Fjárfestingafélag Samherja kaupir Landsbankahúsið á Akureyri

Fjár­festinga­félagið Kaldbakur bauð hæst í Lands­bankahúsið á Akureyri. Kaup­verðið nemur 685 milljónum króna.

Landsbankahúsið á Akureyri var tekið í notkun árið 1954.
Lands­banka­húsið á Akureyri var tekið í notkun árið 1954. Mynd: Landsbankinn

Kaldbakur, fjár­festinga­félag sem heldur utan um eignir útgerðar­félagsins Samherja, hefur keypt Lands­bankahúsið á Akureyri, sem bankinn auglýsti til sölu fyrir um mánuði síðan. Frá þessu er sagt í tilkynningu á vef Samherja, en þar kemur fram að Kaldbakur hafi átt hæsta boð í húsið – eða 685 milljónir króna.

Í tilkynningu á vef Samherja er haft eftir Eiríki S. Jóhanns­syni framkvæmda­stjóra Kaldbaks, sem einnig er stjórnar­formaður Samherja, að Kaldbakur vilji leggja sitt af mörkum til að varðveita Lands­bankahúsið, sem tekið var í notkun árið 1954, og glæða það frekara lífi í fram­tíðinni. Húsið er um 2.400 fermetrar og voru fyrstu tillögu­uppdrættir að byggingunni gerðar af Guðjóni Samúels­syni, fyrr­verandi húsa­meistara ríkisins, en að honum látnum tók Bárður Ísleifsson við verkinu og kláraði hönnun hússins.

„Við erum vel meðvituð um upphaf­lega tillögu­uppdrætti Guðjóns Samúels­sonar sem sýna húsið bæði hærra og stærra. Við munum skoða þessi mál í fram­haldinu, þannig að nýting hússins verði sem best og sómi þess og bæjar­prýði verði sem mest. Okkar sannfæring er að Akureyri komi til með að vaxa og dafna á komandi árum sem miðstöð búsetu, menningar og atvinnu­lífs á Norður­landi og sem helsta þéttbýli utan höfuð­borgar­svæðisins. Kaupin á Lands­bankahúsinu veitir Kaldbaki kærkomið tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu miðbæjarins og styrkja þannig mikilvægt hlutverk Akureyrar. Þess vegna er um að ræða góða fjár­festingu sem er jú megin ástæða þessara kaupa,“ er haft eftir Eiríki í tilkynningunni á vef Samherja.

Þar er einnig haft eftir Lilju Björk Einars­dóttur banka­stjóra Lands­bankans að húsið sé mikil bæjar­prýði og hafi reynst bankanum vel, en að talsvert sé síðan að það var orðið of stórt fyrir starfsemi bankans í Akureyrarbæ.

„Okkur líst því vel á áform nýrra eigenda um að glæða húsið nýju lífi og mögu­leikarnir eru svo sannarlega til staðar,“ er haft eftir Lilju Björk í tilkynningunni. Starfsemi bankans verður áfram í húsinu um tíma, en Lands­bankinn er svo byrjaður að líta í kringum sig eftir nýju framtíðar­húsnæði á Akureyri.

Kristján Vilhelmsson á bak við kaup Landsbankahússins á Selfossi

Ekki er langt um liðið frá því að annað hús sem áður var í eigu Lands­bankans var selt til aðila með tengsl við norð­lenska útgerðar­félagið, en árið 2020 var húseign bankans við Austurveg á Selfossi auglýst til sölu.

Kaup­andinn var Sigtún þróunar­félag, sem einnig hefur staðið á bak við uppbyggingu nýs miðbæjar á Selfossi. Annar tveggja stærstu eigenda þess félags er Kristján Vilhelmsson, einn af tveimur fyrr­verandi aðal­eigendum Samherja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár