Barbadosar vilja losa sig við Elísabetu, arfleifð nýlendutímans

Ríkis­stjórn Barbados ætlar sér að stofna lýðveldi fyrir lok næsta árs. Þá verður þjóð­höfðingi landsins ekki lengur Elísabet Englands­drottning. Tími er kominn til þess að skilja nýlendu­fortíð eyjunnar að baki, segja leiðtogar eyríkisins.

„Tíminn er kominn til þess að skilja nýlendufortíð okkar að baki. Barbadosar vilja barbadoskan þjóðhöfðingja,“ sagði yfirlandsstjóri Barbados í stefnuræðu ríkisstjórnarinnar.
„Tíminn er kom­inn til þess að skilja nýlendu­for­tíð okkar að baki. Bar­badosar vilja bar­badoskan þjóð­höfð­ingja,“ sagði yfir­lands­stjóri Barbados í stefnu­ræðu rík­is­stjórn­ar­innar. Mynd: EPA

Elísabet Englands­drottning verður brátt ekki lengur þjóð­höfðingi Karíbahafs­ríkisins Barbados. Ríkis­stjórn eyríkisins telur að tími sé kominn til þess að skilja nýlendu­tímann alfarið að baki, samkvæmt stefnu­ræðu sem flutt var í upphafi þing­starfa þar í gær.

Barbados lýsti yfir sjálf­stæði frá Bretlandi árið 1966, eftir að hafa verið bresk nýlenda allt frá 1625, en ríkið er þó enn eitt af þeim fimmtán ríkjum utan Bretlands þar sem Elísabet er þjóð­höfðingi.

Breska ríkis­útvarpið BBC fjallaði um málið í gær og hafði eftir talsmanni Buckingham-hallar að ákvörðun um þetta væri alfarið í höndum ríkis­stjórnar og íbúa Barbados og eftir ónefndum heimildar­manni hjá konungs­fjöl­skyldunni að tíðindin hefðu ekki verið með öllu óviðbúin.

Ef Barbadosar losa sig við drottninguna og stofna lýðveldi verður það í fyrsta sinn sem ríki losar sig undan breska þjóð­höfðingjanum síðan árið 1992, þegar eyríkið Máritíus í Indlands­hafi gerðist lýðveldi.

Samkvæmt stefnu­ræðu ríkis­stjórnar Barbados, sem var flutt þinginu af yfir­lands­stjóranum (og fulltrúa drottningar í lands­stjórninni) Söndru Mason, en skrifuð af forsætis­ráðherranum Miu Mottley, er stefnt að því að lýðveldi verði stofnað á Barbados áður en eyríkið fagna 55 ára sjálf­stæði sínu 30. nóvember á næsta ári.

Í ræðunni vísaði Mason til viðvörunar­orða fyrsta forsætis­ráðherra Barbados, Errol Walton Barrow, sem sagði það óráð að „hangsa á forsendum nýlendu­herranna“. Hún sagði að það væri enginn vafi um að íbúar Barbados væru færir um að stýra sér sjálfir.

„Tíminn er kominn til þess að skilja nýlendu­fortíð okkar að baki. Barbadosar vilja barbadoskan þjóð­höfðingja,“ sagði yfir­lands­stjórinn í ræðu sinni, sem sjá má brot úr í mynd­skeiðinu hér að ofan.

Hugmyndin rædd síðan á áttunda áratugnum

Það að gera Barbados að lýðveldi er áratuga­gömul hugmynd, en hefur ekki orðið að veruleika. Samkvæmt umfjöllun barbadoska miðilsins Barbados Today réðust stjórn­völd á Barbados í fýsi­leikakönnun á því að segja skilið við drottninguna og stofna lýðveldi árið 1979, en niður­staðan varð sú að halda í stjórnar­skrár­bundið konungs­veldi sem stjórn­skipulag, þar sem það væri í takt við vilja þjóðarinnar.

Árið 1996 var svo sérstök nefnd skipuð til að fara yfir stjórnar­skrá ríkisins og sú nefnd mælti með stofnun lýðveldis. Frumvarp um þjóðar­atkvæða­greiðslu um lýðveldis­stofnun var lagt fram árið 2000, en málið sofnaði að endingu í meðförum þingsins.

Nú er stefnt að því að hrinda þessu í framkvæmd, undir stjórn Miu Mottley, sem er fyrsta konan sem gegnir embætti forsætis­ráðherra á Barbados.

Eyríkið yrði með þessu fjórða ríkið í Karíbahafi til þess að segja skilið við breska konungs­veldið og Elísabetu drottningu, en það gerðu Gvæjana, Trínídad og Tóbagó og Dóminíka þegar á áttunda áratugnum. Þessi þrjú ríki eru þó enn hluti af Samveldinu, Commonwealth, ríkja­sambandi 54 fullvalda ríkja sem flest eru fyrr­verandi nýlendur breska heims­veldisins.

Ef Barbados slítur á þjóð­höfðingja­tengslin við Bretland verður Elísabet drottning þjóð­höfðingi eftir­talinna ríkja: Antígva og Barbúda, Ástralíu, Bahamas, Belís, Kanada, Grenada, Jamaíku, Nýja Sjálands, Papúa Nýju-Gíneu, Saint Kitts og Nevis, Saint Lucia, Saint Vincent og Grenadín, Salomónseyja og Túvalú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár