Dregur úr flöskuhálsum í Evrópu

Vísbendingar eru um að draga muni úr flösku­hálsum í fram­leiðslu innan Evrópu­sambandsins á næstunni. Í Banda­ríkjunum gætir þó enn tölu­verðra vandræða í framboðs­keðjunni, en samkvæmt markaðs­aðilum gætu þau varað fram á mitt ár.

Áhrif flöskuhálsa í alþjóðaflutningum á verðið á innfluttum vörum hafa verið takmörkuð hérlendis.
Áhrif flösku­hálsa í alþjóða­flutn­ingum á verðið á inn­fluttum vörum hafa verið tak­mörkuð hér­lendis. Mynd: Bára Huld Beck

Ekki eru væntingar um að hægt verði að leysa flösku­hálsa í alþjóða­flutningum fyrr en á seinni hluta ársins. Áhrif þeirra á innfluttar vörur í Evrópu munu þó líklega minnka á næstunni, en á Íslandi eru þau takmörkuð þessa stundina.

Forstjóri Mærsk ekki bjartsýnn

Søren Skou forstjóri danska gáma­fyrir­tækisins Mærsk, sagði í viðtali við CNN í síðustu viku að yfir­standandi framboðs­truflanir á alþjóð­legum vöru­mörkuðum myndu ekki leysast á næstunni. „Þessa stundina virðist staðan ekki vera að batna að einhverju marki,“ sagði Skou. „Ég vildi að ég gæti boðað betri tíðindi, en akkúrat núna er ekkert í tölunum sem gefur það til kynna,“ bætti hann við.

Samkvæmt forstjóranum geta skipa­flutningar varla annað ört vaxandi eftir­spurn á heimsvísu, þar sem erfitt hefur reynst að manna stöður. Hann segir mönnunar­skortinn hafa skapað nokkur vandamál, sérstak­lega í kringum hafnir á vestur­strönd Banda­ríkjanna.

Betri horfur í Evrópu

Samkvæmt Seðla­banka Evrópu­sambandsins eru þessi vandamál þó ekki jafnmikil í Evrópu, þar sem eftir­spurn eftir innflutnings­vörum hefur aukist mun meira í Banda­ríkjunum á síðustu mánuðum. Sömuleiðis má gæta meiri spennu á vinnu­markaði Vestanhafs, þar sem skortur hefur myndast á starfs­fólki í ýmis störf, á meðan viðspyrnan hefur verið hægari í Evrópu.

Seðla­bankinn birtir einnig hagvísi sem birtir á afhendingar­tíma hjá birgjum á iðnaðar­vörum, en hann ætti að gefa til kynna hvort búast mætti við meiri eða minni framleiðslu­hnökrum í fram­tíðinni. Á síðustu vikum hefur hagvísirinn lækkað töluvert, en samkvæmt bankanum ætti það að vera vísbending um að minni hnökra sé að vænta í náinni framtíð.

Markaðs­aðilar eru þó ekki bjartsýnir um að flösku­hálsarnir í fram­leiðslu muni hverfa, samkvæmt könnun Seðla­banka Evrópu. Þar bjuggust flestir þeirra sem tóku afstöðu við því að truflanirnar myndu vara í hálft ár í viðbót, hið minnsta. Hins vegar voru þeir mjög fáir sem töldu að hnökrarnir myndu vara í ár í viðbót.

Takmörkuð áhrif á Íslandi

Í grein sinni í síðasta tölublaði Vísbendingar sagði Gylfi Zoega, hagfræði­prófessor við HÍ, að verð­hækkanir á erlendum vörum ekki hafa verið stóran áhrifa­vald í innlendri verðbólgu, meðal annars vegna þess að gengis­styrking íslensku krónunnar hafi unnið gegn þeim.

Samkvæmt nýlegri umfjöllun Financial Times hefur húsgagna­verð hækkað sérstak­lega hratt vegna alþjóðlegra framboðs­truflana, þar sem flutninga­kostnaður þeirra er að jafnaði mikill. Í Bretlandi nam verð­bólgan í vöru­flokknum 12,5 prósentum í desember í fyrra, en í Banda­ríkjunum nam hún 9,3 prósentum í síðasta mánuði.

Þessar hækkanir eru mun minni hérlendis. Samkvæmt vísitölu neyslu­verðs, sem Hagstofan mælir mánaðar­lega, nam verð­bólgan í húsgögnum og heimilis­búnaði tveimur prósentum í síðasta mánuði. Sömu sögu er að segja um raftæki, sem eru að mestu leyti innflutt, en þau voru einungis 0,1 prósent dýrari en í janúar í fyrra. Verðbólgu­þróunina fyrir báða vöru­flokkana má sjá á mynd hér að ofan, en þar sést að verulega hefur dregið úr verð­þrýstingnum á síðustu mánuðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár