Draumur um álver í Helguvík endanlega úti

Í aðdrag­anda hruns­ins ríkti ákveðið orku­æði á Íslandi. Það tók á sig ýmsar mynd­ir. Ein var sú að íslenska ríkið ákvað að Lands­virkjun skyldi byggja 690 megawatta vatns­afls­virkjun við Kára­hnjúka til að sjá álveri Alcoa í Reyð­ar­firði fyrir mjög ódýrri raf­orku til árs­ins 2048.

Önnur var sú að áhættu­sækn­ustu fjár­festar á Íslandi og vafasöm póli­tík, með millj­arða króna í lánsfé frá Glitni, voru langt komin með að búa til útrás­ar­fyr­ir­tæki úr íslenskum orku­iðn­aði þegar Geysi Green Energy og Reykja­vík Energy Invest var slegið saman síðla árs 2007.

Sam­hliða var búið að skipu­leggja virkjun allskyns auð­linda langt fram í tím­ann og kaupa túrbínur til að skapa orku úr þeim án þess að til­skilin leyfi eða fjár­mögnun lægju fyrir.

Við hrunið breytt­ist þetta allt. Öll þrjú orku­fyr­ir­tæki lands­ins fóru í ákveðna end­ur­skoðun á stefnu sinni. HS Orka komst að nán­ast öllu leyti í hendur erlendra aðila sem höfðu ekki áhuga á að selja orku á slikk til erlendrar stór­iðju, Orku­veita Reykja­víkur þurfti að leggja í erf­iðan sam­drátt­ar­leið­angur til að bjarga rekstri sínum eftir oflát­ungs­hátt síð­ari ára og Lands­virkjun fór að horfa á allt öðru­vísi við­skipta­vini, sem voru til­búnir að borga hærra verð, en áður. Alþingi sam­þykkti meira að segja fyrstu ramma­á­ætlun um vernd og orku­nýt­ingu lands­svæða 14. jan­úar 2013. Með henni voru hug­myndir um orku­nýt­ingu flokk­aðar í nýt­ing­ar-, vernd­ar- eða bið­flokk og átti áætl­unin að vera mála­miðlun milli ólíkra sjón­ar­miða.

Sá tími þegar alþjóð­leg álfyr­ir­tæki gátu komið til Íslands og gengið að ódýrri orku var lið­inn. Svona hér um bil. Eftir stóð ein for­tíð­ar­synd; orku­sölu­samn­ingur sem HS Orka gerði við Norðurál vegna bygg­ingu álvers í Helguvík. Samn­ing­ur­inn var svo lélegur fyrir HS Orku að stað­fest var að hann gæti ekki skilað fyr­ir­tæk­inu arð­semi. Það hefur eytt bróð­ur­parti síð­ustu níu ára í að reyna að losna undan honum. Það tókst um síð­ustu mán­að­ar­mót. Og með því hvarf pípu­draum­ur­inn um fleiri álver á Íslandi.

Pólitískur þrýstingur skapast

Lengi hefur verið nokkuð ljóst að ólík­leg sé að nýtt álver rísi á Íslandi. Fyrir því eru nokkrar ástæður. Sú helsta er að heims­mark­aðs­verð á áli er allt og lágt til þess að það borgi sig. Í júní 2013 var Júl­íus Jóns­son, þáver­andi for­stjóri HS Orku, í við­tali við Við­skipta­blaðið. Þar sagði hann að álverð væri ein­fald­lega allt of lágt til að álver í Helgu­vík gæti borið sig og að virkj­anir sem ráð­ast þyrfti í til að sjá því fyrir orku gætu orðið arð­bær­ar. „Vanda­málið í dag snýr helst að því að álverð er í kringum 1.800-1.900 Banda­ríkja­dalir á tonn. Með slíku verði sé ég ekki fyrir mér að þeir geti rekið arð­bært álver og við á sama tíma arð­bærar virkj­an­ir. Þetta er ekki að skapa nægar tekjur til að ganga upp. Miðað við það sem þeir eru vilj­ugir til að greiða fyrir ork­una þá gengur það ekki upp hjá okkur og miðað við það sem við þurfum að fá greitt þá gengur það ekki upp hjá þeim,“ sagði Júl­í­us.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, sem enn er iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, var ekki sam­mála þessu mati. Á haust­fundi Lands­virkj­unar 2013 sagð­ist hún vera „orðin ansi óþreyju­full og ég vil fara að sjá árangur og að verk­efnin verði að veru­leika. Tæki­færin eru svo sann­ar­lega til stað­ar. Ég get nefnt álverið í Helgu­vík, fram­kvæmd sem ekki bara mun skipta Suð­ur­nesja­menn máli heldur lands­menn alla og hefur beðið allt of leng­i“. Þess má geta að Ragn­heiður Elín er sjálf af Suð­ur­nesj­unum.

Í des­em­ber 2013 svar­aði Hörður Arn­ar­son, for­stjóri Lands­virkj­un­ar, fyrir sig í við­tali við RÚV og sagði að heims­mark­aðs­verð á áli þyrfti að hækka um 30 til 40 pró­sent til þess að hægt yrði að ljúka samn­ingum um raf­orku­fram­leiðslu fyrir álver Norð­ur­áls í Helgu­vík. Þá var heims­mark­aðs­verð á áli, miðað við þriggja mán­aða fram­virka samn­inga, um 1.739 dalir á tonn­ið. Í dag er það 1.747 dalir á tonnið, eða nán­ast það sama.

Skóflustunga án þess að orka væri tryggð

Skóflustunga fyr­ir­hug­aðs álvers Norð­ur­áls, í eigu Century Aluminum, í Helgu­vík, var tekin 6. júní 2008, eða fyrir rúmum níu árum síð­an. Gang­setja átti álverið árið 2010, fyrir rúmum sex árum síð­an. Full­byggt álver í Helgu­vík átti að vera með fram­leiðslu­getu á bil­inu 270 til 360 þús­und tonn. Til þess að byggja stærri útgáfu þess þyrfti rúm­lega 600 megawött af orku. Um 150 megawött áttu að koma frá HS Orku, sem und­ir­rit­aði orku­sölu­samn­ing þess efnis í apríl 2007. Orku­veita Reykja­víkur skuld­batt sig einnig til að selja orku til verk­efn­is­ins og hóf raunar afhend­ingu á henni á árinu 2011, þótt ekk­ert álver væri ris­ið.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, þrýsti á Landsvirkjun að láta verkefni eins og álver í Helguvík verða að veruleika. Henni varð ekki að ósk sinni.
Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, þrýsti á Lands­virkjun að láta verk­efni eins og álver í Helguvík verða að veru­leika. Henni varð ekki að ósk sinni.

Samn­ing­ur­inn var, væg­ast sagt óhag­stæður fyrir HS Orku. Fyr­ir­tækið hefur nán­ast allan þann tíma sem liðin er frá und­ir­ritun hans reynt að losna undan samn­ingnum. Fyrir því voru tvær ástæður. Sú fyrri er að hann var ein­fald­lega það slakur að samn­ing­ur­inn gat ekki skilað HS Orku arð­semi. Hin síð­ari sú að Norðurál var ekk­ert að flýta sér við að klára að byggja álverið í Helguvík og taka við orkunni. 

Mich­­ael Bless, for­­stjóri Century Aluminum, var spurður út í Helg­u­vík­­­ur­ál­verið á fundi með fjár­­­festum í til­­efni af hálf­s­ár­s­­upp­­­gjöri fyr­ir­tæk­is­ins í júlí 2014. Þar sagði hann að það væri engin breyt­ing á stöðu verk­efn­is­ins á milli árs­fjórð­unga. „Það sem við virki­­lega þurfum er að rík­­is­orku­­fyr­ir­tæk­ið, Lands­­virkj­un, standi upp í leið­­toga­hlut­verk í þessu verk­efni ef við ætlum að koma hlut­unum í gang í náinni fram­­tíð“. Það var því orðin for­senda þess að álverið myndi verða byggt að Lands­virkjun seldi til þess orku.

Líkt og áður sagði eru engar líkur á því. Til þess þyrfti heims­mark­aðs­verð á áli að hækka um tugi pró­senta auk þess sem Lands­virkjun telur sig ein­ungis eiga til reiðu lítið brot af þeirri orku sem Helgu­vík­ur­ál­ver þyrfti.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sló málið síðan enn frekar út af borð­inu í lok sept­em­ber 2016 við sér­stakar umræður á Alþingi. Þar sagði hann um fyr­ir­hugað álver í Helgu­vík: „ Ég sé ekki að það ál­ver sé að verða sér út um raf­­­magn. Það virð­ist ekki vera að fæð­ast nein lausn á því og að öðru leyti þá sé ég ekki að það sé afl til að stefna á slík verk­efni á næst­unn­i.“ Hann bætti við að hann sæi ekki fyrir sér að álverum muni yfir höfuð fjölga á Íslandi í fram­tíð­inni.

Alltaf gott að vera vitur eftir á

Und­an­farin ár hefur HS Orka reynt allt sem fyr­ir­tækið getur til að losna undan samn­ingnum, enda bindur hann þá orku sem mögu­legt væri að fá út þeim virkj­ana­kostum þess sem eru í nýt­ing­ar­flokki. Og hann er nán­ast brjál­æð­is­lega óhag­kvæm­ur. Ef HS Orka myndi selja Norð­ur­áli orku til verk­efn­is­ins sam­kvæmt samn­ingnum væri verðið sem fyrir feng­ist langt frá því að skila við­un­andi arð­semi fyrir orku­fyr­ir­tæk­ið. Gerð­ar­dómur í Sví­þjóð stað­festi þann skiln­ing í des­em­ber 2011.

HS Orka stefndi Norð­ur­áli aftur fyrir gerð­ar­dóm í sum­arið 2014 til að reyna að slíta samn­ingnum. Norð­urál tók til varna í því máli og vill endi­lega halda orku­sölu­samn­ingnum í gildi, þrátt fyrir að mála­rekst­ur­inn kosti báða aðila hund­ruð millj­óna króna og standi í veg fyrir að orka sem aug­ljós­lega er ekki að fara í álver í Helgu­vík nýt­ist í annarri upp­bygg­ingu á Íslandi.

Nið­ur­staðan kom loks um síð­ustu mán­aða­mót. Hún var á þá leið að sökum til­tek­inna kring­um­stæðna sé samn­ing­ur­inn ekki lengur í gildi og að lok samn­ings­ins séu ekki af völdum HS Orku. Þá var kröfum Norð­ur­áls Helgu­víkur í mál­inu hafn­að. Fyr­ir­tækið hefur þó ekki form­lega slegið af áformin um að klára bygg­ingu álvers­ins. Í frétt á vef Norð­ur­áls sem birt­ist 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn var haft eftir Ragnari Guð­munds­syni, for­stjóra Norð­ur­áls, að nið­ur­staða gerð­ar­dóms­ins væru von­brigði. „Við munum nú fara ítar­lega yfir for­sendur úrskurð­ar­ins og meta út frá því hvaða mögu­leikar eru fyrir hendi. Þá munum við kanna hvort mögu­legt sé að afla orku til verk­efn­is­ins í Helguvík eftir öðrum leiðum.“

Ragn­heiður Elín, sem hafði barist hart fyrir álveri í Helguvík árum saman, við­ur­kenndi það í við­tali við RÚV 3. des­em­ber að lík­lega væri álver í Helguvík úr sög­unni, þótt að ákvörðun um það væri ekki sín. Aðspurð hvort það hafi verið mis­tök að leggja ofurá­herslu á bygg­ingu álvers­ins sagði hún: „Það er alltaf gott og auð­velt að vera vitur eftir á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið undanfarið ár