Bíl ekið á vegfarendur á Times Square

Einn er sagður látinn og þrettán slasaðir eftir að bíl var ekið á gangandi vegfarendur við Times Square í New York. Ökumaðurinn er í haldi lögreglu.

Einn er sagður látinn og þrettán slasaðir eftir að bíl var ekið á gangandi vegfarendur á Times Square í New York fyrir skömmu. Lögregla í New York segir að ökumaðurinn sé í haldi.

Lögreglan segir nú að ökumaðurinn hafi líklega misst stjórn á bíl sínum og að svo virðist sem um slys sé að ræða. Ekki séu nein tengsl við hryðju­verk. Ökumaðurinn er hins vegar grunaður um að hafa ekið undir áhrifum, og er sagður hafa verið hand­tekinn áður vegna slíkra mála. Þetta segir CBS frétta­stofan.

Vitni sagði við Reuters að bílnum hafi verið ekið á móti umferð áður en hann fór upp á gangstétt og ók á gangandi vegfarendur.

Utan­ríkis­ráðuneytið hefur hvatt Íslendinga í New York til að láta vita af sér vegna málsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár