Meira en milljarður skammta loks afhentur í gegnum COVAX

Markmið COVAX-samstarfsins náðust ekki á síðasta ári. Þó er komið að þeim áfanga að milljarður skammta hefur verið afhentur í gegnum samstarfið. Mun betur má ef duga skal.

Bólusetning með bóluefni Pfizer er hafin í Nepal.
Bólu­setn­ing með bólu­efni Pfizer er hafin í Nepal. Mynd: EPA

Er 1,1 milljón skammta af bóluefni gegn COVID-19 kom til Rúanda á laugardag komst fjöldi skammta sem afhentur hefur verið í gegnum samstarfs­vettvanginn COVAX loks í milljarð. Landið er það eina í Afríku sem búið er að bólusetja 40 prósent íbúanna.

COVAX var sett á stofn fljótlega eftir að heims­faraldurinn skall á og fjöldi þjóða skuldbatt sig til að gefa skammta eða kaupa skammta inn í samstarfið til að koma til fátækari ríkja heims. Skömmtum hefur nú verið útdeilt til 144 landa í gegnum COVAX.

Þetta er vissulega áfangi á þeirri vegferð að bólusetja allan heiminn, líkt og lagt var upp með er stofnað varð til bóluefna­samstarfsins. Hins vegar er enn gríðarleg gjá á milli efnameiri þjóða og þeirra fátækari þegar kemur að bólu­setningum.

Í síðustu viku höfðu 36 aðildar­þjóðir Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunarinnar (WHO) ekki enn náð því takmarki að bólusetja tíu prósent íbúa sinna. Og 88 þjóðir höfðu ekki komist yfir 40 prósenta múrinn sem var hið uppruna­lega markmið sem átti að ná fyrir árslok 2021 í öllum þjóðum heims.

WHO segir markmiðið ekki hafa náðst þar sem ríkustu þjóðirnar hafi frá upphafi hamstrað bóluefni. Þá kennir stofnunin því einnig um að lyfja­fyrirtækin hafi ekki viljað gefa eftir einka­leyfi sín og því ekki hægt að framleiða bóluefnin hvar sem er.

Þurftu að farga miklu magni

COVAX leggur áherslu á að um leið og bóluefni koma inn í samstarfið séu þau send af stað á leiðar­enda. Það vill þó brenna við að skammtar sem eru við það að komast á síðasta notkunardag séu gefnir til fátækari ríkja. Í síðustu viku varð t.d. að farga 400 þúsund skömmtum af bóluefni frá Moderna og AstraZeneca í Úganda. Skammtana átti að nota í norður­hluta landsins þar sem bólu­setningar­hlutfall er enn gríðar­lega lágt. En þegar bóluefnin komu voru innviðirnir ekki tilbúnir en hefja þurfti bólu­setningu þar sem hluti skammt­anna var að renna út.

Framkvæmda­stjóri WHO sagði nýverið að nú virtist endirinn á faraldrinum vera í sjónmáli en ítrekaði að það myndi aðeins takast eftir að bólu­setningar alls staðar nái ákveðnu hlutfalli.

Rétt tæp 60 prósent jarðarbúa hafa fengið að minnsta kosti einn bóluefna­skammt. Það hljómar mjög vel. En þegar hlut­fallið er skoðað milli heims­hluta blasir misréttið við. Aðeins 9,5 prósent af íbúum fátækustu landanna hafa fengið að minnsta kosti einn skammt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár