Virka efnið í ofskynjunarsveppum virðist geta hjálpað áfengissjúklingum að ná bata

Sterkar vís­bend­ingar eru uppi um að notkun sílósíbins geti, sam­fara sam­tals­með­ferð, hjálpað áfeng­is­sjúk­lingum að draga úr drykkju eða hætta að drekka. Ný banda­rísk rann­sókn á þessu hefur vakið mikla athygli.

Allnokkrar tegundir sveppa sem vaxa í náttúrunni innihalda efnið sílósíbin, sem veldur ofskynjunaráhrifum.
All­nokkrar teg­undir sveppa sem vaxa í nátt­úr­unni inni­halda efnið sílósíbin, sem veldur ofskynj­un­ar­á­hrifum. Mynd: Pexels

Sílósíbin, virka efnið í ofskynj­un­ar­sveppum, skil­aði árangri við að hjálpa ofdrykkju­fólki að draga úr áfeng­is­neyslu eða hætta alfarið, í klínískri rann­sókn sem fram­kvæmd var í Banda­ríkj­unum.

Nið­ur­stöð­urnar voru birtar á mið­viku­dag í JAMA, fræða­tíma­riti banda­rísku lækna­sam­tak­anna, og hafa vakið tölu­verða athygli.

Rann­sak­end­urnir gerðu til­raun á hópi alls 93 ein­stak­linga sem þjást af áfeng­is­sýki. Hún fór þannig fram að þátt­tak­endum var boðin 12 vikna sam­tals­með­ferð við áfeng­is­sýk­inni og í vikum 4 og 8, með mán­aðar milli­bili, var þáttak­end­unum ýmist gefið til­tölu­lega stór skammtur af sílósíbin (25-40 milli­grömm á hver 70 kíló lík­ams­þyngdar) eða lyf­leysa í töflu­formi í löngum hug­leiðslu­tíma.

Eftir að hafa inn­byrt ofskynj­un­ar­efnið eða lyf­leys­una var þátt­tak­endum gert að leggj­ast á sófa, með augun hulin og hlusta á tón­list í heyrn­ar­tólum.

Næstum helmingurinn hafði hætt að drekka

Nið­ur­stöð­urnar voru þær að 32 vikum eftir að fyrri lyfja­gjöfin fór fram hafði þeim ein­stak­lingum sem fengu sílósíbin gengið betur að losna undan áfeng­is­böl­inu.

Á þeim tíma sem lið­inn var frá fyrri hug­leiðslu­tím­anum höfðu þeir 49 ein­stak­lingar sem fengu sílósíbin drukkið mikið áfengi 9,7 pró­sent dag­anna, en þeir 43 sem fengu lyf­leys­una og voru í sam­an­burð­ar­hópnum drukku mikið 23,6 pró­sent dag­anna að með­al­tali.

Næstum helm­ingur þeirra sem fengu ofskynj­un­ar­efnið höfðu alfarið náð að hætta að drekka, miðað við 24 pró­sent þeirra sem voru í sam­an­burð­ar­hópnum og fengu lyf­leys­una með­fram sam­tals­með­ferð­inni.

[adspot]

Samkvæmt rann­sak­endum er þörf á frek­ari rann­sóknum á þessu, til þess að sjá hvort áhrifin séu langvar­andi og hvort sömu áhrif verði sýni­leg ef stærri hópur tekur þátt í rann­sókn á virkni sílósíbin í þessum til­gangi.

Lítið er vitað um það nákvæm­lega af hverju sílósíbín veldur þessum áhrifum, en þó er talið að virkni sílósíbín auki teng­ingar í heil­anum, að minnsta kosti til skamms tíma.

Í frétt Associated Press um rann­sókn­ina er haft eftir lækn­inum Michael Bogenschutz, sem leiðir rann­sókn­ar­deild ofskynj­un­ar­lyfja við New York-háskóla (NYU) og var í for­svari fyrir þessa klínísku rann­sókn, að nýjar teng­ingar verði til í heil­anum við inn­töku sílósíbín.

Kenning hans sem rann­sak­enda er sú, að ef sam­tals­með­ferð sé beitt á sama tíma og þessar nýju teng­ingar í heil­anum eru virkar, gæti verið hægt að venja heil­ann af slæmum ávönum og móta nýjar venjur og við­horf – jafn­vel til fram­búðar.

Ólöglegir víðast hvar en vöxtur í rannsóknum

Ofskynj­un­ar­sveppir eru ólög­legir víð­ast hvar. Hér á landi falla þeir undir lög um ávana- og fíkni­efni og neysla þeirra bönnuð með öllu.

Á und­an­förnum árum og ára­tugum hafa þó marg­vís­legar rann­sóknir farið fram á gildi virka efn­is­ins sílósíbín til með­höndl­unar á ýmsum þeim kvillum sem hrjá mann­kynið, til dæmis geð­rænum vanda­málum á borð við kvíða og þung­lyndi og svo fíkni­sjúk­dómum.

Háskólar erlendis hafa margir sett upp sér­stakar rann­sókn­ar­deildir til þess að skoða kosti ofskynj­un­ar­efna í lækn­inga­skyni og margir sér­fræð­ingar í geð­lækn­ingum binda vonir við að geta farið að nýta slík efni í með­ferðum sínum á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár