Bandarískir bankamenn beita fjármálaráðherrann þrýstingi

Í bréfi sem skrifað var til Jacob Lew, fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, er hann hvattur til að beita sér fyrir því að útganga Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu gangi hratt og vel.

Helstu hags­muna­gæslu­sam­tök banda­rískra banka­manna hafa skrifað fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Jacob Lew, bréf og hvatt hann til þess að reyna að beita sér fyrir því, að útganga Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu gangi hratt og vel fyrir sig.

Þetta kemur fram í frétt breska rík­is­út­varps­ins BBC. Í bréf­inu lýsa nokkur helstu sam­tök fjár­mála­geirans í Banda­ríkj­unum yfir áhyggjum sínum vegna þess að þau telja að útgangan, þegar hún verður form­lega að veru­leika, muni hafa mikil áhrif á heims­bú­skap­inn og ekki síst fjár­mála­geir­ann. Störf muni hverfa og nei­kvæð áhrif verði mikil og var­an­leg.

Samtökin sem um ræðir eru American Bankers Association, The Financial Services Forum, The Financial Services Roundtable and The Securities Industry and Financial Markets Association.

Í bréf­inu eru sér­stak­lega talin upp fjögur atriði, sem Lew er beðin um að hafa bak við eyrað, þegar þjóðir heims, bæði í Evr­ópu­sam­band­inu og utan þess, fara að ræða um næstu Brexit-skref og kort­leggja mögu­leg áhrif.

1. Viðræður um útgöngu verði gagn­sæjar.

2. Hlut­hafar úr við­skipta­líf­inu verði hafðir með í ráðum og til ráð­gjafar.

3. Bretland og Evr­ópu­sam­bandið geri með sér sam­komu­lag sem sé í sam­ræmi við alþjóð­lega staðla.

4. Óvissu verði eytt eða hún minnkum eins og mögu­lega er hægt.

Viðræður um hvenær Bretland mun yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið eru ekki hafnar og raunar leikur vafi á því hvenær þær munu gera það. Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur sagt að rík­is­stjórn hennar muni beita sér fyrir því að hafa allt uppi á borðum og stefna að útgöngu eins hratt og mögu­legt er. Það verði þó gert á for­sendum Bret­lands, fremur en Evr­ópu­sam­bands­ins.

For­ystu­fólk Evr­ópu­sam­bands­ins hefur hins vegar ítrekað að nauð­syn­legt sé fyrir Breta að eyða óvissu um málið, og flýta ferl­inu enn meira. Ekki sé eftir neinu að bíða. Bretland eigi að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið, eins hratt og mögu­legt er, fyrst það er vilji lands­manna og rík­is­stjórn­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár