Bólusetningarvottorð gildi aðeins í níu mánuði

Stjórn Evrópu­sambandsins hefur lagt til að bólu­setningar­vottorð gildi í níu mánuði í stað tólf. Örvunar­skammtur framlengi svo gildis­tímann.

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins hefur lagt til að öll aðildar­ríkin uppfæri reglur sínar um ferðalög innan sambandsins. Stjórnin mælir m.a. með að bólu­setningar­vottorð gildi aðeins í níu mánuði í stað 12 hingað til.

Í frétta­tilkynningu sem gefin var út í síðustu viku er bent á tilmæli Sóttvarna­stofnunar Evrópu um örvunar­skammta sem gefa megi full­orðnum sex mánuðum eftir að fullri bólu­setningu var náð og hvetur framkvæmda­stjórnin aðildar­ríkin til að taka „nauðsynleg skref“ til að það fólk sem er að nálgast níu mánuði frá fullri bólu­setningu hafi aðgang að örvunar­skammti. Við hann sé gildis­tími vott­orðsins fram­lengdur.

Nokkur Evrópu­lönd hafa undan­farna daga og vikur ákveðið að bólu­setningar­vottorð dugi aðeins í níu mánuði. Austur­ríki er eitt þeirra en þar var nýverið gripið til útgöngu­banns vegna uppsveiflu í faraldrinum.

Framkvæmda­stjórnin hvatti ríki ESB einnig til að setja ekki hertar takmarkanir á ferðalög fólk sem væri með gilt bólu­setningar­skírteini. Hins vegar hefur hið nýja afbrigði veirunnar, Ómíkron, snarlega breytt nálgun margra ríkja í þessum efnum og ákvarðanir eru teknar hratt. Þótt raðgreining á veiru­afbrigðinu sýni að það hafi stökk­breytingar sem gætu fræðilega gert smithæfni þess meiri er enn ekkert staðfest í þeim efnum.

Innan Evrópu­sambandsins er faraldurinn nú í hvað mestri uppsveiflu í Póllandi, Hollandi, Tékklandi og Belgíu. Einnig er staðan að versna á Spáni, Portúgal og í Frakk­landi – þeim þremur löndum sem hafa þótt hvað öruggust til ferðalaga síðustu vikur og mánuði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár