Um 500 manns greinst tvisvar eftir að ómíkron-bylgja hófst

Hægt er að endursýkast af undir­afbrigði ómíkron þótt það sé líklega sjaldgæft. Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir segir við Kjarnann að hann telji því ekki sérstaka nýja hættu á ferðum vegna þessa en að fjölmörg „ef“ séu til staðar um fram­haldið.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Uppsveifla er á ný í faraldri COVID-19 í að minnsta kosti átján Evrópu­löndum. Smitum fjölgar m.a. í Bretlandi, Frakk­landi, á Ítalíu og í Þýska­landi og sagði Hans Kluge, yfirmaður Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunarinnar (WHO), í gær að hörðum takmörkunum sem settar voru á er ómíkron-afbrigðið kom fram á sjónar­sviðið hafi verið aflétt of skarpt þegar ljóst var að sjúkdóms­einkenni eru almennt vægari en af fyrri afbrigðum kórónu­veirunnar. Takmarkanir vegna ómíkron hafi verið „of miklar“ en svo skyndi­lega „of litlar“ og á of stuttum tíma. Smitum fækkaði hratt í lok janúar eftir stærstu bylgjuna hingað til en hefur farið fjölgandi síðustu daga og vikur. Fimm milljónir nýrra tilfella hafa greinst í Evrópu síðustu viku og 12.500 manns með COVID-19 hafa látist. Kluge segir „nýja umferð“ af sýkingum í álfunni hafna sem rekja megi til undir­afbrigðis ómíkron; BA.2.

Það er hægt að endur­sýkjast af þessu undir­afbrigði, segir Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir við Kjarnann, en það er sennilega mjög sjaldgæft. Af þeim sem greinst hafa á Íslandi eftir 1. desember, þ.e. eftir að ómíkrón-bylgjan hófst, hafa tæplega 500 manns greinst tvisvar. Á þessu tímabili hafa 170 þúsund manns greinst með veiruna.

Hann segist ekki hafa af þessu sérstakar áhyggjur. Um 11 prósent þeirra sem sýktust af öðrum afbrigðum á fyrri stigum faraldursins endur­sýktust af ómíkron. Hins vegar er ekki hægt að gera greinarmun á BA.1 (ómíkrón) og BA.2 (undir­afbrigðinu) í gögnum íslenskra heilbrigðis­yfirvalda.

Sennilega fyrr á ferðinni en aðrar þjóðir

En eigum við von á nýrri bylgju smita, líkt og hafin er í nokkrum löndum Evrópu?

„Ólíklega eins og staðan er núna,“ segir Þórólfur. „Við erum búin að ganga í gegnum ómíkron-bylgjuna og smit eru núna á niðurleið hjá okkur. Við erum sennilega fyrr á ferðinni en margar þjóðir.“

Hvað síðan taki við sé óljóst. „Munum við fá ný afbrigði sem bóluefnin vernda ekki gegn eða fyrri sýkingar? Mun verndin eftir bólu­setningu eða náttúru­lega sýkingu ekki endast nema einhverja mánuði og mun ómíkron þá aftur komast á strik? Það eru fjölmörg „ef“ í þessu.“

Skoða að bjóða öldruðum fjórða skammtinn

Um 205 þúsund landsmenn hafa fengið örvunar­skammt af bóluefni gegn COVID-19. Flestir fengu örvun sína í lok síðasta árs eða byrjun þessa árs. Einstaklingum með undir­liggjandi ónæmis­vandamál stendur nú til boða að fá fjórðu bólu­setninguna að sögn Þórólfs. „Til skoðunar er að bjóða öldruðum fjórða skammt því þar gæti ávinningurinn verið talsverður. Á þessari stundu er ólíklegt að öllum verði boðinn fjórði skammtur þar sem ávinningurinn hjá þeim er líklega ekki mikill með núverandi bóluefnum.“

Frá upphafi faraldursins hafa 93 einstaklingar með COVID-19 látist hér á landi. Þrír voru undir þrítugu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár