Slagurinn gegn ógreindri lesblindu leiðir fyrrverandi ráðherra inn í frumskóg

Fyrr­verandi heilbrigðis­ráðherra Íhalds­flokksins í Bretlandi hefur verið rekinn úr þing­flokknum fyrir að taka að sér þátttöku í raun­veruleika­þætti í óbyggðum Ástralíu. Sjálfur segist hann ætla að reyna að tala til fjöldans um lesblindu í þáttunum.

Matt Hancock var heilbrigðisráðherra Bretlands frá 2018-2021. Nú ætlar hann út í óbyggðir Ástralíu.
Matt Hancock var heil­brigð­is­ráð­herra Bret­lands frá 2018-2021. Nú ætlar hann út í óbyggðir Ástralíu. Mynd: EPA

Matt Hancock, sem var heilbrigðis­ráðherra í bresku ríkis­stjórninni þegar kórónu­veiru­faraldurinn skall á og þar til hann neyddist til að segja af sér embætti fyrir að hafa brotið sóttvarna­reglur er hann stóð í fram­hjáhaldi með konu sem hann hefði ekki átt að koma nær en einn meter, er á ný í pólitískum bobba.

Á þriðjudag var opinberað að hann yrði þátt­takandi í einum vinsælasta raun­veruleika­þætti Bretlands, I'm A Celebrity... Get Me Out Of Here! sem sýndur er á sjónvarps­stöðinni ITV. Í grófum dráttum gengur raun­veruleika­þátturinn út á það að frægu fólki er dembt inn í aðstæður fjarri manna­byggðum sem þau eru alls óvön og þar látin leysa ýmsar þrautir og áskoranir. Áhorf­endur heima í stofu kjósa þáttakendur svo í burtu, einn af öðrum.

Komandi þáttaröð mun eiga sér stað í frumskógi í Ástralíu og þar verður Hancock staddur næstu vikurnar við upptökur, en á sama tíma mun hann þiggja full laun sem þingmaður. Talið er að Hancock fái þátt­tökuna í raun­veruleika­þættinum afar vel launaða og hafa bresk götublöð nefnt upphæðina 350 þúsund pund, jafnvirði yfir 58 milljóna króna, sem eru um það bil ferföld árslaun hans sem þingmanns, í því samhengi.

Þrátt fyrir að Hancock hafi ekki enn birst á skjánum hefur þáttakan í þættinum þegar haft töluverða eftirmála fyrir þing­manninn, en nánast um leið og það spurðist út að hann væri mættur til Brisbane í Ástralíu að hefja upptökurnar var Hancock vikið úr þing­flokki Íhalds­flokksins og situr nú þar sem óháður þingmaður. „Alvarlegt brot“ gegn starfs­skyldum þingmanns.

Ákvörðun hans um að fara til Ástralíu til þátttöku í raun­veruleika­þættinum hefur þannig vakið bæði undrun og reiði. Reiðin er ekki síst hjá umbjóðendum hans í kjör­dæminu Vestur-Suffolk í austur­hluta Englands, hverra hagsmuna hann á að vera að gæta á þinginu, sem nú glímir við stór úrlausnar­efni á borð við verðbólgu og svimandi orku­kostnað breskra heimila.

Andy Strummond, vara­formaður kjördæmis­ráðs Íhalds­flokksins á heima­slóðum þing­mannsins gagnrýndi Hancock harðlega fyrir að fara í þáttinn og sagði orðrétt í viðtali við frétta­veituna Press Association á þriðjudag að hann „hlakkaði til að sjá hann borða kengúru­typpi“ í sjón­varpinu. „Hafðu þetta eftir mér,“ sagði Strummond við blaða­manninn, sem gerði það, og þessi ummæli hafa farið víða.

Það eru ekki bara Íhalds­menn í heima­kjördæmi þing­mannsins sem eru skúffaðir yfir þáttöku Hancock í þættinum. Samtök syrgjandi fjöl­skyldna sem urðu fyrir barðinu á kórónu­veiru­faraldrinum, og telja að Hancock sem heilbrigðis­ráðherra hafi ekki staðið sig í stykkinu við að hemja útbreiðslu veirunnar, segja að þáttaka hans í raun­veruleika­þætti á grund­velli „frægðar“ sé móðgun við þau sem létust úr COVID.

„Hancock er ekkert frægðarmenni, hann er fyrr­verandi heilbrigðis­ráðherra og á hans vakt var dánar­tíðni vegna COVID í Bretlandi ein sú hæsta á sama tíma og hann braut sínar eigin sóttvarna­reglur,“ sagði í yfir­lýsingu hópsins, sem kallar eftir því að hann segi af sér þing­mennsku.

Segist ætla að vekja athygli á lesblindu

Það ætlar Hancock þó svo sannarlega ekki að gera. Þvert á móti hefur hann skýrt þátttöku sína í raun­veruleika­þættinum með því að hann vilji ná til fjöldans í gegnum sjón­varpið. Í orðsendingu sem Hancock fékk birta í The Sun sagði hann að ástæðan fyrir því að hann ætlaði að taka þátt væri sú að hann vildi nota raun­veruleika­sjónvarpið sem vettvang til þess að vekja athygli á lesblindu, en sjálfur greindist Hancock lesblindur er hann var að hefja háskólanám 18 ára gamall. Segir hann svipaða sögu eiga við um allt of marga Breta, og vill að skimað verði fyrir lesblindu í auknum mæli í breskum grunn­skólum.

„Sumir halda eflaust að ég sé að missa vitið, eða hafi fengið mér einum of marga drykki, fyrir að vilja fara úr þægilegum aðstæðum í Westminster og Vestur-Suffolk yfir í öfga­kenndar aðstæður ástralskra óbyggða,“ sagði Hancock meðal annars í grein sinni í The Sun, en rakti svo að hann teldi þetta „frábært tækifæri til að tala beint við fólk sem er ekki alltaf áhugasamt um stjórnmál, þrátt fyrir að þau láti sig það varða hvernig landinu er stjórnað“.

„Það er starf okkar sem stjórn­málamenn að fara þangað sem fólkið er – ekki bara að sitja í fílabeins­turnum í Westminster,“ skrifaði Hancock, sem telur nauðsynlegt að stjórn­málamenn eins og hann nái til fólksins.

„Við verðum að vakna og taka þátt í popp­menningunni. Fremur en að líta niður á raun­veruleika­sjónvarp, ættum við að átta okkur á því að það er öflugt tól til að koma skila­boðum okkar á framfæri við yngri kynslóðir,“ segir Hancock einnig.

Bók á leiðinni

Ekki eru þó allir sann­færðir um að fýsni í að koma skila­boðum um lesblindu á framfæri við breska sjónvarps­áhorfendur sé það eina sem ráðið hafi för við ákvarðana­töku Hancock. Ráðherrann fyrr­verandi er nefnilega líka að fara að gefa út bók, Pandemic Diaries, sem byggð er á minnis­punktum hans sem skrifaðir voru er faraldurinn fór af stað.

Áætlaður útgáfu­dagur bókarinnar er eftir rúman mánuð – og ljóst að það skaðar varla sölu­tölurnar að birtast í einum vinsælasta raun­veruleika­þætti landsins í aðdrag­anda þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár