Ekkert hægt að fullyrða um mismunandi vernd bóluefna

Flestir bólu­settra sem smitast hafa í yfir­standandi bylgju fengu bóluefni Pfizer. Það sama á við um þá bólusettu sjúklinga sem lagðir hafa verið inn. Ekki er þó hægt að reikna virkni bóluefna út frá þessum tölum.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Frá 1. júlí hafa rúmlega 9.200 manns greinst með COVID-19 hér landi og um 60 prósent voru full­bólusett við greiningu. Flest hinna smituðu á þessu tímabili hafa verið bólusett með Pfizer, þá Janssen, svo AstraZeneca og loks Moderna. Að sögn sóttvarna­læknis er ekki hægt að sjá út frá þessum tölum hvort eitt bóluefni fremur en annað sé að veita meiri eða minni vernd.

190 hafa lagst inn á sjúkrahús í þessari bylgju og voru flest þeirra bólusett með Pfizer, síðan AstraZeneca, þá Janssen og loks Moderna. „Sömuleiðis er ekki hægt að reikna virknina út frá þessum tölum því mismun­andi margir voru bólu­settir með bólu­efnunum og eins var aldurinn mismun­andi og tíðni undir­liggjandi sjúkdóma,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir við Kjarnann spurður út í virkni ólíkra bóluefna.

Um helmingur allra bólu­settra hér á landi hefur fengið bóluefni Pfizer. Fæstir hafa fengið bóluefni Moderna eða aðeins 7,2 prósent lands­manna.

Herferð örvunar­bólu­setningar er hafin og í henni eru notuð mRNA-bóluefnin tvö; Pfizer og Moderna. Allir sextán ára og eldri munu fá boð í slíka bólu­setningu og mun herferðin standa að minnsta kosti fram í febrúar á næsta ári.

„Við notum enn töluvert af Janssen en AstraZeneca er ekki lengur flutt inn,“ segir Þórólfur. „Það nýtist betur í öðrum löndum út af þeim takmörkunum sem við höfðum sett á notkun þess með tilliti til aldurs og kyns.“

Þeir skammtar af bóluefni AstraZeneca sem eru til í landinu eru notaðir í seinni skammta þeirra sem hafa ekki klárað bólu­setningu tímanlega eða hófu hana erlendis og vilja klára með sama bóluefni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár