Alina fær alþjóðlega vernd á Íslandi

Útlendinga­stofnun hefur samþykkt að veita Al­inu Kaliuzhnaya, hvít- rússneskri flótta­konu alþjóð­lega vernd á Íslandi en Alina flúði heimaland sitt eftir að hafa verið fangelsuð og pyntuð fyrir það eitt að mótmæla stjórn­völdum. Í samtali við Stundina segist Alina upplifa gleði og létti.

Hlýtur vernd
Hlýtur vernd Alina hefur hlotið alþjóð­lega vernd á Íslandi. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég er svo glöð að upplifa öryggi,“ segir Alina Kaliuzhnaya, pólitísk flótta­kona frá Hvíta-Rússlandi, sem hefur nú hlotið alþjóð­lega vernd á Íslandi á grund­velli „ástæðu­ríks ótta við ofsóknir í heima­landi sínu,“ eins og segir í ákvörðun Útlendinga­stofnunar.

„Mér er svo létt að þessu ferli, sem hefur tekið meira en ár, sé loks lokið og ég finn til mikillar gleði. Innst inni vonaði ég að ég fengi vernd en ég gat aldrei verið alveg viss. Mig langar að nýta tækifærið og þakka öllu umhyggju­sama fólkinu sem studdi og hjálpaði mér allan þennan tíma,“ segir Alina. 

Alina sagði nýverið sögu sína af ástandinu í heima­landi sínu í Stundinni. Þar sagði hún frá því að hún hefði verið fangelsuð, pyntuð og eftirlýst sem og frá flóttanum þaðan og hingað til lands. Hún greindi þar einnig frá ákvörðun Útlendinga­stofnunnar um að taka málið hennar ekki til efnislegrar meðferðar, sem síðar var …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Theresa Arnadottir skrifaði
    Til hamingju, glod heyra þu fekkst loksins verrnd herna, goda frettir svona af og til, mætti vera fleiri samt godar frettir af svona malum.
    3
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Og þó fyrr hefði verið!
    2
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Sem betur fer þá kemur ein og ein góð frétt.😀
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár