Alþjóðabankinn svartsýnni í nýrri hagspá

Hagvaxtar­horfur á heimsvísu hafa versnað frá síðasta sumri, samkvæmt nýrri hagspá Alþjóða­bankans. Bankinn býst við að núverandi kreppa muni leiða til meiri ójafnaðar á milli ríkra og fátækra landa.

Fyrir utan höfuðstöðvar Alþjóðabankans í Washington
Fyrir utan höf­uð­stöðvar Alþjóða­bank­ans í Washington Mynd: EPA

Nýtt veiru­afbrigði, meiri verðbólga og aukin skuld­setning hins opinbera mun leiða til þess að hægja mun á hagvexti á heimsvísu í ár. Afleiðingar þessara þátta verða sérstak­lega slæmar fyrir þróunar­ríki, en búist er við því að tekju­munur á milli þeirra og iðnríkja muni aukast enn frekar á næstu árum. Þetta kemur fram í nýrri hagspá Alþjóða­bankans, sem kom út fyrr í dag.

Hörð lending möguleg

Samkvæmt hagspánni er búist við að hagvöxtur á heimsvísu muni nema 4,1 prósent í ár og 3,2 prósent á næsta ári, samhliða því sem dregur úr vexti eftir­spurnar og undið verður ofan af stuðnings­aðgerðum ríkis­stjórna víða um heim. Áður fyrr hafði bankinn spáð 5,5 prósenta hagvexti í ár.

Varað var við „harðri lendingu“ eftir efnahags­þrengingarnar sem hafa fylgt heims­faraldrinum, þar sem nýtt Omíkron-afbrigði kórónu­veirunnar myndi líklega hægja á efnahags­þróun til skamms tíma. Auk þess nefndi bankinn að minni hagvöxtur í Banda­ríkjunum og Kína myndi hafa neikvæð áhrif á eftir­spurn eftir útflutnings­vörum þróunar­ríkja og að framboðs­truflanir og verðbólga gætu reynst þrálát.

Ójöfnuður gæti aukist

Hægari hagvöxtur mun eiga sér stað samhliða frekari gliðnun í hagvexti á milli iðnríkja og þróunar­ríkja, segir í frétta­tilkynningu frá Alþjóða­bankanum. Því er spáð að hagkerfi iðnríkja muni vaxa nægilega til að ná sér að fullu efnahags­lega á næsta ári, en að hagkerfi þróunar­ríkja verði enn 4 prósentum minni en þau hefðu verið ef faraldurinn hefði ekki skollið á.

Sömuleiðis nefnir bankinn að vaxandi verðbólga, sem bitnar verst á tekju­lágum, muni hefta getu stjórn­valda til að bregðast við ástandinu. Samkvæmt honum hafa mörg þróunar- og nýmarkaðs­ríki þurft að draga úr opinberum efnahags­aðgerðum gegn áhrifum faraldursins löngu áður en efnahags­lífið hefur náð sér á strik til að halda verðbólgu­þrýstingnum í lágmarki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár