Rafmagnsverð hefur tvöfaldast í Noregi

Orku­skorturinn í Evrópu og lítil úrkoma hefur bitnað þungt á norskum heimilum, sem borga nú tvöfalt meira fyrir rafmagn en þau hafa venjulega gert á þessum árstíma. Stjórn­völd hafa brugðist við verð­hækkununum með stór­felldum niður­greiðslum.

Trygve Slagsvold Vedum, fjármálaráðherra Noregs.
Trygve Slags­vold Vedum, fjár­mála­ráð­herra Noregs. Mynd: EPA

Norsk heimili borguðu tvöfalt meira fyrir rafmagns­notkun á þriðja ársfjórðungi en þau hafa gert á sama tímabili síðustu fimm ár. Á sama tíma hefur hið opinbera hagnast á meiri útflutnings­verðmætum olíu og jarðgass, en ríkis­stjórn Noregs hyggst ætla að niður­greiða orku­kostnað til heimila þar í landi um allt að helming í vetur.

Hátt verð út veturinn

Samkvæmt nýbirtum tölum frá norsku hagstofunni (SSB) nam meðal­verðið á raforku rúmlega 76 norskum aurum, eða um 11,5 íslenskum krónum, á hverja kílóvatt­stund. Til saman­burðar nemur raforku­verðið hérlendis um 5 til 7 krónum á kílóvatt­stund, samkvæmt reiknivél Orku­seturs.

Verð­hækkanirnar eru lang­mestar í suður­hluta landsins, en samkvæmt nýlegri frétt norska ríkis­útvarpsins (NRK) var raforku­verð í Suður-Noregi allt að 13-falt dýrara en í Norður-Noregi á tímabili í síðasta mánuði. Búast má við að verðið muni haldast hátt út þennan vetur og ekki lækka fyrr en í apríl á næsta ári, segir yfirmaður greininga hjá norska fyrir­tækinu Volue Insight í samtali við NRK.

Orkuskortur og þurrt sumar

Orkumála­ráðuneyti Noregs segir ástæðuna fyrir verð­hækkununum vera tvíþættar. Annars vegar fylgi það orkuverð í öðrum Evrópu­löndum, sem hefur hækkað töluvert á síðustu mánuðum vegna minnkandi orku­birgða, sérstak­lega í formi kola og jarðgass.

Hins vegar hafi lítil úrkoma í Noregi í sumar leitt til þess að minna vatn sé í uppistöðu­lónunum þar í landi heldur en venjulegt er á þessum árstíma. Þetta gildi sérstak­lega fyrir Vestur-Noreg, þar sem haustið hefur verið óvenju þurrt.

Bjóða niðurgreiðslur og bætur

Norska ríkis­stjórnin hefur boðað miklar niður­greiðslur á orkuverði til heimila þar í landi, en í síðustu viku tilkynnti Trygve Slagsvold Vedum, fjármála­ráðherra landsins, að raforkan yrði niður­greidd um tæpan helming frá janúar til mars á næsta ári.

Á hinum vetrar­mánuðunum sagði Vedum að niður­greiðslan myndi nema um níu prósentum. Alls munu greiðslurnar nema 2,9 milljörðum norskra króna, eða um 44 milljörðum íslenskra króna, í fjárlögum næsta árs.

Einnig hafa ríkis­stjórnar­flokkarnir tveir, Verkamanna­flokkurinn og norski Miðflokkurinn, lagt fram frumvarp á norska Stór­þinginu um auknar bóta­greiðslur til lágtekju­heimila sem búa á þeim lands­svæðum þar sem orku­verðið hefur hækkað hvað mest. Samkvæmt miðlinum E24 myndi þetta þýða að allt að 66 þúsund heimili í Suður- og Vestur-Noregi gætu fengið allt að þrjú þúsund norskar krónur, eða um 45 þúsund íslenskar krónur, aukalega í bætur.

Útflutningur á olíu og jarðgasi stóreykst

Á sama tíma og norsk heimili borga meira fyrir raforkuna sína hefur norska ríkið hagnast töluvert á auknum orku­útflutningi til annarra Evrópu­landa. Samkvæmt nýrri frétt frá E24var útflutnings­verðmæti jarðgass í síðasta mánuði fimmfalt meira en það var á sama tíma í fyrra. Sömuleiðis hefur olíu­útflutningur aukist, en útflutnings­verðmæti þess var 70 prósent meira í október en það var fyrir rúmu ári síðan.

Norska ríkið á tvo þriðju af öllu hlutafé olíu- og gasframleiðandans Equinor, sem skilaði um 10 milljörðum Bandaríkja­dala í hagnaði á síðasta ársfjórðungi. Það jafn­gildir 152 milljörðum íslenskra króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár