Háskólabíó fylltist á hátíð til verndar hálendinu: Salurinn söng fyrir Vigdísi

Háskólabíó fullt út að dyrum og fólk varð frá að hverfa. Fjölmenni frammi í anddyri að fylgjast með hátíðinni á skjám sem þar voru. Andri Snær hóf erindi sitt með afmælis­söng fyrir frú Vigdísi Finnboga­dóttur.

„Við náttúru­fólkið erum ekki lítill hópur sem auðvelt er að hunsa og hæðast að. Nei, við erum fjölda­hreyfing,“ sagði Kristín Helga Gunnars­dóttir, rithöfundur í ræðu sem hún flutti rétt í þessu í Háskólabíó þar sem náttúru­verndar­samtök standa fyrir hátíð til verndar hálendi Íslands, undir heitinu Paradísar­missir? „Þetta er barátta fyrir fram­tíðina. Þetta er orrustan um Ísland,“ sagði Kristín sem sagði meðal annars að við þyrftum ný gildi.

„Þetta er orrustan um Ísland“

Fullt er út úr dyrum í Háskólabíó og varð að loka stóra salnum þegar fleiri komust ekki að. Þá safnaðist fólk saman fyrir framan salinn og fylgdist með hátíðinni á skjám sem þar voru. Fyrr í dag höfðu um 2.000 manns boðað komu sína á hátíðina og því ljóst að það kæmust ekki allir inn: „Þetta snýst um að fylla húsið og umkringja það og gera þetta að viðburði sem fer í sögubækur. Mikil­vægustu gestirnir verða þeir sem komast ekki inn í Háskólabíó í kvöld. Þeir gera það sýnilegt að okkur er alvara,“ skrifaði einn.

Frú Vigdís Finna­bogadóttir er á meðal þeirra sem eru í salnum, en Andri Snær Magnasson hóf erindi sitt með því að ávarpa hana og óska henni til hamingju með afmælið í gær. Þá fékk hann Elísabetu Jökuls­dóttur rithöfund til að leiða afmælis­söng fyrir hana og tók salurinn undir. Vigdís er verndari Land­verndar. 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmda­stjóri Land­verndar, steig í pontu og sagði þetta ögur­stundu, nú stæðum við á tímamótum og hefðum val um það hvort hjarta landsins yrði klofið eður ei. Nú væri tækifæri til að snúa paradísar­missi í paradísar­heimt. 

Hægt er að horfa á beina útsendingu frá hátíðinni hér: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár