Sessions rekinn - Hvað verður um rannsóknina?

Dómsmála­ráðherra Banda­ríkjanna er hættur. Nú eru spjótin sögð beinast að rannsókn Roberts Mueller, saksóknara.

Jeff Sessions er hættur sem dómsmála­ráðherra Banda­ríkjanna. Í umfjöllun New York Times segir að hann hafi í reynd verið rekinn, það er þvingaður til að segja af sér.

Maðurinn sem hefur tekið við af Sessions, tíma­bundið, er þekktur fylgis­maður Trumps, Matthew Whittaker, sem hefur starfað í dómsmála­ráðuneytinu.

Í umfjöllun New York Times segir að Trump hafi að undan­förnu beitt vaxandi þrýstingu á Sessions, vegna rann­sóknar Roberts Muellers, saksóknara, sem nú er sögð teygja anga sína að persónu­legum fjármálum Trumps og fjöl­skyldu hans.

Rannsókn Muellers beinist meðal annars að því hvort Rússar hafði haft einhver tengsl við framboð Trumps árið 2016, og hvort þeir hafi beitt sér með óeðli­legum hætti til að ýta undir mögu­leikann á sigri Trumps.

Trump hefur kallað rann­sóknina norna­veiðar, og hefur meðal annars kennt Sessions um hversu umfangs­mikil hún er orðin. Sessions hefur sagt að hann muni ekki hafa afskipti af rann­sóknum, á meðan hann er dómsmála­ráðherra.

Demó­kratar unnu meirihluta í fulltrúa­deild Banda­ríkjaþings í kosningunum í gær, og eru meðal annars í stöðu til að hefja rann­sóknir og krefjast gagna um forsetann og fjármál hans.

Þá þarf samþykkti bæði fulltrúa­deildarinnar og öldunga­deildarinnar til að ná fram samþykki laga í þinginu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár