Engin aukning í sjálfsvígum í fyrstu bylgju COVID-19

Ólíkt öðrum stórum efnahags­áföllum fjölgaði sjálfs­vígum ekki í kjölfar kreppunnar sem fylgdi fyrstu bylgju heims­faraldursins í fyrra í hátekju­löndum, samkvæmt nýrri rannsókn.

Fjöldi sjálfs­víga jókst ekki í hátekju­löndum á vormánuðum í fyrra, þegar heims­kreppa skall á vegna útbreiðslu kórónu­veirunnar og sótt­varnar­aðgerða gegn henni. Þetta eru niður­stöður rann­sóknar sem birt var nýlega í lækna­tímaritinu Lancet Psychiatry.

Rann­sóknin fól í sér gerð spálíkans fyrir sjálfsvígs­tíðni í yfir 20 löndum eða lands­hlutum í Evrópu, Banda­ríkjunum og Asíu frá apríl til júlíloka í fyrra. Niður­stöður líkansins voru svo bornar saman við sjálfsvígs­tölur á tíma­bilinu til að sjá hvort faraldurinn og kreppan sem honum fylgdi hafi leitt til fleiri sjálfs­víga.

Samkvæmt rann­sókninni mátti ekki greina neina aukningu í fjölda sjálfs­víga í neinum af lands­svæðunum sem voru athuguð. Þvert á móti virðist sem sjálfs­vígum hafi fækkað í mörgum löndum, til að mynda mátti greina 6 prósenta fækkun í Suður-Kóreu.

Ekki má heldur greina neina aukningu sjálfs­víga hér á landi á sama tímabili, miðað við bráðabirgðartölur Land­læknis, sem gefnar voru út í nóvember í fyrra. Samkvæmt þeim var fjöldi sjálfs­víga á fyrri hluta síðasta árs lítillega undir meðaltali áranna 2015-2019.

Þessi þróun er ólík þeirri sem átti sér stað í kjölfar fjármála­hrunsins árið 2008, en þá fjölgaði sjálfs­vígum töluvert í Evrópu og Banda­ríkjunum. Aukningin virtist vera meiri í þeim löndum þar sem atvinnu­leysi jókst hvað mest.

Keith Hawton, einn meðhöfunda rann­sóknarinnar og formaður stofnunar um sjálfsvígs­rannsóknir hjá Oxford-háskóla, nefnir nokkrar mögulegar ástæður fyrir því að sjálfs­vígum hafi ekki fjölgað í byrjun þessarar kreppu í viðtali við The Guardian.

Að mati hans gæti verið að viðamikil efnahags­viðbrögð stjórn­valda í fyrra, sem og aukinn stuðningur við geðheil­brigðis­kerfið gæti hafa komið í veg fyrir viðlíka aukningu í sjálfs­vígum og þeim sem gerast oft á tímum efnahags­áfalls. Þó bætir hann við að langtíma­afleiðingar efnahags­áfallsins séu ekki enn ljósar, mögulegt sé að sjálfs­vígum fari að fjölga þegar líða tekur á kreppuna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár