Sameining á Suðurlandi: Yrði stærsta sveitarfélag landsins

Kosið verður um sameiningu fimm sveitar­félaga á Suður­landi samhliða þing­kosningum í september. Samþykki íbúar tillöguna verður hið nýja sveitar­félag það stærsta á Íslandi og mun ná yfir um sextán prósent af landinu.

Þjófafoss í Þjórsá í Rangárþingi ytra.
Þjófa­foss í Þjórsá í Rangár­þingi ytra. Mynd: Af vef Sveitarfélagsins Suðurlands

Sveitar­stjórnir Ásahrepps, Mýrdals­hrepps, Rangár­þings eystra, Rangár­þings ytra og Skaftár­hrepps hafa ákveðið að atkvæða­greiðsla um sameiningu sveitar­félaganna skuli fara fram samhliða Alþingis­kosningum þann 25. september í samræmi við tillögu samstarfs­nefndar sem skipuð var fulltrúum þeirra allra. Verkefnið, sem unnið hefur verið að um nokkurra mánaða skeið, hefur hlotið nafnið Sveitar­félagið Suðurland og er unnið í samræmi við stefnu samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra um sameiningu sveitar­félaga og þings­ályktun um stefnu­mótandi áætlun í málefnum sveitar­félaga fyrir árin 2019–2033 og aðgerða­áætlun fyrir árin 2019–2023.

Samstarfs­nefndin var skipuð í nóvember í fyrra í framhaldi af könnunar­viðræðum sveitar­félaganna. Í byrjun júní var svo tillaga nefndarinnar og skýrsla henni til grund­vallar, Sveitar­félagið Suðurland-stöðu­greining og forsendur, birt. Er það álit nefndarinnar að fram skuli fara atkvæða­greiðsla meðal íbúa sveitar­félaganna um sameiningu þeirra.

Sveitar­stjórnirnar hafa fjallað um málið á fundum sínum undan­farna daga og vikur og fjórar þeirra hafa þegar afgreitt tillögu samstarfs­nefndarinnar og einnig samþykkt að fela henni undir­búning atkvæða­greiðslunnar. Skaftár­hreppur á enn eftir að taka málið til síðari umræðu og verður það gert á fundi um miðjan júlí.

Sameinað sveitar­félag yrði 15.659 ferkílómetrar og þar með það stærsta á Íslandi að flatar­máli, eða um 16 prósent af heildar­stærð landsins. Í stöðu­greiningu á mögulegri sameiningu, þar sem hugmyndir samstarfs­nefndarinnar og niður­stöðum greininga ráðgjafa er lýst, kemur fram að fjar­lægðir eru meðal helstu áskorana. Öll sveitar­félögin skora á ríkið að bæta samgöngur innan svæðisins með sérstakri áherslu á bundið slitlag á héraðs- og tengivegi.

Íbúar sveitar­félaganna fimm voru 5.317 í ársbyrjun 2021. Nýja sveitar­félagið yrði því níunda fjölmennasta sveitar­félag á Íslandi. Íbúum hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu ár og um 22 prósent á einum áratug. Fjölgunin skýrist af nýjum íbúum með erlent ríkisfang. Þeir voru 1.157 árið 2019 eða um 23 prósent íbúa. Hlutfall þeirra var langhæst í Mýrdals­hreppi eða um 40 prósent. „Áskorun felst í því að taka á móti þessum íbúum og nýta menntun þeirra og færni,“ segir í stöðu­greiningunni. Íbúum með íslenskt ríkisfang hefur hins vegar fækkað á sama tíma.

Sveitar­félögin hafa öll sína sérstöðu og eru ólík á marga vegu þó að þau eigi einnig fjölmargt sameiginlegt. Í Rangár­þingi eystra búa yfir 1.900 manns en í Ásahreppi um 270. Í flestum þeirra hefur ferða­þjónusta vaxið gríðar­lega síðustu ár enda þar að finna margar helstu náttúru­perlur Íslands. Innan tveggja þeirra, Ásahrepps og Rangár­þings ytra, eru margar stærstu virkjanir landsins sem af hljótast umtals­verðar tekjur. Bæði tekjur og skuldir sveitar­félaganna fimm eru misjafnar.

Á svæðinu eru fimm sveitar­stjórnir með samtals 29 fulltrúa. Þá eru tvö byggðaráð starfandi með samtals sex fulltrúa. Á vegum sveitar­félaganna eru auk þess starfandi 36 fasta­nefndir sem í sitja 152 fulltrúar. Samtals skipa sveitar­félögin fulltrúa í 370 sæti í 103 stjórnum, nefndum eða ráðum.

Kostnaður við laun stjórna, ráða og nefnda nemur samanlagt um 80-90 milljónum króna á ári. Hjá sveitar­félögunum eru 34 starfs­menn og eru starfs­menn í fjármálum og stjórn­sýslu hlutfalls­lega fleiri á svæðinu en hjá saman­burðar sveitar­félögum, segir í stöðu­greiningunni. Til saman­burðar eru 35 starfs­menn í Sveitar­félaginu Árborg þar sem íbúar eru tvöfalt fleiri.

Sveitar­félögin fimm eiga þegar í miklu samstarfi sín á milli sem og við önnur sveitar­félög á Suður­landi. Í stöðu­greiningunni kemur fram að með sameiningu skapist m.a. tækifæri til að efla sérfræði­þekkingu með því að ráða í störf sem snúa að lögfræði­ráðgjöf, persónu­vernd, skjala­stjórnun, fjöl­menningar­málum og upplýsinga­tækni. Þá veiti sameining einnig tækifæri til að fækka fulltrúum, hækka laun eða draga úr kostnaði. Þá ætti að skapast hagræðing við fækkun sveitar­stjóra úr fimm í einn.

Skólar og hjúkrunarheimili

Í stöðu­greiningunni er farið yfir það sem kallað er fram­tíðarsýn sem m.a. felst í því að sameinist sveitar­félögin verði stjórn­sýsla og þjónusta áfram þar sem starfs­stöðvar eru í dag og að fulltrúi sveitar­stjóra á hverjum stað verði tengi­liður íbúa við stjórn­sýsluna. Stafræn upplýsinga­tækni verði nýtt til að einfalda aðgengi íbúanna að stjórn­sýslunni og þar fram eftir götunum.

Á svæðinu eru fimm grunn­skólar með um 550 nemendur og jafnmargir leik­skólar með rúmlega 260 nemendur. Þrír tónlistar­skólar eru starfandi á svæðinu og nemendur þeirra eru rúmlega 300 talsins. Í stöðu­greiningunni kemur fram að ekki séu „miklar breytingar“ fyrir­sjáanlegar á skipulagi skóla­starfs verði sveitar­félögin sameinuð og fjar­lægðir á milli byggða­kjarna „tryggja að skóla­starf verður áfram í öllum „hverfum“ nýs sveitar­félags“. Þá er framtíðar­sýnin einnig sú að skólarnir haldi sjálf­stæði sínu og að stjórn­endur verði áfram í hverjum skóla. Einnig er stefnt að því að öll hjúkrunar­heimili innan svæðisins verði starfrækt áfram.

Meirihluti á móti hálendisþjóðgarði

Atvinnulíf sveitar­félaganna fimm hefur einkennst af land­búnaði, matvæla­framleiðslu og þjónustu við landbúnað. Síðustu árin hefur ferða­þjónustan hins vegar sótt verulega í sig veðrið. Í því sambandi er í stöðu­greiningunni bent á að sameinað sveitar­félag yrði bæði aðili að Vatna­jökuls­þjóðgarði og Kötlu jarðvangi og „mikilvægt er að gætt verði að hagsmunum þeirra í rekstri og stefnu­mótum þjóðgarða“. Einnig segir að tækifæri séu í „öflugri hagsmuna­gæslu gagnvart ríkis­valdi í skipulags­málum á hálendinu“.

Í samantekt RÚV á afstöðu sveitar­stjórna og hrepps­nefnda til stofnunar hálendis­þjóðgarðs sem birt var í byrjun árs kom fram að fjögur hinna fimm sveitar­félaga sem kosið verður um að sameina á Suður­landi voru andvíg stofnun hans en eitt henni hlynnt; Skaftár­hreppur.

Hvað landbúnað varðar hefur fjöldi býla með búfénað staðið í stað frá aldamótum en þeim hefur fækkað um 27 í Skaftár­hreppi, um 18 í Rangár­þingi eystra og níu í Mýrdals­hreppi. Fjölgun hefur hins vegar orðið um 16 í Ásahreppi og 38 í Rangár­þingi ytra. Þá hefur mikil aukning orðið í ræktun alifugla á svæðinu frá árinu 2000.

Ásahreppur leggur á lágmarksútsvar

Að teknu tilliti til sameiningar­framlaga má búast við að skuldir lækki og tekjur hækki, þannig að sameinað sveitar­félag hafi „enn betri forsendur til að standa undir skuld­bindingum frá árinu 2022,“ segir í stöðu­greiningunni. Álagning útsvars á launa­tekjur má vera á bilinu 12,44 prósent til 14,52 prósent. Ásahreppur leggur á lágmarks­útsvar en hin sveitar­félögin fjögur hámarks­útsvar.

Samstarfs­nefndin lagði einnig til við sveitar­stjórnirnar að þær lýsi því yfir að þær muni ekki nýta heimild í 2. mgr. 120. gr. sveitar­stjórnar­laga, komi til þess að sameiningar­tillaga verði aðeins samþykkt af íbúum í hluta sveitar­félaganna, nema að undan­gengnu samráði við íbúa. Í því felst að hafni íbúar einhvers eða einhverra sveitar­félaganna sameiningar­tillögunni, munu aðrar sveitar­stjórnir ekki taka ákvörðun um sameiningu án þess að hafnar verði nýjar sameiningar­viðræður og kosið að nýju.

Verði sameining sveitar­félaganna fimm hins vegar samþykkt mun hið nýja sveitar­félag taka til starfa eftir sveitar­stjórnar­kosningarnar í maí á næsta ári. Þó að verkefnið gangi undir heitinu Sveitar­félagið Suðurland er ekki þar með sagt að það yrði nafnið á hinu nýja sveitar­félagi. Algengt verklag er að kalla eftir tillögum að nöfnum, eiga samráð við örnefna­nefnd og leggja því næst tillögur til atkvæða­greiðslu meðal íbúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár