Strengur nú kominn með meirihluta í Skeljungi en stærstu eigendur segjast ekki hafa selt

Flestir stærstu eigendanna staðfesta að hafa ekki selt eignar­hlut sinn í Skeljungi til fjárfesta­hópsins Strengs, sem kominn er með meirihluta atkvæða í félaginu.

Fjárfesta­hópurinn Strengur hefur nú náð meira en 50 prósentum atkvæða alls hlutafjár í Skeljungi, en eignar­hlutur hans í félaginu nam 38 prósentum fyrir viku síðan. Lífeyris­sjóðirnir Gildi, Frjálsi, Festa, Stapi og Lífsverk staðfesta allir að þeir hafi ekki selt hlut sinn í Skeljungi til Strengs, auk þess sem talsmenn Birtu segja að hlutur sjóðsins í félaginu hafi ekki minnkað um meira en tvö prósent.

Kjarninn hefur fjallað um áform Strengs um yfirtöku á Skeljungi, en hópurinn bauðst til þess að kaupa alla útistandandi hluti félagsins á 8,3 krónum á hlut. Einungis rúmlega tvö prósent hluthafa þáðu það þegar tilboðs­fresturinn rann út á mánudaginn, en þá var markaðs­virði Skeljungs í Kaup­höllinni nokkuð hærra. Með því stækkaði eignar­hlutur hópsins í félaginu úr 38 prósentum í 41,6 prósent, eftir að leiðrétt var fyrir eigin hlutum.

Í gær tilkynnti svo Fjármála­eftirlitið að Strengur hafði bætt enn meira við eignar­hlut sinn með kaupum á 90 milljón hlutum, þar sem 40 milljónir þeirra voru keyptar á 12 prósenta afslætti og 50 milljónir á 2 prósenta afslætti, miðað við gengi félagsins í gær.

Seinna í gærkvöldi bárust svo tvær tilkynningar til viðbótar frá Fjármála­eftirlitinu, þar sem Strengur var fyrst kominn með 49,59 prósent atkvæða­rétta í félaginu eftir kaup á 84,7 milljón hlutum í félaginu, og svo þar sem hlutfall atkvæða­rétta var komið í 50,06 prósent eftir kaup á 9 milljón hlutum til viðbótar. Því hefur Strengur bætt við sig rúmum 11 prósentum í Skeljungi á einni viku.

Lífeyris­sjóðirnir Gildi, Frjálsi, Festa, Birta, Lífsverk og Stapi eru stærstu eigendur Skeljungs, að Strengi undan­skildum, og eiga um 37 prósent í félaginu. Í samtali við Kjarnann á mánudaginn staðfestu sjóðirnir að þeir höfðu hafnað yfirtöku­tilboði Strengs, en flestir þeirra sögðu ástæðuna vera þá að tilboðs­verðið hafi verið of lágt, auk þess sem þeir lögðust gegn yfir­lýstum áformum hópsins um að skrá Skeljung af markaði.

Allir sjóðirnir nema Birta staðfestu svo í dag að þeir tóku ekki þátt í neinum af kaupum Strengs á hlutafé í Skeljungi þessa vikuna. Birta vildi ekki veita nákvæmar upplýsingar um viðskipti við Streng á síðustu dögum en bætti þó við að eignar­hlutur sjóðsins í félaginu, sem nam tæp sjö prósentum fyrir, sé enn yfir fimm prósentum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár