„Go Away, Red Star!“

Fyrir réttri öld var Rauði her­inn að kné­setja afkom­endur hinna stoltu Mongóla í Mið-Asíu. Sumir muna þá atburði betur en aðrir, eins og Illugi Jök­uls­son leiðir í ljós.

Skarðið í múrnum. Rússneski málarinn Vasily Vereshchagin var að vísu látinn fyrir 16 árum þegar Rauði herinn gerði árás á Bukhara en þessi mynd hans virðist hafa haft forspárgildi.
Skarðið í múr­num. Rúss­neski málar­inn Vasily Vereshchagin var að vísu lát­inn fyrir 16 árum þegar Rauði her­inn gerði árás á Bukhara en þessi mynd hans virð­ist hafa haft for­spár­gildi. Mynd: Wikimedia Commons

Fyrir réttum 100 árum – um mán­aða­mótin ágúst/sept­em­ber 1920 – mætt­ust for­tíð og nútíð í orr­ustu við hina fornu borg Bukhara á gömlu Silki­leið­inni í Mið-Asíu.

Bukhara reis upp úr gróð­ur­lít­illi mörk nán­ast í miðri Mið-Asíu og umhverfis borg­ina var enn gríð­ar­legur múr að hætti mið­alda­borga. Tíu metrar á hæð var hann, og fimm metrar á þykkt. Uppi á borg­ar­múr­unum stóðu stríðs­menn í lit­klæðum með túrbana undir skraut­legum veifum og gunn­fánum með hálf­mána íslams blakt­andi og sveifl­uðu bjúgsverðum sínum og skóku spjót og gerðu hæðn­is­leg hróp að umsát­urs­mönnum, er voru komnir um langan veg til að leggja undir sig borg­ina.

Flugvélar í fyrsta sinn

Umsát­urs­menn voru bara í dauf­litum gróf­gerðum her­manna­bún­ingum 20. aldar og hvergi nærri eins til­komu­miklir og stríðs­menn­irnir uppi á múr­unum. En þeir höfðu nútíma­vopn, gyrtir byssu­beltum, með hríð­skotariffla, stórar vél­byssur, fall­byssur, nokkra skrið­dreka og bryn­varða bíla sem gátu ekið …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár