Harðar deilur í Brussel - Farage sagður notast við „nasistaáróður“

Það var mik­ill hiti í Evr­ópu­þing­inu þegar rætt var um nið­ur­stöður Brexit-atkvæða­greiðsl­unnar.

„Af hverju ertu hér?,“ sagði Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, í Evr­ópu­þing­inu í Brussel í dag, og beindi orðum sínum að Nigel Farage, leið­toga breska Sjálf­stæð­is­flokks­ins UKIP. Hann var einn þeirra sem leiddi Leave-hreyf­ing­una svoköll­uðu, sem barð­ist fyrir útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu (ESB). Eins og kunn­ugt er, kaus meiri­hluti Breta, 52 pró­sent, með því yfir­gefa sam­bandið. Um 48 pró­sent voru því mót­fallin.

Ekki liggur fyrir enn, hvernig verður að því staðið, að fram­kvæma útgöngu Bret­lands úr sam­band­inu, en leið­togar stærstu ESB-ríkj­anna segja ekki koma til greina að hefja óform­legar við­ræður um útgöngu, heldur geti þær ein­göngu haf­ist þegar Bretar hafa form­lega til­kynnt um útgöngu úr ESB. Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, hefur ítrekað þetta opin­ber­lega, nú síð­ast í morgun.

Samkvæmt frá­sögn breska rík­is­út­varps­ins BBC, var baulað á Nigel Farage og félaga, sem höfðu barist fyrir útgöngu Breta, og þeir sagðir hafa beitt blekk­ingum, lygum og „nas­ista­á­róðri“ í aðdrag­anda Brexit-atkvæða­greiðsl­unnar. Þeir gáfu lítið fyrir þetta. Farage sagði við frétta­menn að hann vildi að útgangan myndi ganga eins vel fyrir sig, og mögu­legt væri. Ekkert var meira gefið upp um hvernig útgangan gæti átt sér stað, en sam­kvæmt sátt­mála ESB-ríkja fá ríki tveggja ára aðlög­un­ar­tíma til að yfir­gefa sam­bandið, komi til þess að ríki geri það með til­kynn­ingu um úrsögn.

Bretland hefur verið í ESB í 43 ár og aldrei hefur reynt á, að eitt af stærstu ríkjum sam­bands­ins yfir­gefi það.

David Cameron, frá­far­andi for­sæts­ráð­herra Bret­lands, hefur sagt að bresk stjórn­völd vilji und­ir­búa næstu skref eins vel og hugs­ast getur, til að vernda efna­hags­legan stöð­ug­leika og tryggja að Bretland hafi traust land undir fótum þegar kemur að við­skipta­legum samn­ingum við önnur ríki.

Ekkert hefur þó verið end­an­lega ákveðið enn, í þessum efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár