Verður fólk hvatt til þess að fljúga minna?

Svíar eru að ferðast minna með flugvélum, en herferð hefur verið í gangi á samfélags­miðlum þar sem fólk er hvatt til þess að hugsa um kolefnis­sporið á ferða­lögum.

Í Svíþjóð er nú í gangi herferð á samfélags­miðlum undir slag­orðinu Plane Shame, þar sem fólk er hvatt til þess að hugsa um kolefnis­spor ferðalaga sinna, meðal annars með því að fljúga minna.

Greta Thunberg, unglingur sem ýtt hefur af stað heims­átaki ungs fólks sem krefst aðgerða til að sporna gegn hlýnun jarðar, hefur lagt áherslu á þetta atriði, og samkvæmt skrifum World Economic Forum þá hafa orðið miklar breytingar á skömmum tíma. Flug­umferð hefur minnkað um 4,5 prósent, á sama tíma og hagvöxtur hefur verið viðvarandi.

Sérstak­lega hefur notkun í innan­landsflugi farið minnkandi, um allt að 20 prósent.

Líklegt er að verð á flugi fari hækkandi á næstu árum, þar sem mengunar­kvótar, sem flugfélög þurfa að kaupa, munu hækka í verði, og þá mun breytt ferða­hegðun - meðal annars vegna vitunar­vakningar um mengun frá flugi - geta haft mikil áhrif.

Stjórn­völd, meðal annars í Svíþjóð, eru nú að ýta undir að lestar­samgöngur séu frekar notaða en flug, og er gert ráð fyrir að mikil áhersla verða lögð á það að flýta uppbyggingu vistvænna lesta, sem meðal annars ganga fyrir rafmagni, á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár