Ríkisstjórnarflokkarnir með undir 40 prósent fylgi

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar stillti sér upp á tröppunum fyrir framan Bessastaðastofu eftir fyrsta ríkisráðsfundinn.
Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar stillti sér upp á tröpp­unum fyrir framan Bessa­staða­stofu eftir fyrsta rík­is­ráðs­fund­inn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sameiginlegt fylgi Sjálfstæðis­flokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar mælist 39,3 prósent í nýrri könnun MMR sem sýnir fylgi flokkanna eins og það mældist 10. janúar síðastliðinn, sama dag og ný ríkis­stjórn flokkanna þriggja var kynnt. Niður­stöður hennar hafa hins vegar verið birtar inni á heimasíðu fyrir­tækisins. 

Samkvæmt könnuninni mældist fylgi Sjálfstæðis­flokksins 26,1 prósent, Viðreisnar 6,9 prósent og Bjartrar framtíðar 6,1 prósent. Samtals fengu flokkarnir þrír 46,7 prósent fylgi í kosningunum 29. október í fyrra. Þeir tapa allir fylgi frá kosningunum samkvæmt könnuninni. Sjálsfstæðisflokkur 2,9 prósentum og Viðreisn 3,6 prósentum en Björt framtíð 0,9 prósentum.

Vinstri græn mælast nú með 24,3 prósent fylgi eða 8,4 prósentum meira en flokkurinn fékk í síðustu kosningum. Píratar eru nánast með sama fylgi og þeir fengu í kosningunum í lok október (14,6 prósent), Samfylking bætir örlitlu við sig (úr 5,7 í 6,4 prósent) en Framsóknar­flokkurinn, sem fékk síðan verstu útreið í 100 ára sögu sinni í kosningunum þegar hann fékk 11,5 prósent atkvæða, mælist nú með 10,9 prósent fylgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár