Engir smá prósar

Það er ekki annað hægt en mæla með lestri þessa stóra smá­prósa­verks við sem flesta les­endur, en það er senni­lega ekki ráð­legt að lesa þá í einni beit eins og maður neyð­ist til að gera þegar maður les sem gagn­rýn­andi. Það er heldur ekki vit að lesa bara einn og einn í einu heldur er betra að lesa nokkra þannig að úr verði blanda af kímni og þyngslum, upp­ljóm­unum og ang­ist, skrifar Jón Yngvi.

Bók

Þöglu mynd­irnar / Pens­il­skrift

Smáprósar I og II
Höfundur Gyrðir Elíasson
Dimma
538 blaðsíður
Gefðu umsögn

Nýjasta verk Gyrðis Elí­as­sonar er skemmti­lega mót­sagna­kennt, næstum óskamm­feilið – og mjög í anda höf­und­ar­ins. Pens­il­skrift og Þöglu mynd­irnar er safn smá­prósa, en safnið er helj­ar­stórt, sam­tals einir 277 prósar, ef ég hef talið rétt, á rúm­lega 500 síðum. Þeim er skipt í tvær bækur en samt er óhjá­kvæmi­legt að líta á þetta sem eitt verk og það verk er raunar ekki ein­hamt heldur virð­ist teygja sig í nokkrar áttir. Þannig eru smá­prósar snemma í fyrra bind­inu sem eru merktir með róm­verskum tölu­stöfum eins og „Sikil­eyj­ar­vörn II“ og „Kaþólsk við­horf II“ en það er sama hvernig les­and­inn leitar, hvergi finnur hann „Sikil­eyj­ar­vörn I“ eða „Kaþólsk við­horf I“. Jafnvel þótt gluggað sé í önnur prósa­söfn Gyrðis er þá hvergi að finna – kannski eiga þeir eftir að koma í leit­irnar í öðrum bókum sem tengj­ast þessum.

Það er eig­in­lega óhjá­kvæmi­legt að lesa þetta verk í sam­hengi við fyrri verk skálds­ins. …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár