Skora á íslensk stjórnvöld að gera meira fyrir Afgana á flótta

Boðað hefur verið til sam­stöðu­fundar þar sem skorað er á íslensk stjórn­völd að beita sér taf­ar­laust og ein­dregið fyrir flutn­ingi afganskra borg­ara á flótta undan því hættu­á­standi sem ríkir í heima­landi þeirra eftir valda­rán Talíbana.

Afganir og aðstandendur þeirra mættu á Austurvöll í vikunni.
Afganir og aðstand­endur þeirra mættu á Aust­ur­völl í vik­unni. Mynd: Bára Huld Beck

Boðað hefur verið til alþjóð­legs sam­stöðu­fundar með afgönsku þjóð­inni klukkan 14:30 á morgun. Solaris - hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, No Borders og Refugees in Iceland boða til fund­ar­ins og hefst hann á Hlemmi og þaðan verður gengið niður á Aust­ur­völl.

Sam­stöðu­fund­ur­inn skorar á íslensk stjórn­völd að beita sér taf­ar­laust og ein­dregið fyrir flutn­ingi afganskra borg­ara á flótta undan því hættu­á­standi sem ríkir í heima­landi þeirra eftir valda­rán Talíbana.

Til við­bótar við það sem sem stjórn­völd hafa ákveðið að gera er skorað á íslensk stjórn­völd í fyrsta lagi að tryggja að Afganir búsettir á Íslandi og sem sótt hafa um vernd á Íslandi en ekki hlotið jákvæða nið­ur­stöðu fái póli­tískt hæli skil­yrð­is­laust. Umsóknir þess­ara ein­stak­linga verði settar í for­gang og afgreiðslu þeirra hraðað.

Í öðru lagi að reglur um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu verði rýmkaðar þannig að sem flestir land­flótta Afganir með fjöl­skyldu­teng­ingu við Ísland fái hér vernd. Íslensk yfir­völd beiti sér fyrir flutn­ingi þeirra til lands­ins. Sett hefur verið af stað und­ir­skrifta­söfnun með sömu kröfum til íslenskra stjórn­valda.

Sams­konar sam­stöðu­fundir með afgönsku þjóð­inni verða um allan heim á morgun, til dæmis í Amster­dam, Helsinki, London, San Francisco, Montreal og Melbourne.

Féllust á tillögur flóttamannanefndar

Íslensk stjórn­völd greindu frá því síð­ast­lið­inn þriðju­dag að þau hefðu fall­ist á til­lögur flótta­manna­nefndar að taka á móti „allt að 120 manns“ frá Afganistan. Samkvæmt til­lögum nefnd­ar­innar á í fyrsta lagi að taka á móti starfs­fólki sem vann með og fyrir Atl­ants­hafs­banda­lagið, ásamt mökum þeirra og börnum. Horft verður sér­stak­lega til þeirra sem störf­uðu með íslensku frið­ar­gæsl­unni.

Í öðru lagi verður fyrr­ver­andi nem­endum frá Afganistan við jafn­rétt­is­skóla Sam­ein­uðu þjóð­anna á Íslandi, ásamt mökum og börnum, boðið til lands­ins. Í þriðja lagi munu íslensk stjórn­völd aðstoða þá Afgana sem eiga rétt á fjöl­skyldu­sam­ein­ingu eða eru komnir nú þegar með dval­ar­leyfi hér á landi en geta ekki ferð­ast á eigin vegum að kom­ast til lands­ins. Um er að ræða ein­stak­linga sem hafa fjöl­skyldu­tengsl hér, sem og ein­stak­linga sem hyggj­ast hefja hér nám.

Í fjórða lagi verða umsóknir um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu, sam­kvæmt lögum um útlend­inga, við Afgana búsetta hér landi settar í for­gang og aukið við fjár­veit­ingar til þess að hraða umsókn­unum. Nánustu aðstand­endur í skiln­ingi útlend­inga­laga eru makar, sam­búð­ar­makar, börn yngri en 18 ára í for­sjá og á fram­færi við­kom­andi, for­eldrar 67 ára eða eldri, og for­eldrar barn yngri en 18 ára.

Fjölskyldusameining þarf að ná til fleiri aðila

Benjamín Julian, Elínborg Harpa Önund­ar­dóttir, Sema Erla Serdar og Eyrún Ólöf Sig­urð­ar­dóttir útskýra kröfur sam­stöðu­fund­ar­ins nánar í aðsendri grein á Vísi í dag.

Í grein­inni segir að ef íslenskum yfir­völdum sé alvara með yfir­lýs­ingum um vilja til að „leggja sitt af mörkum nú þegar“ væri eðli­legt að þær aðgerðir hæfust strax hér á landi og þeim Afgönum sem þegar eru staddir á Íslandi, og bíða úrlausnar sinna mála hjá Útlend­inga­stofnun, væri veitt alþjóð­leg vernd án tafar.

„Fjöl­skyldu­sam­ein­ing þarf svo að ná til fleiri aðila, til þess að sem flestir land­flótta Afganir með fjöl­skyldu­teng­ingu við Ísland geti sam­ein­ast fjöl­skyldu­með­limum sínum hér á landi og lifað í öryggi,“ segir í grein­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár