Vildi ekki að fjallað yrði um mál Roberts Downey

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, formaður allsherjar- og menntamála­nefndar Alþingis, lagðist gegn því að fjallað yrði um uppreist æru Roberts Downey á opnum fundi nefndarinnar, en dró í land eftir að nefnda­svið Alþingis skilaði áliti um málið.

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, formaður allsherjar- og menntamála­nefndar Alþingis, beindi því til þingmanna nefndarinnar í síðustu viku að ekki mætti ræða efnislega um uppreist æru barna­níðingsins Robert Downey á opnum fundi nefndarinnar sem fram fer á morgun. 

Eftir að Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingkona Pírata, óskaði eftir rökstuðningi Áslaugar fyrir ákvörðuninni og nefnda­sviði Alþingis var falið að vinna minnis­blað um málið féll nefndar­formaðurinn frá þessari kröfu. Taldi nefnda­sviðið að nefndar­menn hefðu rétt til þess að fara fram á og ræða upplýsingar um uppreist æru einstakra aðila. Þá væri umfjöllun stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar um uppreist æru ekki til þess fallin að binda hendur allsherjar- og menntamála­nefndar að því er varðar umræðu um málið. 

Stundin hafði samband við Áslaugu og spurði hvers vegna ekki mætti ræða „efnislega um máls­meðferðina þegar Robert Downey var veitt uppreist æru“, sbr. frétt Vísis um málið, og hvort hún teldi að þing­mönnum nefndarinnar og ráðherra væri ekki treystandi til að ræða málin innan marka þess sem er löglegt og viðeigandi. 

Í svari Áslaugar sem barst í morgun vísaði hún til 5. mgr. 19. gr. þing­skaparlaga, en þar segir að óheimilt sé „að miðla upplýsingum á opnum fundi, eða vísa til þeirra, sem eiga að fara leynt samkvæmt reglum um þagnar­skyldu eða upplýsinga­lögum“. Þá benti hún á að stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd væri nú þegar með mál Roberts Downey til umfjöllunar. 

Skömmu síðar kom hún fram í viðtali við RÚV og sagði að nefndar­mönnum væri „að sjálfsögðu heimilt að spyrja að hverju sem er“, en þar sem fundurinn væri opinn gæti dómsmála­ráðherra þurft að vísa til trúnaðar­skyldu í því máli í einhverjum tilvikum. Þá kom fram að Áslaug hefði orðið við beiðni Þórhildar Sunnu um að Bergi Þór Ingólfs­syni, föður eins af brota­þolum Roberts Downey, yrði boðið á fundinn. 

Þegar Stundin hafði samband við Þórhildi Sunnu fagnaði hún þessu og sagði þetta bera merki um að þingmenn meirihlutans virtust loks tilbúnir að leggja við hlustir og taka á þessu máli á sann­gjarnan og gagnsæjan hátt.

Andrés Ingi Jónsson, fulltrúi Vinstri grænna í nefndinni, segir í samtali við Stundina að þótt fundur allsherjar- og menntamála­nefndar muni eflaust að mestu snúast um hvernig breyta megi reglum um uppreist æru til framtíðar, þá eigi sú umræða sér ekki stað í tómarúmi. Mál Roberts Downey og umræðan sem skapaðist í kringum það sé í raun ástæða þess að boðað var til fundarins og ekki sé hægt að horfa framhjá því.

Veiting uppreistar æru hefur verið talsvert til umræðu undan­farnar vikur eftir að greint var frá því að Robert Downey, sem áður hét Róbert Árni Hreiðarsson, hefði verið veitt „óflekkað mannorð“ með stað­festingu forseta Íslands og dómsmála­ráðherra. Robert var dæmdur í þriggja ára fangelsi árið 2008 fyrir að brjóta gegn fjórum stúlkum, einni sem var fjórtán ára þegar brotin voru framin og þremur sem voru fimmtán ára. Árið 2010 var hann dæmdur á ný fyrir brot gegn fimmtu stúlkunni án þess að honum væri gerð refsing í því máli. 

Stundin greindi svo frá því í síðustu viku að maður að nafni Hjalti Sigurjón Hauksson hefði fengið uppreist æru sama dag og Downey. Hjalti var dæmdur árið 2004 fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni nær daglega í 12 ár frá því hún var um fimm ára gömul.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár