Íslensk stjórnvöld ætla að taka á móti allt að 120 Afgönum

Rík­is­stjórn Íslands hefur fall­ist á til­lögur flótta­manna­nefndar að taka á móti allt að 120 manns frá Afganistan.

Mótmælendur á Austurvelli í gær biðluðu til stjórnvalda að bjarga Afgönum.
Mót­mæl­endur á Aust­ur­velli í gær biðl­uðu til stjórn­valda að bjarga Afgönum. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­stjórn Íslands hefur sam­þykkt til­lögu for­sæt­is­ráð­herra, félags- og barna­mála­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra um að fall­ast á til­lögur flótta­manna­nefndar vegna þess „ófremd­ar­á­stands sem hefur skap­ast í Afganistan í kjöl­far valda­töku Talíbana“.

Frá þessu er greint á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag en fundur rík­is­stjórn­ar­innar var í morgun.

„Með til­lögum flótta­manna­nefndar er stutt við þær fjöl­skyldur sem eru hér á landi og eiga rétt á sam­ein­ingu við fjöl­skyldu­með­limi í Afganistan. Þá verður lögð áhersla á að aðstoða ein­stak­linga sem eru í bráða­hættu vegna starfa sinna í Afganistan, hvort sem það er fyrir Atl­ants­hafs­banda­lagið eða á sviði jafn­rétt­is­mála,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Aðgerðir í fjórum liðum

Fyrstu við­brögð og aðgerðir stjórn­valda sam­kvæmt til­lögum flótta­manna­nefndar eru í fyrsta lagi að tekið verði á móti starfs­fólki sem vann með og fyrir Atl­ants­hafs­banda­lagið, ásamt mökum þeirra og börnum. Horft verði sér­stak­lega til þeirra sem störf­uðu með íslensku frið­ar­gæsl­unni.

Í öðru lagi að fyrr­ver­andi nem­endum frá Afganistan við jafn­rétt­is­skóla Sam­ein­uðu þjóð­anna á Íslandi, ásamt mökum og börnum, verði boðið til lands­ins.

Í þriðja lagi að íslensk stjórn­völd muni aðstoða þá Afgana sem eiga rétt á fjöl­skyldu­sam­ein­ingu eða eru komnir nú þegar með dval­ar­leyfi hér á landi en geta ekki ferð­ast á eigin vegum að kom­ast til lands­ins. Um sé bæði að ræða ein­stak­linga sem hafa fjöl­skyldu­tengsl hér sem og ein­stak­lingar sem hyggj­ast hefja hér nám.

Í fjórða lagi að umsóknir um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu, sam­kvæmt lögum um útlend­inga, við Afgana búsetta hér landi verði settar í for­gang og aukið við fjár­veit­ingar til þess að hraða umsókn­unum.

Eiga erfitt með að meta fjöldann – en áætlað er að hann verði allt að 120 manns

Heild­ar­fjöldi þeirra sem tekið verður á móti liggur ekki end­an­lega fyrir, sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins, en áætlað er að hann verði allt að 120 manns.

„Erfitt er að meta fjöld­ann nákvæm­lega þar sem hann fer eftir fjöl­skyldu­sam­setn­ingu. Ísland hefur hingað til tekið á móti afgönsku kvótaflótta­fólki í sam­starfi við Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna og mun halda því áfram en í ljósi þess neyð­ar­á­stands sem nú hefur skap­ast í Afganistan er hins vegar mik­il­vægt að íslensk stjórn­völd leggi sitt af mörkum nú þegar.

Flótta­manna­nefnd leggur enn fremur til að stofn­aður verði aðgerða­hópur sem hefur það hlut­verk að útfæra fram­kvæmd til­lagn­anna en ljóst er að hún er flókin þar sem huga þarf að flutn­ingi fólks­ins til lands­ins, tryggja öryggi þess og nauð­syn­lega aðstoð við komu til lands­ins. Í flótta­manna­nefnd sitja full­trúar félags- og barna­mála­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra og utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra. Auk þess sitja áheyrn­ar­full­trúar frá Rauða kross­inum á Íslandi, Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga og Útlend­inga­stofnun fundi nefnd­ar­innar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár