Tólf umsækjendur um vernd frá Afganistan bíða úrlausnar sinna mála hér á landi

Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála eru með mál 12 umsækj­enda um vernd frá Afganistan til með­ferðar. Einn er á lista stoð­deildar og bíður end­ur­send­ingar til ann­ars Evr­ópu­ríkis.

Ófremdarástand skapaðist á flugvellinum í Kabul, höfuðborg Afganistan, eftir að Talíbanar komust til valda á dögunum. Mikill fjöldi fólks vildi flýja landið og myndaðist örtröð og átroðingur þegar fólkið reyndi að fara upp í flugvélar.
Ófremd­ar­á­stand skap­að­ist á flug­vell­inum í Kabul, höf­uð­borg Afganistan, eftir að Talí­banar komust til valda á dög­unum. Mikill fjöldi fólks vildi flýja landið og mynd­að­ist örtröð og átroð­ingur þegar fólkið reyndi að fara upp í flug­vélar. Mynd: EPA

Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála eru með mál 12 umsækj­enda um vernd frá Afganistan til með­ferðar. Hvort ástandið í heima­landi hafi áhrif á nið­ur­stöðu mál­anna veltur á því hvort umsóknir þeirra fái efn­is­lega með­ferð hér á landi eða hvort þeim ljúki með end­ur­send­ingu til ann­ars Evr­ópu­ríkis.

Þetta kemur fram í svari Útlend­inga­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans. Mál Afgana hafa verið í brennid­epl­inum und­an­farna daga og vikur þar sem Talí­banar komust aftur við stjórn­völ­inn þar í landi eftir að banda­ríski her­inn hóf að draga sig til baka og fara af landi brott. Margir hafa kallað á að íslensk stjórn­völd bregð­ist við með ein­hverjum hætti.

„Í þeim málum sem tekin eru til efn­is­legrar með­ferðar er það ástandið í heima­landi umsækj­anda og per­sónu­legar aðstæður hans þar sem ráða nið­ur­stöð­unni en þá er tekin afstaða til þess hvort umsækj­and­inn þurfi á vernd að halda eða ekki. Í málum sem afgreidd eru með end­ur­send­ingu til ann­ars Evr­ópu­lands á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar eða á grund­velli verndar í öðru Evr­ópu­landi er það ástandið og per­sónu­legar aðstæður umsækj­and­ans í við­kom­andi Evr­ópu­landi sem ræður nið­ur­stöð­unni,“ segir í svar­inu.

Einn verður sendur til baka til annars Evrópuríkis

Fram kemur hjá Útlend­inga­stofnun að allir umsækj­endur um vernd frá Afganistan sem hafa fengið efn­is­lega með­ferð umsóknar sinnar hér á landi á und­an­förnum árum hafi fengið jákvæða nið­ur­stöðu, ýmist vernd eða við­bót­ar­vernd, og því ekki verið sendir aftur til Afganistan.

Einn er á lista stoð­deildar og bíður end­ur­send­ingar til ann­ars Evr­ópu­ríkis, að því er fram kemur hjá stofn­un­inni. „Eins og áður sagði hefur ástandið í Afganistan ekki áhrif á ákvarð­anir um end­ur­send­ingar til ann­arra Evr­ópu­landi og engar ákvarð­anir hafa verið teknar um end­ur­send­ingar til Afganistan á und­an­förnum árum,“ segir í svar­inu.

Skila tillögum til stjórnvalda í næstu viku

Flótta­manna­nefnd fund­aði á þriðju­dag um ástandið í Afganistan. Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra sendi erindi til flótta­manna­nefndar, sem skipu­leggur komu flótta­manna, en í við­tali við Frétta­blaðið í gær sagði hann að hann væri ekki að biðja um ráð flótta­manna­nefndar „ef við ætl­uðum ekk­ert að aðhaf­ast“.

Samkvæmt svari félags­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans mun flótta­manna­nefnd funda aftur í vik­unni og í fram­hald­inu skila tillögum til stjórn­valda, lík­lega snemma í næstu viku.

Vilja aðgerðir

Hópur Íslend­inga sem starfað hefur með NATO og öðrum alþjóð­legum stofn­unum í Afganistan sendi í fyrra­dag ákall til íslenskra stjórn­valda um að grípa taf­ar­laust til aðgerða til að bregð­ast við þeim veru­leika sem blasir við almennum borg­urum – ekki síst konum og börnum – í Afganistan í ljósi atburða und­an­far­inna daga.

[links]Fer hóp­ur­inn á leit við íslensk stjórn­völd og Alþingi að þau bjóði ein­stak­lingum, sér í lagi konum og stúlkum, alþjóð­lega vernd. Sjónum verði sér­stak­lega beint að konum og stúlkum sem stafar bein ógn af valda­töku Talibana m.a. vegna bar­áttu sinnar fyrir frelsi og rétt­indum kvenna og þátt­töku í verk­efnum sem voru studd af NATO eða öðrum alþjóð­legum stofn­unum, sam­an­ber konur í leið­toga­stöðum, blaða­konur, mann­rétt­inda­fröm­uðir og konur sem til­heyra ofsóttum minni­hluta­hópum.

Íslensk stjórn­völd leiti enn fremur sam­starfs við önnur Norð­ur­lönd og/eða NATO ríki um flutn­ing fólks sem er í mik­illi hættu vegna starfa sinna fyrir og/eða með Íslenskum frið­ar­gæslu­liðum sem starfað hafa í Afganistan og veiti þeim ein­stak­lingum og fjöl­skyldum þeirra alþjóð­lega vernd.

Þá vill hóp­ur­inn að íslensk stjórn­völd beiti sér sér­stak­lega fyrir því að Sam­ein­uðu þjóð­irnar standi vörð um rétt­indi og vernd kvenna og að stúlkum verði tryggður réttur til skóla­göngu og konum til atvinnu­þátt­töku. Íslensk stjórn­völd beiti sér jafn­framt fyrir áfram­hald­andi upp­bygg­ingar- og þró­un­ar­starfi í land­inu á grund­velli gagn­rýnnar end­ur­skoð­unar á þeirri aðstoð, sem veitt hefur verið, og sem taki mið af Marshall-aðstoð­inni, þ.e. mark­miðs­setn­ing og fram­kvæmd verði mið­stýrð í auknum mæli og aðstoðin taki mið af aðstæðum í land­inu til að auka mögu­leik­ana á raun­veru­legum árangri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár