Forseti Alþjóðabankans segir óvænt af sér

Jim Yong Kim, forseti Alþjóða­bankans, tilkynnti skyndi­lega í gær að hann ætli að hætta hjá bankanum um næstu mánaðarmót. Kim hefur starfað sem forseti frá árinu 2012 en þrjú ár eru þar til skipunar­tíma hans lýkur.

Jim Yong Kim, forseti Alþjóðabankans.
Jim Yong Kim, for­seti Alþjóða­bank­ans. Mynd: EPA

Jim Yong Kim, forseti Alþjóða­bankans, tilkynnti í gær að hann ætli að hætta hjá bankanum eftir sex ár í embætti. Þrjú ár eru þar til skipunar­tíma hans lýkur en hann var endur­kjörin til fimm ára árið 2017. Framkvæmda­stjóri bankans, Kristalina Georgieva, tekur við sem forseti tíma­bundið þegar Kim hættir um næstu mánaðamót. Frá þessu var greint á vef BBC í dag.

Kim ætlar að snúa sér að einkageiranum

Engin ástæða hefur verið gefin fyrir ákvörðun Kim önnur en hann ætli að snúa aftur í einka­geirann um mánaða­mótin. Í tilkynningu frá Alþjóða­bankanum segir að Kim ætli nú að ráða sig til fyrir­tækis sem sérhæfir sig í fjár­festingum í innviðum í þróunar­löndum. Í tíð Kim sem forseta bankans var markmið um að eyða algerri fátækt í heiminum fyrir árið 2030 samþykkt.

Samkvæmt frétt BBC hefur Kim forðast að malda í móinn við Donald Trump, Bandaríkja­forseta, opinber­lega en þeim greinir sérstak­lega á um lofts­lagsmál. Í tíð Kim hefur Alþjóða­bankinn hætt að lána fyrir kola­orku­verkefnum á sama tíma og Trump hefur reynt að bjarga deyjandi kolaiðnað í Banda­ríkjunum. Á síðasta ári fékk bankinn 13 milljarða aukalega eftir að fallist var á kröfur Trump um að haldið væri aftur af lánveitingum til ríkja á borð við Kína, sem njóta mikillar hagsældar en eru skilgreind sem þróunar­ríki.

Hefð að Bandaríkjastjórn tilnefni forseta Alþjóðabankans

Alþjóða­bankinn og Alþjóða gjaldeyris­sjóðurinn voru stofnaðir á ráðstefnu í Bretton Woods í Banda­ríkjunum árið 1944. Alþjóða­bankanum hefur það frum­hlutverk að lána þróunar­löndum peninga en 189 þjóðir heims eru aðilar að bankanum.

Alþjóða­bankinn segir að hafist verði handar nú þegar til að finna varanlegan eftirmann Kim. Óskrifuð regla Alþjóða­bankans segir að æðsti yfirmaður hans sé alltaf valinn af stærsta hlut­hafanum , sem eru Banda­ríkin. Evrópu­ríki fái hins vegar að velja æðsta yfirmann Alþjóða gjaldeyris­sjóðsins. Kim, sem er Bandaríkja­maður af kóreskum ættum, var tilnefndur af Barack Obama, fyrr­verandi Bandaríkja­forseta. Því er talið að ákvörðun Kim gefi Donald Trump, forseta Banda­ríkjanna, tækifæri til þess að hafa áhrif á hver muni taka við stjórnar­taumunum í Alþjóða­bankanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár