndum fagfólks í heilbrigðis­þjónustu“.

Í dag eru falla hugvíkkandi efni á borð við sílósíbin undir skilgreiningar laga um ávana- og fíkniefni og varsla þeirra því óheimil. Í greinar­gerð með þings­ályktunar­tillögunni segir að mögu­leikar þess í geðlækninga­skyni séu miklir, en að fordómar gagnvart notkun efnisins séu tölu­verðir og brýnt sé að vinna bug á þeim svo unnt sé að stunda frekari og útbreiddari rann­sóknir á efninu.

Í greinar­gerðinni eru niður­stöður ýmissa vísinda­rannsókna á virkni sílósíbins settar fram, auk þess sem vísað er til umfjallana sem birst hafa í íslenskum fjöl­miðlum á undan­förnum árum.

Þannig er vísað til þess að í febrúar á þessu ári var fjallað um möguleika sem fælust í notkun efnisins í geðlækninga­skyni í Kveik á RÚV. Þar var rætt við Víði Sigrúnarson geðlækni á Vogi, sem benti á að efnið væri ekki ávana­bindandi og því takmörkuð hætta á að einstaklingar ánetjuðust efninu. Víðir varaði hins vegar við því efnið væri notað samfara öðrum efnum, og án samráðs við fagfólk.

Einnig vísa þing­mennirnir í greinar­gerð sinni til þess að Pétur Henry Petersen, prófessor við lækna­deild HÍ og sérfræðingur í tauga­vísindum, hafi varað við því í viðtali í útvarps­þættinum Harmageddon á X977 að einstaklingar neyttu sílósíbíns á eigin vegum líkt og algengt væri.

„Flutnings­menn tillög­unnar telja brýnt að rann­sóknir á notkun sílósíbíns í geðlækninga­skyni verði alfarið framkvæmdar á vegum fagfólks og að kannað verði til þrautar hvort efnið geti valdið þeim straum­hvörfum í geðlækningum sem ýmsir fræðimenn hafa boðað. Ávinningurinn gæti orðið verulegur, ekki síst á Íslandi þar sem um 60.000 einstaklingar glíma við geðræn vandamál. Geðlyfja­notkun á Íslandi hefur rúmlega tvöfaldast á síðustu 15 árum. Árið 2005 var 627 skömmtum af geðlyfjum ávísað á hverja 100.000 íbúa, en árið 2020 voru skammtarnir orðnir 1.317. Talið er að hefð­bundin þunglyndislyf gagnist ekki í um þriðjungi tilfella,“ segir í greinar­gerð þing­mannanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár