Skoða sölu á 30 prósenta hlut í Bláa lóninu

HS Orka ætlar að kanna mögulega sölu á 30% hlut sínum í Bláa lóninu, í kjölfar áhuga á hlutnum.

HS Orka ætlar að kanna mögulega sölu á hlut sínum í Bláa lóninu, í heild eða að hluta. HS Orka á 30 prósenta hlut í lóninu. Frá þessu er greint í frétta­tilkynningu frá fyrir­tækinu.

Stöplar Advisory munu ræða við hugsanlega fjárfesta og stýra ferlinu fyrir hönd HS Orku, en í tilkynningunni kemur fram að þessi ákvörðun sé tekin í kjölfarið á sýndum áhuga á hlutnum í Bláa lóninu.

„HS Orka hefur verið hluthafi í Bláa Lóninu frá upphafi og hefur stolt stutt við vöxt þess. Bláa Lónið er nú með umfangs­mikinn rekstur, dafnar og er enn í verulegum vexti. Þrátt fyrir að um einstaka eign sé að ræða og þá fellur starfsemi Bláa Lónsins ekki að kjarna­starfsemi HS Orku sem er fram­leiðsla og sala endurnýjanlegrar orku. Því ákváðum við að hefja þetta ferli,“ er haft eftir Ásgeiri Margeirs­syni, forstjóra HS Orku, í frétta­tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár