ASÍ segir stóreignaskatt geta skilað ríkissjóði meira en 20 milljörðum króna

Fjár­magnstekju­skattur er ekki nægur einn og sér til að draga úr eigna­ó­jöfn­uði, að mati ASÍ. Samtökin segja að rökin fyrir eigna­skatti séu sterk í löndum þar sem skatt­lagn­ing á fjár­magnstekjur er lág.

Drífa Snædal, forseti ASÍ
Drífa Snædal, for­seti ASÍ Mynd: Aðsend mynd

Sterk rök eru fyrir skatt­lagn­ingu á eignir hér­lendis til að sporna gegn vax­andi eigna­ó­jöfn­uði, þar sem fjár­magnstekju­skattur er lágur. Skyn­sam­lega útfærður stór­eigna­skattur gæti skilað rík­is­sjóði um 20 millj­örðum króna. Þetta kemur fram í nýbirtri skýrslu ASÍ um skatt­lagn­ingu fjár­magns og auð­linda­gjöld.

Ójafnari skattbyrði eftir afnám auðlegðarskatts

Samkvæmt skýrsl­unni ýtti afnám auð­legð­ar­skatts undir ójöfnuð í sam­fé­lag­inu og mis­skipt­ingu eigna. Án hans er skatt­byrði þeirra allra tekju­hæstu lægri en skatt­byrði ann­arra tekju­hárra, þar sem skattur á fjár­magnstekjur er lægri en skatt­lagn­ing launa. Með auð­legð­ar­skatti var því aftur á móti við­haldið að skatt­kerfið væri stig­vax­andi upp alla tekju­dreif­ing­una.

Sjá má nokkra breyt­ingu í skatt­byrði eftir tekju­hópum á milli áranna 2013, þegar auð­legð­ar­skatt­ur­inn var enn við lýði, og 2019, sam­kvæmt skýrsl­unni. Á meðan hlut­falls­leg skatt­byrði efri milli­tekju­hópa hefur nokkurn veg­inn hald­ist óbreytt hefur skatt­byrði rík­asta pró­sents­ins lækkað tölu­vert og skatt­byrði tekju­lægri helm­ings­ins hækkað.

ASÍ segir Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ina (OECD) hafa lagt áherslu á mik­il­vægi þess að skatt­lagn­ing í heild sinni sé stig­vax­andi, þannig að skatt­byrðin sé þyngst hjá þeim tekju­hæstu. Sömu­leiðis segja sam­tökin að OECD telji rök fyrir eigna­skatti sterk­ari ef fjár­magnstekju­skattur er lágur og nefni þar Norð­ur­lönd sér­stak­lega í því til­liti.

Á síð­asta árinu sem auð­legð­ar­skatt­ur­inn var í gildi nam hann 12,7 millj­örðum króna á núver­andi verð­lagi, sam­kvæmt skýrslu­höf­und­unum. Séu tekjur rík­is­sjóðs af eigna­skött­unum upp­færðar miðað við eigna­stöðu heim­il­anna hefði hann hins vegar skilað rík­is­sjóði á bil­inu 20-28 millj­örðum króna í tekjur á hverju ári núna, væri hann enn við lýði.

Gamlir eignaskattar illa hannaðir

Í skýrsl­unni er þó minnst á að margar Evr­ópu­þjóðir hafi afnumið eign­ar­skatta á síð­ustu ára­tugum, aðal­lega af ótta við fjár­magns­flótta. Einnig voru tekj­urnar af slíkum sköttum gjarnan minni en vonir stóðu til, vegna umfangs­mik­illar skatta­snið­göngu og skattsvika.

Aftur á móti segja skýrslu­höf­undar að eigna­skattar hafi oft verið illa hann­aðir á þessum tíma og ein­falt hafi verið að kom­ast hjá því að greiða þá. Fjöl­breyttir frá­drátt­ar­liðir gerðu að verkum að skatt­greið­endur gátu aðlagað eigna­söfn til þess að draga úr skatt­greiðslum. Í ljósi þess telja þeir það vera mik­il­vægt að skatt­lagn­ing á eignir sé vel hönnuð, verði hún að veru­leika aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár