Golfklúbbur Trumps dæmdur til að greiða 5,7 milljónir Bandaríkjdala

Fyrr­verandi meðlimir golf­klúbbs í eigu Donalds J. Trump Bandaríkja­forseta hafa náð fram rétti sínu í dómstóli í Flórída.

Golf­klúbbur í Florída, sem er í eigu Donald J. Trump, Bandaríkja­forseta, hefur verið dæmdur til að greiða fyrrum meðlimum klúbbsins 5,7 milljónir Bandaríkja­dala, eða um 700 milljónir króna, vegna vanefnda klúbbsins.

Eftir að Trump eignaðist hann árið 2012 voru himinhá gjöld klúbbsins aldrei greidd 65 meðlimum hans til baka sem höfðu sagt sig úr klúbbnum áður en Trump eignaðist hann.

Í umfjöllun Reuters kemur fram að dómarinn, Kenneth Marra í dómstólnum í West Palm Beach, hafi komist að þeirri niður­stöðu að Trump hafi ekki haft heimild til að halda eftir þessum greiðslum.

Óhætt er að segja að málið sé óheppilegt fyrir Bandaríkja­forseta enda fordæma­laust með öllu, eins og margt sem að honum snýr í embættinu. Skömmu áður en Trump tók við sem forseti samdi hann um að greiða fyrr­verandi nemendum í skóla sem hann hélt úti, Trump University, 25 milljónir Bandaríkja­dala í bætur vegna þess að skólinn reyndist með öllu metnaðar­laus og uppfylltu námskeið hans ekki lágmarks­kröfur eða markmið nemenda.

Trump greiddi nemendunum upphæðina skömmu áður en hann tók við embætti, eða 18. janúar.

Fleiri málsóknir beinast nú gegn honum, meðal annars vegna tilskipunar hans um að banna íbúum sjö ríkja þar sem múslimatrú er í meirihluta að koma til Banda­ríkjanna. Washington ríki var fyrsta ríkið til að höfða mál gegn forsetanum persónu­lega og bandaríska ríkinu sömuleiðis, en bannið er að mati Washington ríkis skýrt brot á stjórnar­skránni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár