Helguvíkurmartröðin heldur áfram

Arion banki á 16 pró­sent í United Silicon og er helsti lána­drott­inn félags­ins. Líf­eyr­is­sjóðir eiga einnig hlut, Lands­virkjun selur verk­smiðj­unni raf­magn, ÍAV á inni hjá henni millj­arð og Reykja­nes­bær reikn­aði með tekjum vegna hennar.

Félagið sem á verk­smiðju United Silicon, einnig þekkt sem Sameinað Silicon, í Helguvík hefur fengið greiðslu­stöðvun og ætlar í nauða­samn­ings­gerð við stærstu kröfu­hafa sína. Verk­smiðjan hóf starf­semi í nóv­em­ber í fyrra og hefur því ein­ungis verið starf­andi í rúma sjö mán­uði. Ljóst er að áhrif greiðslu­stöðv­un­ar­innar hér­lendis – og nauða­samn­ing­anna ef þeir nást – verða víð­tæk. Arion banki fjár­magn­aði bygg­ingu verk­smiðj­unnar, Lands­virkjun selur henni raf­magn og bæði Arion, íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru á meðal eig­enda, Reykja­nes­bær hefur umtals­verðar tekjur af rekstri hennar og Íslenskir Aðal­verk­takar (ÍAV) eiga kröfu upp á millj­arð króna á United Silicon.

Eign­ar­haldið á félag­inu er reyndar að stóru leyti á huldu. Á heima­síðu United Silicon segir að félagið sé í meiri­hluta­eigu Íslend­inga. En þegar Kjarninn hafði sam­band við Krist­leif Andr­és­son, tals­mann félags­ins, til að fá hlut­haf­alista United Silicon sagði hann að ekk­ert yrði gefið upp um eign­ar­haldið að svo stöddu. Hjá Arion banka feng­ust þær upp­lýs­ingar að bank­inn eigi nú um 16 pró­sent hlut auk þess sem hann er helsti lán­ar­drott­inn félags­ins. Í maí greindi RÚV frá því að Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn ætti 5,6 pró­sent hlut, Festa líf­eyr­is­sjóður 3,7 pró­sent og eft­ir­launa­sjóður atvinnu­flug­manna rúm­lega hálft pró­sent, að lok­inni hluta­fjár­aukn­ingu sem fram­kvæmd var i apríl 2017.

Allir ofan­greindir íslensku aðilar verða fyrir beinum og nei­kvæðum fjár­hags­legum áhrifum vegna stöðu United Silicon. Hversu miklum á eftir að koma í ljós.

Draumur stjórnmálamanna verður að matröð

Reykja­nes­bær varð fyrir miklum búsifjum þegar Banda­ríkja­her hvarf frá land­inu árið 2006. Herinn var enda gríð­ar­lega stór atvinnu­veit­andi og sveit­ar­fé­lögin á Suð­ur­nesjum höfðu af honum marg­hátt­aðar tekjur. Til að bregð­ast við þeirri stöðu hófu stjórn­mála­menn að beita sér fyrir upp­bygg­ingu iðn­að­ar­svæðis í Helguvík. Sam­hliða gekkst Reykja­nes­bær í ábyrg fyrir millj­arða króna ­upp­bygg­ingu hafnar á svæð­inu. Hug­myndin var sú að höfnin myndi síðar skila sveit­ar­fé­lag­inu miklum tekjum þegar stór­iðju­fyr­ir­tæki hæfu starf­semi sína þar.

Sú áætlun fór ekki alveg eins og upp var lagt. Þess í stað end­aði Reykja­nes­bær sem eitt skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins og rekstur þess und­an­farin ár hefur ver­ið af­leit­ur. Á tíma­bil­inu 2003 til 2014 var A-hluti Reykja­nes­bæjar rek­inn í tapi öll árin utan eins, það var árið 2010.

Í októ­ber ­2015 sendi sveit­ar­fé­lagið til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands þar sem sagði að nauð­syn­legt væri að það næði sam­komu­lagi við „helstu kröfu­hafa um veru­lega nið­ur­fell­ingu skulda[...]­Ná­ist ekki samn­ingar við kröfu­hafa um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu bæj­ar­fé­lags­ins og stofn­ana þess verður sam­kvæmt sveita­stjórn­ar­lögum óskað eftir því að bæj­ar­fé­lag­inu verði skip­uð fjár­hags­stjórn“.

Af því varð ekki en sveit­ar­fé­lagið hefur m.a. þurft að leggja auknar skatt­byrðar á íbúa sína til að laga hina afleitu fjár­hags­stöðu. Og stór hluti þeirra skulda sem þurfti að semja um voru vegna lána sem tekin voru vegna upp­bygg­ingu hafn­ar­innar í Helguvík.

Í dag er afrakst­ur­inn sá að Norðurál hefur reist álver að hluta í Helguvík en er ekki með orku til að stand­setja það, og mun ekki fá hana. Sá draumur var end­an­lega úti þegar orku­sölu­samn­ingur Norð­ur­áls við HS Orku var felldur úr gildi í lok síð­asta árs.

Hitt stór­iðju­fyr­ir­tækið á svæð­inu er síðan United Silicon, sem opn­aði kís­il­málm­verk­smiðj­una sína í nóv­em­ber. Síðan þá hafa íbúar kvartað stans­laust undan mengun, enda verk­smiðjan stað­sett mjög nálægt byggð, kviknað hefur í verk­smiðj­unni og Umhverf­is­stofnun hefur lokað henni tíma­bundið. Í gær var svo til­kynnt um að félagið sem á verk­smiðj­una sé komið í greiðslu­stöðvun.

Höfnin, sem Reykja­nes­bær gekkst í ábyrgð upp á marga millj­arða króna fyrir, hefur aldrei skilað þeim tekjum sem hún­ átti að gera og hvorki Reykja­nes­höfn né Reykja­nes­bær hafa ráðið við afborg­anir af lánum vegna hennar.

Draum­ur­inn um iðn­að­ar­svæðið í Helguvík sem bjarg­vætt Reykja­nes­bæjar hefur því snú­ist upp í algjöra martröð.

Dregið verulega úr ánægjunni

Í júlí 2014 var send frétta­til­kynn­ing um að Lands­virkjun og United Silicon hefðu náð saman um að Lands­virkjun myndi útvega kís­il­málm­verk­smiðj­unni 35 MW af orku fyrir starf­semi sína. Í til­kynn­ing­unni sagði að fjár­mögnun verk­efn­is­ins væri tryggð og yrði í höndum Arion banka í formi hefð­bund­innar verk­efna- og láns­fjár­mögn­unar ann­ars vegar og útgáfu skulda­bréfa á inn­lendum mark­aði hins vegar. Rekstur átti að hefj­ast 1.apríl 2016. Kostn­að­ur­inn við fyrsta áfanga fram­kvæmd­ar­innar var metin á um 12 millj­arða króna og var fjár­magn­aður með eigin fé og lán­töku frá Arion banka. Heild­ar­fjár­fest­ingin, sem mið­aði við fjóra ofna í rekstri, var um 35 millj­arðar króna.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, og Magnús Garðarsson, þáverandi framkvæmdastjóri United Silicon hf., þegar fyrirvörum í raforkusölusamningnum var aflétt í júlí 2014.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, og Magnús Garð­ars­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóri United Silicon hf., þegar fyr­ir­vörum í raf­orku­sölu­samn­ingnum var aflétt í júlí 2014.

Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, sagði af þessu til­efni að fyr­ir­tækið væri þess full­visst að kís­il­málm­fram­leiðsla ætti góða fram­tíð­ar­mögu­leika á Íslandi þar sem aðstæður hent­uðu iðn­að­inum einkar vel. „Verk­efnið mun styrkja iðn­þróun á Íslandi og einnig er jákvætt að hér er komið á upp­bygg­ingu í Helguvík þar sem aðstæður eru góðar fyrir slíka starf­semi“.

Hösk­uldur H. Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, sagði að það væri „virki­lega ánægju­legt fyrir Arion banka að koma koma með svo afger­andi hætti að jafn stóru og mik­il­vægu upp­bygg­ing­ar­verk­efni sem bygg­ing kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon í Helguvík er“.

Í lok ágúst sama ár var skóflustunga tekin að verk­smiðj­unni. Á meðal þeirra sem fram­kvæmdu hana voru Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, þáver­andi iðn­að­ar­ráð­herra.

Íslenskir Aðal­verk­takar (ÍAV) var ráð­inn sem aðal­verk­taki verk­efn­is­ins en end­aði með því að leggja niður störf um mitt ár 2016 vegna van­efnda. Vand­ræðin voru byrjuð áður en verk­smiðjan var gang­sett.

Nú, þremur árum síðar verður því að telj­ast mjög ólík­legt að þeir sem að verk­efn­inu koma telji það enn „virki­lega ánægju­legt“.

Greiðslustöðvun samþykkt

Í lok júlí komst gerð­ar­dómur að þeirri nið­ur­stöðu að United Silicon ætti að greiða ÍAV ógreidda reikn­inga upp á rúm­lega einn millj­arð króna. Sú nið­ur­staða skiptir, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans, miklu máli í þeirri ákvörðun sem til­kynnt var um í gær. Þá greindi félagið frá því að Hér­aðs­dómur Reykja­ness hefði veitt stjórn þess heim­ild til greiðslu­stöðv­unar sem miðar að því að ná bind­andi nauða­samn­ingum við lán­ar­drottna.

Í til­kynn­ingu vegna þessa sagði að ástæð­urnar væru „erf­ið­leikar í rekstri kís­il­málm­verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins í Helgu­vík sem rekja má til síend­ur­tek­inna bil­ana í bún­aði sem valdið hafa félag­inu miklu tjón­i.“ Vegna þess­ara rekstr­ar­erf­ið­leika hafi verið fyr­ir­sjá­an­legt að félagið myndi að óbreyttu eiga erfitt með að standa í skilum við lán­ar­drottna og að yfir­vof­andi séu aðgerðir ein­stakra kröfu­hafa ef ekki verður brugð­ist við án taf­ar. „Ný­fall­inn gerð­ar­dómur í deilu félags­ins við ÍAV eykur enn á þessa óvissu en samn­ingar um upp­gjör þeirra skulda sem þar var tek­ist á um hafa ekki borið árang­ur.“

Í til­kynn­ing­unni sagði að hlut­hafar hafi frá því að verk­smiðjan tók til starfa lagt félag­inu til við­bót­ar­hlutafé til að fjár­magna rekst­ur­inn og end­ur­bætur á bún­aði og almennri aðstöðu fyrir starfs­fólk. „Ljóst er að enn frek­ari end­ur­bætur á bún­aði og aðstöðu eru nauð­syn­legar til að verk­smiðjan geti fram­leitt afurðir í því magni og af þeim gæðum sem áætlað var í upp­hafi og án þeirrar lykta­meng­unar sem íbúar í nágrenn­inu hafa kvartað und­an.“

Úr kísilmálmverksmiðju United Silicon.
Úr kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon.

Stjórn félags­ins taki alvar­lega þá ábyrgð sem fylgir því að reka stórt fyr­ir­tæki með mik­inn fjölda starfs­manna sem skapi tekjur fyrir nær­sam­fé­lag­ið. „Nauða­samn­ingar eru besta leiðin til að verja þau störf og tryggja að hægt sé að halda upp­bygg­ingu starf­sem­innar áfram á þann veg að fyr­ir­tækið geti starfað í sam­ræmi við starfs­leyfi og í góðri sátt við umhverf­ið.“

Leynd ríkir um eignarhaldið

Kjarninn leit­aði upp­lýs­inga hjá United Silicon, einnig þekkt sem Sameinað Silicon, um hvernig eig­enda­hóp­ur­inn, sem óhjá­kvæmi­lega verður fyrir miklum áhrifum vegna stöð­unnar sem er uppi, væri sam­settur. Fyrir liggur að rekst­ur­inn er að mestu í eigu félags sem er skráð í Hollandi en engar upp­lýs­ingar um hlut­hafa­skrá er að finna í íslenskri fyr­ir­tækja­skrá. Krist­leifur Andr­és­son, tals­maður United Silicon, sagði að upp­lýs­ingar um eign­ar­haldið verði ekki gefnar upp að svo stöddu.

Arion banki er, líkt og áður sagði, helsti lán­ar­drott­inn United Silicon. Haraldur Guðni Eiðsson, upp­lýs­inga­full­trúi bank­ans, segir í sam­tali við Kjarnann að bank­inn sé líka minni­hluta­eig­andi í félag­inu með um 16 pró­sent eign­ar­hlut. „Nú hefur Sameinað silicon svig­rúm til að vinna að fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu og von­andi mun sú vinna ganga vel. Eðli máls­ins sam­kvæmt fylgist bank­inn náið með þróun mála og leggur sitt af mörkum við að leita lausna á þeim vanda sem félagið glímir við.“

Arion banki mun birta hálfs­árs­upp­gjör sitt í næstu viku. Við því má búast að þar verði fjallað um áhrif stöðu United Silicon á bank­ann og hvort fram­kvæmd verði var­úð­ar­nið­ur­færsla í bókum bank­ans vegna hennar. Haraldur Guðni seg­ist hins vegar ekk­ert geta tjáð sig um það fyrr en að árs­hluta­reikn­ingur bank­ans verði birtur.

Kjarninn óskaði eftir við­brögðum frá Lands­virkjun vegna greiðslu­stöðv­unar United Silicon. Í skrif­legu svari fyr­ir­tæk­is­ins segir að í gildi sé orku­sölu­samn­ingur milli Lands­virkj­unar og United Silicon. Sam­starfið hafi verið gott og United Silicon hafi staðið við samn­inga og sam­komu­lag sem hefur verið gert við Land­virkjun. „Kís­il­verið er að taka raf­magn og hefur Lands­virkjun tryggar ábyrgðir fyrir greiðslum frá United Silicon sam­kvæmt samn­ingum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár