United Silicon fær áframhaldandi greiðslustöðvun til 22. janúar

United Silicon fékk greiðslu­stöðvun sína fram­lengda í dag. Arion banki greiðir um 200 milljónir króna á mánuði vegna rekstursins og hefur þegar afskrifað 4,8 milljarða króna.

Héraðs­dómur Reykjanes samþykkti í dag að veita United Silicon áfram­haldandi greiðslu­stöðvun til 22. janúar 2018. Fyrri greiðslu­stöðvun félagsins rann út í dag. Samkvæmt upplýsingum frá United Silicon var ákvörðunin tekin á stjórnar­fundi félagsins fyrir helgi og samþykkti Héraðs­dómur Reykjanes þá beiðni í dag.

United Silicon rekur kís­­il­­málm­­verk­smiðju í Helg­u­vík. Félagið óskaði eftir greiðslu­­stöðvun 14. ágúst síð­­ast­lið­inn. Ástæðan eru erf­ið­­leikar í rekstri kís­­il­­málm­­verk­smiðj­unni sem hóf fram­­leiðslu í nóv­­em­ber 2016, og rekja má til síend­­ur­­tek­inna bil­ana í bún­­aði sem hafa valdið félaginu miklu tjóni. Gerð­­ar­­dómur í deilu félagsins við ÍAV hf., sem féll fyrr á þessu ári, jók enn á óvissu félagsins. Sam­­kvæmt honum þarf United Silicon að greiða ÍAV um einn millj­­arð króna.

Marga millj­arða kostar að ljúka upp­bygg­ingu verk­smiðj­unnar - sem var ekki til­búin þegar hún var gang­sett - og koma henni í gang á nýjan leik, ef það fæst til þess leyfi, en Umhverf­is­stofnun lét loka verk­smiðj­unni, meðal ann­ars vegna kvart­ana íbúa í nærum­hverfi yfir meng­un.

Í svari frá United Silicon sem barst Kjarnanum í dag vegna fyrir­spurnar um fram­lengingu greiðslu­stöðvunarinnar segir að á því tímabili sem liðið er frá því að hún var samþykkt upphaf­lega hafi verið lögð mikil vinna verið lögð í nauðsynlegar greiningar á starfsemi United Silicon og farið yfir leiðir til úrbóta. „Arion banki hefur fjár­magnað þá vinnu sem og aðra starfsemi félagsins. Niður­staða tæknilegra úttekta felur í sér umtals­verða fjár­festinga­þörf í starfsemi verksmiðjunnar. Þá hefur bókhalds­rannsókn leitt í ljós meint fjármuna­brot fyrr­verandi forstjóra fyrir­tækisins. Meint brot hafa verið kærð til héraðs­saksóknara og eru þau í rannsókn þar. Um sextíu manns eru að störfum hjá verksmiðjunni en frá því fram­leiðsla var stöðvuð í byrjun september hefur starfs­fólkið meðal annars sinnt viðhaldi og tíminn verið nýttur í að styrkja það í störfum.“

Mikið tap Arion og lífeyrissjóða

United Silicon glímir við mikla rekstrar­erfiðleika og mikil óvissa ríkir um hvort félagið geti haldið áfram rekstri. Hluthafar og kröfu­hafar félagsins hafa þurft að afskrifa stórar upphæðir vegna United Silicon það sem af er þessu ári. Arion banki hefur til að mynda þegar afskrifað 4,8 millj­arða króna vegna verk­efn­is­ins. Bank­inn hefur að mestu tekið yfir hlutafé en útistand­andi skuld­bind­ingar nema ennþá 5,4 millj­örð­um, sam­kvæmt síð­asta birta upp­gjöri bank­ans. Arion banki hefur auk þess ábyrgst rekst­ur­inn á greiðslu­stöðv­un­ar­tím­anum en hann hefur borgað um 200 millj­ónir króna á mán­uði vegna hans, frá því greiðslu­stöðv­un­ar­tím­inn hófst í ágúst.

Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, sem fjár­festi 1.178 millj­ónum króna í United Silicon, hefur færð niður virði þeirra hluta­bréfa og skulda­bréfa sem sjóð­ur­inn á í fyr­ir­tæk­inu um 90 pró­sent. Um var­úð­ar­nið­ur­færslu er að ræða, og nemur hún rúmum millj­arði króna. Sömu sögu er að segja af Eft­ir­launa­sjóði félags íslenskra atvinnu­flug­manna (EFÍA). Þar nemur nið­ur­færslan einnig 90 pró­sent­um. Líf­eyr­is­sjóð starfs­manna Bún­að­ar­banka Íslands (LSBÍ) fjár­festir einnig í verk­efninu. Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­fólk bank­ans gegnir stjórn­un­ar­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­stöðvum hans í Borg­ar­túni.

Þá setti lífeyris­sjóðurinn Festa 875 milljónir króna í United Silicon. Hann hefur einnig framkvæmt varúðar­niðurfærslu vegna verk­efnisins.

Í rannsókn

Fyrr­ver­andi for­stjóri og for­sprakki United Silicon, Magnús Garðarson, hefur verið kærður til emb­ættis Hér­aðs­sak­sókn­ara. Stjórn United Silicon gerði það í sam­ráði við lög­­­mann félagsins og aðstoð­­ar­­mann í greiðslu­­stöðv­un, og send kæru til Hér­aðs­sak­sókn­ara um mög­u­­lega refsi­verða hátt­­semi Magn­ús­ar.

Í til­­kynn­ingu segir að kæran byggi á „grun um stór­­felld auð­g­un­­ar­brot og skjala­fals allt frá árinu 2014 og er lögð fram í sam­ráði við aðra hags­muna­að­ila. Upp­­lýs­ing­­arnar sem nú koma fram eru afrakstur af vinnu við end­­ur­­skipu­lagn­ingu félags­­ins sem leidd hefur verið af nýrri stjórn sem tók við í febr­­ú­­ar. Hinn grun­aði hefur enga aðkomu haft að rekstri eða stjórnun félags­­ins síðan í mars. Stjórn félags­­ins mun vinna með yfir­­völdum að rann­­sókn máls­ins svo að upp­­lýsa megi það sem fyrst.“ Eru upp­hæðir sagðar hlaupa hund­ruð millj­óna króna.

Magnús hefur sjálfur neitað alfarið sök.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár