Framkvæmdastjóri WHO bjartsýnn á að faraldrinum ljúki í ár

„Nú þegar þriðja ár faraldursins er hafið er ég sann­færður um að þetta verði árið sem við bindum endi á hann – en aðeins ef við gerum það saman,“ sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmda­stjóri WHO í nýárs­ávarpi sínu.

Tvö ár eru liðin frá því að Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnuninni (WHO) var fyrst gert viðvart um tilfelli lungna­bólgu af óþekktum orsökum í Kína. Framkvæmda­stjóri stofnunarinnar segist í nýárs­ávarpi sínu bjartsýnn á að nú hylli undir lok faraldurs COVID-19 en aðeins að því gefnu að þjóðir heims vinni saman. Hann varar við „þröngri þjóðernis­stefnu“ og því að lönd hamstri bóluefni. „Nú þegar þriðja ár faraldursins er hafið er ég sann­færður um að þetta verði árið sem við bindum endi á hann – en aðeins ef við gerum það saman,“ sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmda­stjóri WHO í ávarpi sínu.

Frá upphafi faraldursins hafa um 290 milljónir manna greinst með veiruna. 5,5 milljónir hafa látist vegna COVID-19. Tveimur árum eftir að faraldurinn hófst eru áhrif hans á líf fólks og samfélög enn mikill: Harðar takmarkanir eru á landa­mærum margra ríkja, fjöl­skyldur geta ekki verið saman og víða er grímu­skylda, fjölda­takmarkanir og nálægða­regla í gildi.

Þrátt fyrir allt þetta var bjartsýnis­tónn í ávarpi framkvæmda­stjóra WHO, og benti hann á að eftir alla þessa mánuði væri búið að finna mörg verkfæri til að takast á við faraldurinn. Varúðarorð hans voru þó alvarleg. Hann ítrekar, enn og aftur, mikilvægi þess að bólusetja sem flesta í heiminum svo koma megi í veg fyrir að ný afbrigði veirunnar skjóti upp kollinum í óbólusettum samfélögum. Verði slíkar aðstæður áfram uppi er ómögulegt að spá fyrir um þróunina á næstunni. „Ef við bindum enda á ójafnrétti þá bindum við enda á faraldurinn,“ sagði hann og vísaði þar til þess að ríkustu þjóðir heims hafa hreinlega hamstrað bóluefni á sama tíma og fátækari ríki hafa ekki nóg til að bólusetja sína viðkvæmustu hópa og framlínu­starfsfólk.

Að sögn sérfræðinga víða um heim er ýmislegt sem bendir til að ómíkrón-afbrigði kórónu­veirunnar, sem rétt rúmur mánuður er síðan uppgötvaðist en hefur breiðst til allra heims­horna, valdi vægari einkennum en þau fyrri. Í Suður-Afríku, þar sem það uppgötvaðist í lok nóvember, hefur útgöngu­banni verið aflétt enda talið að smit­bylgjan sem þar gengur yfir hafi náð hámarki sínu. Þýski veiru­fræðingurinn Christian Drosten sagði í gær ísamtali við þýska sjón­varpið að ætti von á „frekar hefð­bundnum“ vetri þar sem gögn bentu til að tilfelli ómíkrón væri ekki alvarleg.

Gríðarlegur fjöldi tilfella en færri innlagnir

Aldrei hafa fleiri tilfelli verið að greinast í mörgum löndum, m.a. Bretlandi, á Ítalíu og Grikk­landi, og þessa dagana. Sjúkrahús­innlagnir eru þó hlutfalls­lega mun færri en í t.d. bylgjunum sem delta-afbrigðið skæða olli. Í Suður-Afríku sem og í Banda­ríkjunum eru það fyrst og fremst óbólusettir sem eru lagðir inn vegna sýkingar af völdum ómíkrón.

8,5 milljörðum skammta af bóluefni gegn COVID-19 hefur verið dreift og sagði Tedros í ávarpi sínu að bóluefnin hafi bjargað milljónum mannslífa. WHO setti það markmið að í það minnsta 40 prósent íbúa allra landa yrðu bólusett við lok ársins 2021. Það stóðst engan veginn og í mörgum fátækustu ríkjum heims telur hlut­fallið aðeins örfá prósent. Á sama tíma hafa mörg ríki, flest vestræn, náð um og yfir 80 prósent bólu­setningar­hlutfalli og hafa hafið örvunar­bólu­setningar sem þykja gefa góða raun gegn alvarlegum veikindum vegna COVID-19.

Framkvæmda­stjóri WHO segir að svo stöðva megi faraldurinn í ár þurfi að ná því markmiði að bólusetja 70 prósent íbúa allra ríkja fyrir lok júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár