Konur í Sádí-Arabíu fá leyfi til að keyra bíl

Kvenn­frelsi hefur ekki verið í hávegum haft í Sádí-Arabíu. Í dag var tilkynnt um að konur í landinu hefðu nú leyfi til að fá bílpróf.

Konur í Sádí-Arabíu munu fá leyfi til að taka bílpróf og keyra bíl í júní á næsta ár. Um þetta var tilkynnt í landinu í dag, en fram til þessa hafa konur ekki haft leyfi til að keyra bíl samkvæmt lögum landsins. Skipun um þessa breytingu hefur þegar verið undir­rituð af Salman konungi.

Í þessu konungs­veldi búa konur við viðvarandi frelsis­skerðingar af ýmsu tagi, meðal annars þegar kemur að ferða­mátum, klæðnaði og atvinnu­réttindum. Þessi ákvörðun nú þykir mikill sigur í réttinda­baráttu kvenna í landinu, en staðan er þó enn órafjarri því sem þekkist á vestur­löndum eða í flest öllum ríkjum heimsins.

Samkvæmt umfjöllun The Guardian vöktu ummæli eins trúar­leiðtogans í landinu, sem starfar sem klerkur, mikla athygli en hann hélt því fram að eggja­stokkar kvenna myndu skemmast ef konur myndu fara að keyra um göturnar í Sádí-Arabíu. Þá lét hann þau orð falla einnig að það gæti skapað vanda fyrir karlmenn í umferðinni ef konur færu allt í eingu að keyra bíla.

Engin rök fylgdu með þessum orðum, en þau féllu í grýttan jarðveg hjá þeim sem berjast fyrir auknum réttindum kvenna í landinu.

Í Sádí-Arabíu ræður ríkjum vellauðug konungs­fjölskylda, sem nýtur góðs af olíu­auðlindum landsins. Í landinu búa tæplega 33 milljónir manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár