Nokkur tilboð voru yfir 11 milljörðum í hlut HS Orku í Bláa lóninu

Meirihluta­eigandi HS Orku segir að nokkur tilboð hafi borist í 30 prósent hlut fyrir­tækisins í Bláa lóninu sem hafi verið yfir ellefu milljörðum króna. Minnihluta­eigendur telja virði hlutarins meira og höfnuðu öllum fyrir­liggjandi tilboðum.

Nokkur tilboð bárust í 30 prósent hlut HS Orku í Bláa lóninu sem voru yfir 90 milljónum evra, eða 11 milljörðum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Alterra Power, stærsti eigandi HS Orku sem skráð er á hlutabréfa­markað í Kanada, sendi frá sér í gær.

Í tilkynningunni segir enn fremur að einka­viðræður hafi farið fram við þann bjóðanda sem þótti álitlegastur, og hafi boðið um 90 milljónir evra í hlutinn. Greint hefur verið frá því í íslenskum fjöl­miðlum að sá bjóðandi var bandaríski fjár­festingar­sjóðurinn Blackstone. Í tilkynningu Alterra segir að þótt félagið hafi verið tilbúið að selja þessum aðila hlutinn þá hafi meðeigandi þess, íslenska félagið Jarðvarmi sem á 33,4 prósent hlut í HS Orku, hafnað því. Samþykki Jarðvarma, sem er í eigu 14 íslenskra lífeyris­sjóða, hafi verið nauðsynlegt vegna hluthafa­samkomulags um minnihluta­vernd sem gert var þegar Jarðvarmi keypti upphaf­lega hlut í HS Orku sumarið 2011. Alterra Power segir að sölu­ferlinu á hlutnum í Bláa lóninu sé nú lokið en að það verði mögulega endur­vakið síðar.

Davíð Rúdólfsson, stjórnar­formaður Jarðvarma, sagði við Morgun­blaðið í vikunni að félagið hafi metið það sem svo að tilboðin sem fyrir lágu hefðu ekki endur­speglað virði Bláa lónsins. „Við teljum það verð­mætara en þau tilboð sem komu fram.“ Heildar­virði Bláa lónsins samkvæmt tilboðunum sem fyrir lágu var 37 milljarðar króna.

Aug­lýstur til sölu í maí

HS Orka sendi frá sér til­kynn­ingu um miðjan maí síð­ast­lið­inn þar sem fram kom að það ætl­aði að kanna mög­u­­lega sölu á hlut sínum í Bláa lón­inu, í heild eða að hluta. Stöplar Advisory sáu um að ræða við hugs­an­­lega fjár­­­festa og stýra ferl­inu fyrir hönd HS Orku, en í til­­kynn­ing­unni kom fram að þessi ákvörðun væri tekin í kjöl­farið á sýndum áhuga á hlutnum í Bláa lón­in­u.

„HS Orka hefur verið hlut­hafi í Bláa Lón­inu frá upp­­hafi og hefur stolt stutt við vöxt þess. Bláa Lónið er nú með umfangs­­mik­inn rekst­­ur, dafnar og er enn í veru­­legum vexti. Þrátt fyrir að um ein­staka eign sé að ræða og þá fellur starf­­semi Bláa Lóns­ins ekki að kjarna­­starf­­semi HS Orku sem er fram­­leiðsla og sala end­­ur­nýj­an­­legrar orku. Því ákváðum við að hefja þetta ferli,“ var haft eftir Ásgeiri Mar­­geir­s­­syni, for­­stjóra HS Orku, í frétta­til­kynn­ing­unn­i.

Hagn­aður HS Orku í fyrra nam 2,7 millj­­örðum króna og heild­­ar­­tekjur 7,1 millj­­arði króna. Heild­­ar­­eignir félags­­ins voru bók­­færðar á tæp­­lega 50 millj­­arða króna. Óhætt er því að segja að rekstur félags­­ins sé í góðu horfi þessa dag­ana.

Hlut­­ur­inn í Bláa lón­inu var met­inn á 1,8 millj­­arða króna í árs­­reikn­ingi sem þýðir að félagið var metið á um sex millj­­arða króna sam­kvæmt þeim mæli­kvarða. Ljóst er, miðað við til­boð Blackstone, að virði Bláa lóns­ins er veru­lega van­metið í bókum HS Orku.

Ein­ungis arð­greiðslan til hlut­hafa Bláa lóns­ins nam 1,4 millj­­arði, vegna árs­ins 2015. Vegna síðasta árs nam arðgreiðslan 1,5 milljarði króna. Því hefur Bláa lónið greitt næstum þrjá milljarða króna í arð á tveimur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár