Katrín tekur ekki afstöðu til þess hvort Bjarni hafi brotið siðareglur

Forsætis­ráðherra segir það „ekki hlutverk forsætis­ráðuneytisins að kveða upp úrskurði um það hvort siða­reglur hafa verið brotnar í einstökum tilvikum“ í svari við fyrir­spurn um hvort siða­reglum hefði verið fylgt þegar fjármála­ráðherra sat á skýrslum um aflandseignir Íslendinga fram yfir þing­kosningar árið 2016.

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra tekur ekki afstöðu til þess hvort Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra hafi brotið siða­reglur með því að sitja á skýrslu um eignir Íslendinga á aflands­svæðum fram yfir þing­kosningar árið 2016. Þetta kemur fram í svari ráðherra við fyrir­spurn Björns Levís Gunnars­sonar, þingmanns Pírata.

Í svarinu er rakið að það sé á ábyrgð hvers ráðherra að gæta þess fyrir sitt leyti að farið sé eftir reglunum. Í vafa­tilvikum geti þó ráðherra leitað ráðgjafar hjá forsætis­ráðuneytinu. 

Spurt er hvort farið hafi fram mat á því hvort efni skýrslu um eignir Íslendinga á aflands­svæðum varði almannahag og hver niður­staða þess mats hafi þá verið.

„Sú skýrsla sem spurt er um var unnin á vegum fjármála- og efnahags­ráðuneytisins. Fyrir­spurnum er varða efni hennar, eða mat á efni hennar, ber að beina til fjármála- og efnahags­ráðherra, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis,“ segir í svari forsætis­ráðherra.

Þá er því ekki svarað hvort forsætis­ráðherra telji að siða­reglur hafi verið brotnar með töfum á birtingu umræddrar skýrslu: „Samkvæmt siða­reglum ráðherra nr. 1250/2017 hefur forsætis­ráðuneytið ráðgefandi hlutverk gagnvart ráðherrum um túlkun þeirra. Það er hins vegar ekki hlutverk forsætis­ráðuneytisins að kveða upp úrskurði um það hvort siða­reglur hafa verið brotnar í einstökum tilvikum.“

Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra sætti harðri gagnrýni þegar í ljós kom að hann hafði ákveðið að birta hvorki almenningi né Alþingi skýrslu um aflandseignir Íslendinga, sem unnin var og skilað ráðuneyti hans þann 13. september 2016, fyrr en eftir þing­kosningarnar sem fram fóru í október sama ár. 

Í skýrslunni er fjallað með gagnrýnum hætti um þá stefnu sem rekin var á sviði skatta­löggjafar og skatta­eftirlits á útrásar­árunum þegar Sjálfstæðis­flokkurinn fór með fjármála­ráðuneytið.

T.d. er rakið hvernig ráðleggingar sérfræðinga um að innleiða svokallaða CFC-löggjöf í takt við þróunina í nágranna­löndunum voru hunsaðar á tímum gríðarlegrar „aflandsvæðingar“ á Íslandi. Fram kemur að íslensk skattalög „gefið meira svigrúm til flutnings eigna úr lögsögunni með löglegum hætti en víða annars staðar“ auk þess sem eftir­fylgni og gagna­skráning hafi ekki haldið í við hraðan vöxt fjármagns­flutninga. Fyrir vikið hafi gríðar­legum fjármunum verið skotið undan skatti og samfélagið orðið af tugum milljarða. 

Eftir að í ljós kom í byrjun janúar 2017 að skýrslan var löngu tilbúin en hafði ekki verið birt fullyrti Bjarni Benediktsson í frétta­viðtali að skýrslunni hefði ekki verið skilað í ráðuneyti hans fyrr en eftir þingslit í október. Fljótlega kom í ljós að þetta var rangt. Viðurkenndi Bjarni að hafa sjálfur ákveðið að birta ekki skýrsluna, enda ekki viljað að efni hennar yrði sett „í kosninga­samhengi“. Sem kunnugt er hafði einmitt verið boðað til þing­kosninganna árið 2016 vegna harðra viðbragða almennings við uppljóstrunum um tengsl æðstu valdhafa við aflandsfélög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár