Reyna að finna leiðir til að koma flóttafólki til Íslands – „Tíminn er enginn“

Formaður flótta­manna­nefndar segir að allir vinni hörðum höndum að því að finna útfærslur á til­lögum nefnd­ar­innar til þess að koma flótta­fólki frá Afganistan hingað til lands.

„Við erum að reyna að finna leiðir hvernig við komum þessu fólki hingað. Fólk er nátt­úru­lega víðs­vegar um Afganistan og það er ekki auð­velt að kom­ast þaðan. Við þurfum að reyna að koma okkur inn í loft­brú sem alla­vega Danir eru með og fleiri ríki.“ Þetta segir Stefán Vagn Stef­áns­son for­maður flótta­manna­nefndar í sam­tali við Kjarnann en rík­is­stjórnin sam­þykkti í morgun til­lögur nefnd­ar­innar um að taka á móti allt að 120 manns frá Afganistan.

Að mörgu er að huga, að sögn Stefáns Vagns. Til að mynda þurfi að finna leiðir til að koma fólk­inu sem um ræðir til Kabúl, ekki sé nóg að huga ein­ungis að flug­inu þaðan. „Þetta eru meðal ann­ars verk­efnin sem við erum í núna í þessum töl­uðu orðum.“

Full samstaða meðal nefndarmanna

Samkvæmt til­lögum nefnd­ar­innar á í fyrsta lagi að taka á móti starfs­fólki sem vann með og fyrir Atl­ants­hafs­banda­lagið, ásamt mökum þeirra og börnum. Horft verður sér­stak­lega til þeirra sem störf­uðu með íslensku frið­ar­gæsl­unni.

Í öðru lagi verður fyrr­ver­andi nem­endum frá Afganistan við jafn­rétt­is­skóla Sam­ein­uðu þjóð­anna á Íslandi, ásamt mökum og börnum, boðið til lands­ins. Í þriðja lagi munu íslensk stjórn­völd aðstoða þá Afgana sem eiga rétt á fjöl­skyldu­sam­ein­ingu eða eru komnir nú þegar með dval­ar­leyfi hér á landi en geta ekki ferð­ast á eigin vegum að kom­ast til lands­ins. Um er að ræða ein­stak­linga sem hafa fjöl­skyldu­tengsl hér, sem og ein­stak­linga sem hyggj­ast hefja hér nám.

Í fjórða lagi verða umsóknir um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu, sam­kvæmt lögum um útlend­inga, við Afgana búsetta hér landi settar í for­gang og aukið við fjár­veit­ingar til þess að hraða umsókn­unum.

Stefán Vagn segir að full sam­staða hafi verið meðal nefnd­ar­manna um til­lögur að aðgerðum. Í flótta­manna­nefnd sitja full­trúar félags- og barna­mála­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra og utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra. Auk þess sitja áheyrn­ar­full­trúar frá Rauða kross­inum á Íslandi, Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga og Útlend­inga­stofnun fundi nefnd­ar­innar.

Skipa starfshóp til að útfæra tillögurnar

Stefán Vagn segir í sam­tali við Kjarnann að tím­inn sé eng­inn. „Nefndin vinnur þetta eins hratt og hægt er. Það eru allir að leggj­ast á eitt að svo verði.“

Hann greinir frá því að sér­stakur starfs­hópur hafi verið skip­aður sem mun hafa það hlut­verk að finna frek­ari útfærslur á til­lögum nefnd­ar­innar. „Auðvitað erum við líka byrjuð á því. Bæði við og Útlend­inga­stofnun, félags­mála­ráðu­neytið og borg­ara­þjón­ustan, utan­rík­is­ráðu­neytið og dóms­mála­ráðu­neytið. Það eru allir á fullu að reyna að finna leiðir og átta sig á því hvernig við klárum þetta verk­efni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár