Vilja að íslensk stjórnvöld bjóði einstaklingum frá Afganistan alþjóðlega vernd

Þrjátíu og einn Íslend­ingur sem starfað hefur með NATO og öðrum alþjóð­legum stofn­unum í Afganistan krefst þess að íslensk stjórn­völd grípi taf­ar­laust til aðgerða vegna ástands­ins þar í landi.

Margir Afganir hafa gert tilraunir að flýja land eftir að Talíbanar hrifsuðu til sín völdin þar í landi.
Margir Afganir hafa gert til­raunir að flýja land eftir að Talí­banar hrifsuðu til sín völdin þar í landi. Mynd: EPA

Hópur Íslend­inga sem starfað hefur með NATO og öðrum alþjóð­legum stofn­unum í Afganistan hefur sent ákall til íslenskra stjórn­valda um að grípa taf­ar­laust til aðgerða til að bregð­ast við þeim veru­leika sem blasir við almennum borg­urum – ekki síst konum og börnum – í Afganistan í ljósi atburða und­an­far­inna daga.

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Brynju Huldar Óskars­dótt­ur, ör­ygg­is- og varn­ar­mála­fræð­ing­s með sér­hæf­ingu í hryðju­verk­um, á Facebook í dag.

„Það hefur ekki farið fram­hjá neinum að ástandið í Afghanistan þessa dag­ana er grafal­var­legt, og öll sem hafa teng­ingar við landið þungt hugsi vegna ástand­ins,“ skrifar hún.

Í ákall­inu kemur meðal ann­ars fram að Ísland sem her­laust og frið­sælt land, og eitt örugg­asta lands heims, auk þess að vera í efstu sætum á lista yfir ríki þar sem hvað mest kynja­jafn­rétti ríkir, beri sið­ferði­leg og laga­leg skylda til þess að sýna í verki að ályktun um konur, frið og öryggi sé raun­veru­lega horn­steinn íslenskrar utan­rík­is­stefnu.

Sjónum verði sérstaklega beint að konum sem stafar bein ógn af valdatöku Talibana

Fer hóp­ur­inn á leit við íslensk stjórn­völd og Alþingi að þau bjóði ein­stak­lingum, sér í lagi konum og stúlkum, alþjóð­lega vernd. Sjónum verði sér­stak­lega beint að konum og stúlkum sem stafar bein ógn af valda­töku Talibana m.a. vegna bar­áttu sinnar fyrir frelsi og rétt­indum kvenna og þátt­töku í verk­efnum sem voru studd af NATO eða öðrum alþjóð­legum stofn­unum, sam­an­ber konur í leið­toga­stöðum, blaða­konur, mann­rétt­inda­fröm­uðir og konur sem til­heyra ofsóttum minni­hluta­hópum.

Íslensk stjórn­völd leiti enn fremur sam­starfs við önnur Norð­ur­lönd og/eða NATO ríki um flutn­ing fólks sem er í mik­illi hættu vegna starfa sinna fyrir og/eða með Íslenskum frið­ar­gæslu­liðum sem starfað hafa í Afganistan og veiti þeim ein­stak­lingum og fjöl­skyldum þeirra alþjóð­lega vernd.

Þá vill hóp­ur­inn að íslensk stjórn­völd beiti sér sér­stak­lega fyrir því að Sam­ein­uðu þjóð­irnar standi vörð um rétt­indi og vernd kvenna og að stúlkum verði tryggður réttur til skóla­göngu og konum til atvinnu­þátt­töku. Íslensk stjórn­völd beiti sér jafn­framt fyrir áfram­hald­andi upp­bygg­ingar- og þró­un­ar­starfi í land­inu á grund­velli gagn­rýnnar end­ur­skoð­unar á þeirri aðstoð, sem veitt hefur verið, og sem taki mið af Marshall-aðstoð­inni, þ.e. mark­miðs­setn­ing og fram­kvæmd verði mið­stýrð í auknum mæli og aðstoðin taki mið af aðstæðum í land­inu til að auka mögu­leik­ana á raun­veru­legum árangri.

Hér fyrir neðan má lesa ákall hópsins til íslenskra stjórnvalda í heild sinni:

Afghanistan hefur und­an­farna tvo ára­tugi verið eitt af fimm áherslu­löndum íslenska rík­is­ins í þró­un­ar­sam­vinnu og þátt­taka Íslands í upp­bygg­ingu í land­inu er ein umfangs­mestu aðkoma Íslands að verk­efnum á sviði örygg­is­mála, end­ur­reisnar og stjórn­ar­fars í einu fátæk­asta þró­un­ar­landi heims. Íslenskir friða­gæslu­liðar hafa tekið þátt í upp­bygg­ing­ar­verk­efnum á sviði jafn­rétt­is­mála víðs­vegar um landið og und­an­farin ár á sviði sam­skipta- og upp­lýs­inga­miðl­unar. Síðustu íslensku frið­ar­gæslu­lið­arnir komu heim sum­arið 2019 eftir alls 17 ára þátt­töku Íslands í hinum ýmsu verk­efnum í Afganistan. Allan þennan tíma, einkum frá 2010, hefur verið lögð höf­uð­á­hersla á ályktun örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna nr. 1325 um konur, frið og öryggi.

Í utan­rík­is­stefnu Íslands segir: „Jafn­rétt­is­sjón­ar­mið eru sam­þætt utan­rík­is­stefnu og starfi á alþjóða­vett­vangi, meðal ann­ars í tengslum við ályktun örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna nr. 1325 um konur, frið og öryggi.“ Ísland var eitt af fyrstu ríkjum Sam­ein­uðu þjóð­anna sem setti sér árið 2008 lands­á­ætlun um fram­kvæmd álykt­unar örygg­is­ráðs­ins nr. 1325 um konur, frið og öryggi og í sam­ræmi við áherslur hennar í Afganistan hefur m.a. starf­semi kvenna­mála­ráðu­neyt­is­ins og frjálsra félaga­sam­taka kvenna verið studd. Um tíma var íslenskur þró­un­ar­full­trúi m.a. tengiliður milli kvenna­sam­taka og upp­bygg­ing­arteym­is­ins (e. Provincial Reconstruction Team) og vann að því að greiða fyrir þátt­töku full­trúa kvenna á fundum og í ýmissi starf­semi til að tryggja að sjón­ar­mið þeirra kæmust á fram­færi. Þá hafa íslenskir frið­ar­gæslu­liðar verið tengiliður við afghanskar blaða­konur og aðgerð­ar­sinna sem hafa verið að beita sér fyrir rétt­indum afganskra kvenna.

Þessi hópur kvenna í Afganistan er nú orð­inn að skot­marki Talibana fyrir það eitt að hafa und­an­farin ár komið sjón­ar­miðum kven­frelsis, kven­rétt­inda og jafn­réttis á fram­færi. Í land­inu er heill hópur kvenna sem hafa starfað í störfum hjá hinu opin­bera, í kvenna­mála­ráðu­neyt­inu og frjálsum félaga­sam­tökum á fjöl­miðlum og unnið hjá afgönsku lög­regl­unni eða öðrum stofn­unum. Sumar hafa verið áber­andi í leið­toga­stöðum og unnið náið með vest­rænum banda­mönnum. Unnið eftir því sem Tali­ban­arnir kalla „vest­ræn“ gildi sem í augum þeirra rétt­lætir dauða­refs­ingu.

Und­an­farnar vikur hafa banda­lags­lönd okkar, þar á meðal Banda­ríkin og Bretland, gefið lof­orð þess efnis að bjóða upp á svokölluð „neyð­ar­land­vist­ar­leyfi“ eða hrað-vega­bréfs­á­rit­anir til handa þeim sem unnu fyrir alþjóð­lega varn­ar­liðið eða ein­hver af sendi­ráðum Atl­ants­hafs­banda­lags þjóð­anna í Kabúl. Starfs­fólk og sér í lagi konur, sem unnu náið með íslenskum frið­ar­gæslu­liðum og öðrum banda­lags­þjóðum, voru hins vegar fæstar á launa­skrá hjá Banda­ríkja­her eða vest­rænum sendi­ráðum og upp­fylla þar með ekki skil­yrðin fyrir veit­ingu þeirra sér­leyfa sem stendur til að opna umsóknir fyrir. Þetta er að hóp­ur­inn sem Ísland í sinni þró­unar- og utan­rík­is­stefnu hefur beitt sér fyrir og stutt hvað mest til auk­innar opin­berar þátt­töku og sýni­leika í sam­ræmi við ákvæði álykt­unar 1325.

Nú er komið að þeim átak­an­legu tíma­mótum að við þurfum að axla ábyrgð á þátt­töku okkar í þeim aðstæðum sem nú hafa skap­ast í Afganistan og beita okkur fyrir verndun kvenna og stúlkna á átaka­svæðum, ekki síst þeim sem hafa verið að beita sér opin­ber­lega fyrir rétt­indum kvenna og stúlkna. Grípa það hug­rakka fólk, og sér í lagi konur, sem við studdum og gerðu okkur kleift að koma okkar sjón­ar­miðum um jafn­rétti, menntun og lýð­ræði á fram­færi.

Með rökum má halda því fram að valda­rán Talibana og stjórn þeirra í land­inu feli sjálf­krafa í sér ofsóknir gegn fólki sem starf­aði fyrir erlenda aðila og sér í lagi gegn konum og stúlkum sem eiga hættu á dauða­refs­ingu, pynt­ingum eða van­virð­andi með­ferð, þar með talið kyn­ferð­is­of­beldi, eða refs­ingu.

Ísland sem her­laust og frið­sælt land, og eitt örugg­asta lands heims, auk þess að vera í efstu sætum á lista yfir ríki þar sem hvað mest kynja­jafn­rétti ríkir, ber sið­ferði­leg og laga­leg skylda til þess að sýna í verki að ályktun 1325 um konur, frið og öryggi sé raun­veru­lega horn­steinn íslenskrar utan­rík­is­stefnu. Það gera íslensk stjórn­völd með því að bjóða konum alþjóð­lega vernd – konum sem hafa barist fyrir auk­inni menntun kvenna, kven­rétt­indum, og því að koma konum í leið­toga­stöðu.

Við sem und­ir­ritum þetta bréf förum eft­ir­far­andi á leit við rík­is­stjórn Íslands og Alþingi:

Inn­an­lands

  • Íslensk stjórn­völd bjóði ein­stak­lingum, sér í lagi konum og stúlkum, alþjóð­lega vernd. Sjónum verði sér­stak­lega beint að konum og stúlkum sem stafar bein ógn af valda­töku Talibana m.a. vegna bar­áttu sinnar fyrir frelsi og rétt­indum kvenna og þátt­töku í verk­efnum sem voru studd af NATO eða öðrum alþjóð­legum stofn­unum, sbr. konur í leið­toga­stöðum, blaða­konur, mann­rétt­inda­fröm­uðir og konur sem til­heyra ofsóttum minni­hluta­hópum.
  • Íslensk stjórn­völd leiti sam­starfs við önnur Norð­ur­lönd og/eða NATO ríki um flutn­ing fólks sem er í mik­illi hættu vegna starfa sinna fyrir og/eða með Íslenskum frið­ar­gæslu­liðum sem starfað hafa í Afganistan og veiti þeim ein­stak­lingum og fjöl­skyldum þeirra alþjóð­lega vernd.

Innan alþjóða­stofn­ana

  • Íslensk stjórn­völd beiti sér sér­stak­lega fyrir því að Sam­ein­uðu þjóð­irnar standi vörð um rétt­indi og vernd kvenna og að stúlkum verði tryggður réttur til skóla­göngu og konum til atvinnu­þátt­töku.
  • Íslensk stjórn­völd beiti sér fyrir áfram­hald­andi upp­bygg­ingar- og þró­un­ar­starfi í land­inu á grund­velli gagn­rýnnar end­ur­skoð­unar á þeirri aðstoð, sem veitt hefur verið, og sem taki mið af Marshall aðstoð­inni, þ.e. mark­miðs­setn­ing og fram­kvæmd verði mið­stýrð í auknum mæli og aðstoðin taki mið af aðstæðum í land­inu til að auka mögu­leik­ana á raun­veru­legum árangri.
  1. Árni Arn­þórs­son, aðstoð­ar­rektor við American Uni­versity of Afghanistan í Kabúl frá árinu 2018
  2. Brynja Dögg Frið­riks­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi NATO í Afganistan 2018-2019
  3. Brynja Huld Ósk­ars­dóttir, sam­skipta­ráð­gjafi NATO í Afganistan 2018-2019
  4. Böðvar Þór Kárason, frið­ar­gæslu­liði alþjóða­flug­vell­inum Kabúl 2004-2005 og 2006-2008 og í eft­ir­lits- og upp­lýs­inga­sveit End­ur­reisn­arteymis alþjóða­sveita NATO í Ghor hér­aði 2005-2006
  5. Börkur Gunn­ars­son, aðstoð­ar­tals­maður sendi­herra NATO (Deputy Spokesper­son and Public Diplomacy Officer on SCR Office) í Afganistan 2008 – 2009
  6. Erlingur Erlings­son, frið­ar­gæslu­liði í höf­uð­stöðvum alþjóð­aliðs NATO 2009 og starfs­maður Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNAMA) 2009-2011
  7. Friðrik Jónsson, aðstoð­ar­yf­ir­maður þró­un­ar­mála hjá höf­uð­stöðvum alþjóð­aliðs NATO á vegum Frið­ar­gæslu Íslands 2009-2010 og starfs­maður Sam­ein­uðu þjóð­anna (develop­ment coordinator UNAMA) 2010
  8. Friðrik M. Jónsson, frið­ar­gæslu­liði alþjóða­flug­vell­inum Kabúl 2004 og 2006-2009 og í eft­ir­lits- og upp­lýs­inga­sveit End­ur­reisn­arteymis alþjóða­sveita NATO í Meymaneh hér­aði 2005.
  9. Gerður Björk Kjærne­sted, upp­lýs­inga­full­trúi NATO, 2007-2008
  10. Gísli Gunn­ars­son, frið­ar­gæslu­liði alþjóða­flug­vell­inum Kabúl 2007-2009
  11. Guðrún S. Þor­geirs­dóttir, jafn­rétt­is­full­trúi NATO 2010-2011 og 2013
  12. Halldóra Brands­dóttir, frið­ar­gæslu­liði alþjóða­flug­vell­inum Kabúl 2007-2008 og starfs­maður NATO á flug­vell­inum 2008-2021
  13. Haraldur Sig­urðs­son, yfir­maður alþjóða­flug­vall­ar­ins í Kabúl á vegum Frið­ar­gæsl­unnar
  14. Heiða Björg Inga­dóttir Hjelm, frið­ar­gæslu­liði alþjóða­flug­vell­inum Kabúl 2007-2009 og 2010-2012
  15. Helen María Ólafs­dóttir, starfs­maður Þró­un­ar­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna í Afganistan 2007-2008
  16. Herdís Sig­ur­gríms­dóttir, aðstoð­ar­kona sendi­herra NATO í Afganistan 2008
  17. Hörður Sig­urðs­son, frið­ar­gæslu­liði alþjóða­flug­vell­inum Kabúl 2008-2013
  18. Jón Michael Þór­ar­ins­son, frið­ar­gæslu­liði alþjóða­flug­vell­inum Kabúl 2007- 2008 og póli­tískur ráð­gjafi borg­ara­legs sendi­full­trúa NATO í Afganistan 2016-2018
  19. Lára Jóns­dóttir, verk­efn­is­stjóri Lækna án landamæra (Medecins Sans Fronti­eres) í Afganistan 2013 og 2015
  20. Magnea Mar­in­ós­dóttir, þró­unar- og mann­úð­ar­ráð­gjafi End­ur­reisn­arteymis NATO í Ghor hér­aði 2006-2007
  21. Magnús Árni Skjöld Magn­ús­son, póli­tískur ráð­gjafi borg­ara­legs sendi­full­trúa NATO í Afganistan 2018
  22. Ómar Þór Krist­ins­son, frið­ar­gæslu­liði alþjóða­flug­vell­inum Kabúl 2004
  23. Pálína Ásgeirs­dóttir, sendi­full­trúi á vegum Rauða kross­ins í Afganistan 1992 og 2003-2005
  24. Sigríður Har­alds­dóttir, starfs­maður NATO alþjóða­flug­vell­inum Kabúl 2011-2014
  25. Sigrún Andr­és­dóttir, frið­ar­gæslu­liði höf­uð­stöðvum NATO í Afganistan 2007-2009 og 2010-2011
  26. Steinar Axelsson, frið­ar­gæslu­liði alþjóða­flug­vell­inum Kabúl 2004-2005 og 2007
  27. Steinunn Björk Bjark­ar­dóttir Pieper, frið­ar­gæslu­liði / jafn­rétt­is­full­trúi fjöl­þjóð­aliðs NATO 2011-2013 og 2014-2015
  28. Svafa H. Ásgeirs­dóttir, starfs­maður Creative Associates International 2012-2016 og hjá American Uni­versity í Kabúl frá 20210
  29. Una Sig­hvats­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi NATO í Afganistan 2016-2018
  30. Þor­steinn Pálsson, frið­ar­gæslu­liði alþjóða­flug­vell­inum Kabúl 2010-2013
  31. Þorbjörn Jónsson, Deputy Director Develop­ment, ISAF HQ 2010-2011
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár