Jökulhrun olli hamförunum í Nepal

Flóð skall á og þurrkaði út þorp og bæði í Nepal og Tíbet. Myndband sýnir fólk á landamæra­stöð reyna að hlaupa undan flóðinu. Minnst 273 létust og hundruða er saknað. Nú er talið er að jökulhrun hafi valdið hamförunum.

Stór ísmassi féll úr fjöllunum í Nepal, nærri Tíbet, 5.200 metra niður í á þar fyrir neðan, sem gæti það hafa hrundið af stað hamförum í Nepal og Tíbet. 

Öflugt flóð brast á sem sópaði heilu þorpunum á brott og olli bana minnst 273 einstaklinga. Hundruða til viðbótar er saknað. 

„Stór hluti jökuls féll úr um 5.200 metra hæð ... niður í dal,“ sagði Simon Cox, aðal­vísinda­maður GNS Science á Nýja-Sjálandi við AFP. Ísmassinn hafi „breyst í ofsa­fenginn massa af aur og braki ... sem hrífur með sér grjót, set, tré og allt sem á vegi hans verður og þeytir því áfram niður gljúfrið.“

Að morgni miðvikudags þutu gríðar­legir straumar vatns, aurs og braks niður dali beggja vegna landa­mæranna og skall fyrst á landamærastöð. Ógnvekjandi upptökur úr öryggis­myndavélum sýna aur og brak gleypa svæðið á meðan fólk reynir skelfingu lostið að flýja undan flóðinu. 

Flóðið …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár