Vilja sjá sex strætóbílstjóra, sex strætófarþega og sex pólitíkusa í stjórn Strætó

Borgar­stjórn Reykja­víkur ákvað á þriðjudag að vísa tillögum Sósíal­ista um að stækka stjórn Strætó upp í 18 manns til umræðu á vettvangi Samtaka sveitar­félaga á höfuð­borgar­svæðinu. Borgar­fulltrúi Vinstri grænna telur að tillagan verði svæfð þar.

Sósíalistar fengu tvo menn kjörna í borgarstjórn fyrir röskum mánuði síðan.
Sós­í­alistar fengu tvo menn kjörna í borg­ar­stjórn fyrir röskum mán­uði síðan. Mynd: Aðsend

Borgar­fulltrúar Sósíalista­flokksins lögðu fram tillögur á borgar­stjórnar­fundi á þriðjudag, þess efnis að vagn­stjórar og farþegar fengju fulltrúa í stjórn Strætó. Í dag er stjórn Strætó skipuð kjörnum fulltrúum í sveitar­félögunum á höfuð­borgar­svæðinu, sem eiga Strætó í sameiningu.

Borgar­stjórn ákvað að umræðu lokinni að vísa tillögum sósíal­ista til meðferðar hjá Samtökum sveitar­félaga á höfuð­borgar­svæðinu, en á það var bent af hálfu fulltrúa borgar­stjórnar­meirihlutans í umræðum á fundinum í gær að Reykja­víkurborg gæti ein og sér ekki ákveðið að vagn­stjórar og farþegar ættu að taka sæti í stjórninni.

Borgar­fulltrúar Sósíalista­flokksins stungu einnig upp á því á fundinum að vísa tillög­unni beint til stjórnar Strætó, en þá var var á það að Strætó hefði ekki heimild til þess að taka ákvörðun um breytt fyrir­komulag stjórnarinnar. Það þyrftu sveitar­félögin á höfuð­borgar­svæðinu að gera í sameiningu á sínum vettvangi.

„Strætó hefur ekki heimild til að stækka sjálfan sig,“ sagði Þórdís Lóa Þórhalls­dóttir, borgar­fulltrúi Viðreisnar. „Það væri nú svolítið kyndugt ef stjórnir gætu bara stækkað sjálfa sig og minnkað,“ sagði borgar­fulltrúinn.

Sex vagnstjóra og sex farþega inn í stjórnina

Tillögur Sósíalista­flokksins ganga út frá því að alls sex vagn­stjórar setjist í stjórn Strætó og sex fulltrúar farþega einnig. Það yrði þá einn fulltrúi strætó­farþega úr hverju sveitar­félagi, til viðbótar við þá sex pólitíkusa sem sitja í stjórn Strætó í dag. Stjórnin myndi þá stækka úr sex manns upp í átján.

Í tillögu Sósíalista­flokksins um vagn­stjórana sagði að þrír af sex fulltrúm vagn­stjóra ættu að vera fastráðnir starfs­menn Strætó bs., en hinir þrír vagn­stjórarnir yrðu starfs­menn þeirra verktaka sem sjá um akstur strætis­vagna fyrir Strætó bs. Í tillög­unni er bent á að vagn­stjórar hafi áður verið hluti af stjórn Strætis­vagna Reykja­víkur (SVR) og einnig segir að það „sé eðlilegt og lýðræðislegt að vagn­stjórar, sem þekkja leiðirnar best og vita hvernig strætó­kerfið virkar komi að mótun þess“.

„Vagn­stjórar hafa oft bent á hvað þyrfti að laga hjá Strætó. Borið hefur á óánægju með ákvarðanir sem hafa verið teknar án þeirra samráðs. Það myndi bæði bæta þjónustuna og gera starf þeirra betra að hlustað sé á þeirra rödd,“ segir í greinar­gerð með tillögu sósíal­ista.

Í tillögu borgar­fulltrúa Sósíalista­flokksins um farþega í stjórn Strætó segir að mikilvægt sé að „rödd strætó­farþega komi að daglegri þjónustu­veitingu“.

„Eðlilegt er að rödd þeirra sem nota almennings­þjónustu hafi vægi og áhrif á ákvarðana­töku um mótun hennar. Til að auka notkun almennings­samganga þyrfti að laga þjónustuna að þörfum þeirra sem að nota hana, munu nota hana eða vonast er til að noti hana í fram­tíðinni. Besta leiðin til þess er að þeir sem nú þegar nota hana, og hafa þannig aflað sérþekkingu á annmörkum hennar og styrk­leikum, komi að stefnu­mótun hennar. Þannig verði bestu mögulegu burðum þjónustunnar náð,“ segir í greinar­gerð með tillögu Sósíalista­flokksins.

Telur að málið verði svæft hjá SSH

Líf Magneu­dóttir borgar­fulltrúi Vinstri grænna kaus gegn því að tillög­unni yrði vísað til SSH, þar sem henni fannst máls­meðferðin og sá farvegur sem meirihluti borgar­stjórnar kaus að beina málinu í bera þess merki að það ætti að „svæfa málið á vettvangi SSH“.

„Því hver ætlar að taka þessa tillögu sósíal­istanna upp, tala fyrir henni og hafa áhrif? Enginn,“ sagði Líf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár