Veiran skekur markaði

Ótti við að kóróna­veiran muni valda miklum efnahags­legum vanda­málum, eins og hún hefur nú þegar gert í Kína, virðist hræða markaði um allan heim. Þeir einkenndust af röðum tölum lækkunar í dag.

Hlutabréfa­vísitölur víða um heim lækkuðu mikið í dag – flestar á bilinu 3 til 6 prósent – en samkvæmt umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC, óttast margir fjár­festar að kóróna­veiran, sem átti upptök í Wuhan í Kína, muni valda miklum vandræðum í heiminum á næstunni, vegna þess hve hratt hún er að breiðast út utan Kína.

Efnahagslegar afleiðingar veirunnar hafa nú þegar orðið verulegar í Kína og má meðal annars nefna, að bílasala hefur hrunið um rúmlega 90 prósent, smásala um tugi prósenta og flug­ferðum hefur fækkað um meira en 30 prósent til og frá landinu.

Þá hafa einnig verið miklir hnökrar á millríkjaviðskiptum með skipum, og þau ganga oft hægt fyrir sig.

Veiran hefur að undan­förnu breiðst út í bæði Suður-Kóreu og Íran, og samkvæmt upplýsingum frá Alþjóða­heilbrigðis­stofnuninni er þörf á miklu umfangs­meiri aðgerðum til að sporna við útbreiðslu veirunnar.

Um 1.200 tilfelli hafa nú verið greind í 30 löndum, en samtals hafa nú 2.600 manns látið lífið vegna veirunnar og hafa 77 þúsund einstaklingar verið greindir.

Nokkur skjálfti var á mörkuðum hér á landi í dag, og sáust rauðar tölur lækkunar hjá öllum skráðum félögum. Icelandair lækkaði mest, eða um 8,74prósent, en vísitala íslenska markaðarins lækkaði um 3,67 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár